Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Side 59

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Side 59
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21 59 Könnun á notkun magalyfja (A02B) meðal lslendinga. Hildur Thors, Helgi Sigurðsson, Einar Oddsson, Bjarni Þjoðleifsson. Lyflækningadeild Lsp. Notkun Islendinga á magalyfjum er nú 2-3 sinn- um meiri en annarra Norðurlandaþjóða. Tilgang- ur rannsóknarinnar var að kanna hvernig íslenskir læknar ávísa þessum lyfjum. Til að forðast að rannsóknin sjálf truflaði ávísana- venjur var hún framkvæmd í apótekum með hjálp lyfjafræðinga án vitundar lækna. Aðferðir: Rannsóknin var gerð í apótekum á öllu landinu í apríl 1991. Lyfjafræðingar skráðu upplýsingar um alla lyfseðla á lyf úr flokki A02B og spurðu sjúklinginn um ástæðu lyfjagjafar, rannsóknir og fyrri lyfjatöku. Niðurstöður: Upplýsingar bárust um 2021 af- greiðslu magalyfja (1062 konur og 959 karla) og í 1131 (56%) tilvika fengust upplýsingar frá sjúklingi sjálfum. Avísanir frá heilsu- gæslulæknum voru 1306 (64%), frá meltingar- sérfræðingum 307 (15%) og frá sjúkrahúsum 275 (14%). Ástæða lyfjagjafar var magasár 17%, skeifugarnarsár 12%, magabólgur 21%, brjóst- sviði 28%, meltingaróþægindi 9% og vegna auka- verkana annarra lyfja 7%. Meltingarsérfræð- ingar ávísa lyfjunum hlutfallslega oftar þegar sjúklingur hefur sársjúkdóm og magabólgur en þegar um aðra sjúkdóma er að ræða. Magaspeglun eða röntgenrannsókn hafði verið framkvæmd hjá HELICOBACTER PYLORI 0C MELTINGARSÁR Kristján Öskarsson og Ásgeir Theodórs, lyf- lækningadeild St. Oósefsspítaia í Hafnar- firði og Borgarspítalans. Flest meltingarsár gróa með hefðbundinni lyfjameðferð. Endurkomutíðni sára er há og 95-100% skeifugarnarsára koma aftur innan 2 ára. Nokkrar rannsóknir sýna að með því að uppræta (eradicate) bakteríuia Helicobacter pylori (H. pylori) úr antrum maga má tefja eða hindra sáramyndun. Með- ferð með bismut samböndum ásamt ákveðnum sýklalyfjum upprætir bakteríuna í allt að 90% tilfella. Helst eru notuð saman lyfin colloid bismút subcítrat (De-Nol), metrónídazól og tetracýclín (DMT) eða De- Nol, metrónídazól og ampicillín (DMA). Aukaverkanir meðferðarinnar eru tíðar. Markmið rannsóknarinnar er að athuga árang- ur þriggja lyfja meðferðar til að uppræta H. pylori, kanna aukaverkanir, endurkomu sára og bera saman a) DMT og b) DMA. H. pylori jákvæðir sjúklingar með skeifugarnar- (27) eða magasár (8) fengu hefðbundna lyfja- meðferð þar til sár voru gróin, en síðan meðhöndlaðir með DMA eða DMT. Speglun var framkvæmd við upphaf meðferðar og 1, 3, 6 og 12 mánuðum eftir að meðferð lauk. Vefjasýni voru tekin úr antral slímhúð í CLO-próf, ræktun og mótefnamælingar og blóðsýni til blóðflokkunar, HLA-flokkunar, se-gastrin- og mótefnamælingar. Lyfja- skammtar: De-Nol 120 mg x 4 í 4-6 vikur, 67% sjúklinga þar af 48% á síðustu 5 árum, en 31% fengu lyfiö eftir viðtal við lækni ein- göngu. H2-biokkar voru mest notaðir eða í 79% tilvika, ómeprazól í 17% og önnur lyf í 4% tilvika. Heilsugæslulæknar nota ómeprazól í 13% tilvika en meltingarsérfræðingar í 47% tilvika. Algengasta notkun ómeprazóls er við sársjúkdómi eða nær helmingur ávísana lyfsins. Notkun Hj-blokka er fjölbreyttari, við öllum sjúkdómum voru þeir mest notaðir. Af þeim sjúklingum sem fengu H2-blokka höfðu 64% farið í speglun eða röntgenrannsókn en 83% þeirra sem fengu ómeprazól. í flestum tilvikum ráð- leggur læknir skammt sem samsvarar skilgreind- um dagskammti (DDD) eða minni skammt. Ályktanir: Notkun magalyfja við staðfestum sjukdomum virðist vel undirbyggð, en ætla má að um 40% af notkuninni sé við meltingarónot- um eða illa skilgreindum sjúkdómum. Ekki er hægt að sjá út frá þessari rannsókn hvers vegna íslendingar nota meira af magalyfjum en aðrar þjóðir einkum vegna þess að sambærilegar rannsóknir eru ekki finnaniegar. metrónídazól 400 mg x3 í 10 d., tetracýclín 500 mg x4 í 15 d. eða ampicillín 500 mg x4 í 15 d. Af 35 sjuklingum er mögulegt að meta árangur meðferðar hjá 28, 19 karlar, 9 konur, meðal- aldur 52 ár (32-71 ár). Saga um meltingar- sár er að meðaltali 12.5 ár (1-32 ár). Eftirlitstími er 1-12 mánuðir, 3.4 mánuðir að meðaltali. Um 68% sjúklinganna hefur verið fylgt eftir í a.m.k. 3 mánuði. Fjórtán sjúklingar fengu DMT og fjórtán sjúklingar DMA. H. pylori neikv. urðu 25 sjúklingar (89%). Enginn þeirra fékk sár á rannsókna- tímabilinu. Þrír sjúklingar (11%) héldust helicobacter jákv., en þeir höfðu allir skeifugarnarsár og fengu DMA. Aukaverkanir komu fram hjá 10 sjúklingum (35.7%), slapp- leiki (28.6%), ógleði (11%), kviðverkir (11%) og 2 sjúklingar (7%) fengu slæman, en skammvinnan niðurgang. Sjúklingar með- höndlaðir með DMA lýstu slappleika í 21.4% (DMT 35.7%), ógleði 7% (DMT 14.3%) og kvið- verkjum 7% (DMT 14.3%) tilfella. Tveir sjúkl- ingar (14.3%) a DMT fengu niðurgang. Ályktanir: 1) Skammtímaárangur af þriggja lyfja meðferð til að uppræta H. pylori er góð- ur. 2) Árangur þriggja lyfja meðferðar verður ekki metinn að fullu nema með lengra eftirliti. 3) DMT virðist gefa betri árangur en DMA (100% vs. 78.5%). 4) Enginn hætti meðferð vegna aukaverkana, sem eru tíðar en oftast vægar.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.