Læknablaðið : fylgirit - 31.07.1995, Blaðsíða 47

Læknablaðið : fylgirit - 31.07.1995, Blaðsíða 47
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 47 skyldar rannsóknir. Sá þriðji er Reynir Arngríms- son, læknir, sem rannsakar háþrýsting við fæðing- areitrun. Nýjungar eins og samband járnbúskapar og æðakölkunar og hugsanlega þýðingu andoxandi efna eins og E-vítamíns í því sambandi birtust nýlega í tímaritinu „Circulation", og var fyrsti höfundur Magnús Karl Magnússon. Þorsteinn Þorsteinsson og Nikulás Sigfússon hafa nýlega fengið styrk frá Vísindasjóði til frekari athugunar á þessu sviði. í undirbúningi eru rannsóknir á arfgengum þáttum, sem stuðla að myndun æðasjúkdóma og beinast að niðjum þeirra, sem fengið hafa krans- æðastíflu og voru í upprunalegu hóprannsókn- inni. Til viðmiðunar verða afkomendur þeirra sem ekki hafa fengið kransæðastíflu. Þessi niðja- rannsókn mun taka til fyrsta og annars ættliðar frá rannsóknarhópnunt og tæplega 6000 manns. Það er því enginn verkefnaskortur þar á bæ. Það verð- ur sem vanalega fjárskortur, sem tefur fram- kvæmdir. Af veiðimennsku — afturhvarf til Arnarfjarðar Flestöll háskólaár mín bjó ég hjá kunningja- fólki foreldra minna í Reykjavík, Agli Vilhjálms- syni, bílasala, og fjölskyldu hans. Egill var mikill veiðimaður, enda að vestan. Mágur hans, gamall togaraskipstjóri, átti lítið fjögurra manna far. Hann bauð Agli til veiða hér út á flóann, og ég fékk stundum að fljóta með. Veturinn 1934 lent- um við í miklum afla, allt ríga þorskur úti á Sviði. Það tók ekki langan tíma að fylla bátinn. Eftir að hafa nokkrum sinnum árangurslaust beðið okkur um að hætta veiðum segir formaðurinn: „Ekki læt ég ykkur sökkva bátnum undir mér, nú ræsi ég vélina." Eg man vel, að við Egill drógum báðir inn færi með þorski á, eftir að báturinn tók ferð- ina. Aflinn reyndist vera um 300 þorskar. Næsta dag voru hendur mínar ljótar útlits. Þegar ég kom heim eftir stríð höfðu Egill Vil- hjálmsson og Eggert Kristjánsson, stórkaupmað- ur, keypt jörð neðst við Laxá í Kjós, en henni fylgdu mikil veiðiréttindi. Mér var því fljótlega boðið til veiða af Agli, en Eggert Kristjánsson var góðvinur föður míns eftir áratuga viðskipti. Ekki leið á löngu, þar til Eggert fór að bjóða mér þangað líka, og smitaðist ég af laxabakteríunni. Þó tók steininn úr. þegar þeir bræður, prófessor Kristinn Stefánsson og Sæmundur, buðu mér í vikutíma til veiða í Laxá í Aðaldal. Þar með var ég alveg genginn laxaíþróttinni á hönd. Eftir þetta var ég fastur félagi í veiðihópi þeirra og eignaðist þar ágæta vini. Við lát prófessors Kristins var ég Hólmfríður Stefánsdóttir, eiginkona Sigurðar, fengsæl með tvo nýveidda laxa neðan Sjávarfossa í Laxá í S-Þingeyjarsýslu. Út-Kinnarfjöll í baksýn. kosinn formaður í hans stað. Attum við Sæmund- ur Stefánsson drjúgan þátt í byggingu nýs veiði- heimilis 1968. Ég hætti 1985 eftir 18 ára formanns- starf og laxveiðum eftir 35 surnur. Eitt sinn vorum við að veiðum neðan fossa sem kallað er. Með okkur var þekktasti og mesti veiði- maðurinn í dalnum og jarðeigandi þar. Honum lá oft hátt rómur. Hann setur í fisk, sem leggst fastur í botn. Loks losnar hann, og veiðimaður hrópar hátt: „Þetta er helvítis bolti.“ Fiskurinn sígur hægt niður ána, en hrópin fara lækkandi, og síðast er alveg þögn. Var þá farið að athuga „boltann“. Hann reyndist útvatnaður saltfiskur, sem auðsjá- anlega hafði losnað úr fláti frá bæ ofan við ána. Veiðimaðurinn fékk ýmislegt að heyra. Þorsteinn Scheving Thorsteinsson lyfsali var í veiðigenginu. Neðan fossa var hylur í laginu eins og djúpur pollur eða hola. Við kölluðum hana gjarnan „Idjótaholuna", enda flaxaði færið þar fram og aftur og ekkert sást til fisks. Þar vildi ég aldrei renna, en Scheving sat þar löngum og helst, ef hann hafði áheyranda að sögum sínum. Sökum sjóndepru þurfti hann alltaf mann með sér. Einu sinni þegar hann var þarna að iðju sinni, segir leiðsögumaður hans: „Scheving, hann er kominn á hjá þér.“ „Mér er nú sama um það, ég klára söguna,“ sagði Scheving, en laxinum náði hann. Þegar við Scheving vorurn saman sagðist hann skyldu kenna mér að fiska í „Idjótaholunni".

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.