Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1992, Blaðsíða 62
62
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 21
Aðgerðir við ulcus pepticum á íslandi 1971-89.
Hildur Thors, Helgi Sigurðsson, Einar Oddsson,
Gauti Arnþorsson, Bjarni Þjóðleifsson.
Lyflækningadeild Landspítala.
Meðferð á ulcus pepticum á íslandi breyttist
mikið með tilkomu H^-blokka 1976. Notkun á
magalyfjum er nú 20 DDD per 1000 íbúa á dag,
sem er 2-3 sinnum meiri en notkun annarra
Norðurlandaþjóða. Tilgangur rannsóknarinnar
var að kanna áhrif þessarar lyfjanotkunar á
tíðni bráðra- og valaðgerða við ulcus pepticum.
Aðferðir: Aðgerða- og greiningaskrár sjúkra-
husanna þriggja í Reykjavík og FSA á Akureyri
voru kannaðar. ICD útgáfur átta og níu voru í
notkun á tímabilinu. Skráð var greining, teg-
und aðgerðar, aðgerðarár, kyn og aldur. Tíðni
aðgerða var reiknuð sem meðaltal per ár fyrir
5 ára tímabil og aldursflokka 20-49, 50-69 og
eldri en 70 og karla og konur.
Niðurstöður: Alls fóru 786 sjúklingar í valað-
gerð á tímabilinu. Hámark aðgerða var 1974-5
um 80 á ári. Eftir 1976 var stöðug minnkun
niður í um 10 aðgerðir á ári síðustu 2 árin.
Heildarfjöldi bráðra aðgerða vegna fylgikvilla
ulcus pepticum (blæðingar, holsár) var jafn
allt tímabilið, en veruleg breyting var á
tíðni í yngsta og elsta aldursflokk. 1 aldurs-
flokk 20-49 féll tíðnin úr 12.5 (100.000/ár)
í 6 en í aldursflokk 70 og eldri júkst tíðnin
úr 27 í 72 milli fyrsta og seinasta tímabils.
Veruleg breyting var í kynjahlutfalli bæði í
maga- og skeifugarnarsárum. Karl/kvenn hlut-
fallið lækkaði um meir en helming fyrstu 3
tímabilin en hækkaði aðeins aftur seinasta
tímabilið.
Ályktanir: H^-blokkar hafa verið notaðir sem
kjörmeðferð við ulcus pepticum í stað sýru-
lækkandi aðgerða frá um 1980. H2-blokkar hafa
ekki haft áhrif á heildarfjölda bráðra aðgerða
við fylgikvillum ulcus pepticum og hafa senni-
lega ekki neitt með breytingu á aldursbundinni
tíðni að gera. Breytingar á karl/kvenn hlut-
falli aðgerða við ulcus pepticum eru taldar
stafa af breyttri faraldsfræði sjúkdúmsins og
e.t.v. er lækkandi tíðni bráðra aðgerða í
aldursflokk 20-49 af sama toga. Aukin tíðni
bráðra aðgerða hjá eldri en 70 ára hefur nána
fylgni við aukna notkun á NSAID lyfjum í
þessum aldursflokki.
DE-NOL OR DE-NOL + METRONIDAZOL IN THE TREAT-
MENT OF HELICOBACTER PYLORI POSITIVE PATIENTS
WITH NON-ULCER DYSPEPSIA: SYMPTOMATIC RESPCNSE
AND ERADICATION RATE.
Einar Oddsson, Hallgrímur Guójónsson, Ásgeir
Theodórs, Siguróur Björnsson, ólafur Gunnlaugs-
son, Martin Gormsen, jóhann H. Jóhannsson,
ólafur Steingrimsson, Bjarni Pjóóleifsson,
Dept.of Medicine, Landspítalinn.
NUMBER OF PATIENTS, HP NEGATIVE
12 weeks 26 weeks
11 (37%) 9 (30%)
2 (6%) 1 (3%)
SYMPTOMATIC RESPONSE
The aim of the study was to assess the effi-
cacy of De-Nol or De-Nol + metronidazol in
the treatment of Helicobacter positive
patients with non-ulcer dyspepsia.
MATERIAL AND METHODS: Sixty-eight patients
with non-ulcer dyspepsia were randomized to
receive either De-Nol 240 mg b.d. for 28 days
+ placebo (D+P) or De-Nol 240 mg b.d. for 28
days + metronidazol 400 mg t.i.d. for 10 days
(D+M). The presence of Helicobacter pylori
(HP) was confirmed by urease test, culture
and histology at enrollment and at 12 and 26
weeks. Symptoms were recorded by the patients
on a semiquantitative scale scoring both
severity and frequency. For the purpose of
this study they are reported as healed, im-
proved or worse.
RESULTS: Sixty-eight patients came to random-
ization, 34 received D+M and 34 D+P. At 12
weeks 4 patients had dropped out in the D+M
group and 2 in the D+P group leaving 30 in
the D+M group and 32 in the D+P group.
Healed 2 Improved 9 Worse 2 12
2 36 10
7 3 0 26
1 32 18 weeks
CONCLUSIONS: Eradication of HP is significant
ly better with De-Nol and metronidazol than
with De-Nol alone. There is a good symptom-
atic improvement with both treatments at 12
and 26 weeks. Symptomatic improvement is
significantly better sustained in Helicobacter
negative patients at 26 weeks.