Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 31
23
legt næmi frumu- og vefjarannsóknar var 80%,
þegar báðar gerðir sýna voru teknar.
Sextíu og fimm sjúklingar greindust með illkynja
sjúkdóm í lungum. Þar af höfðu, samkvæmt fyrstu
niðurstöðum, 28 kirtilmyndandi krabbamein, 12
flöguþekjukrabbamein, 10 smáfrumukrabbamein,
fimm illa þroskuð æxli, einn adenosquamous æxli og
einn carcinoid æxli. Að auki höfðu sex meinvörp í
lungum, einn iðraþekjuæxli (mesothelioma) og einn
eitlaæxli (lymphoma). Meðal þeirra sjúklinga þar
sem bæði frumu- og vefjarannsóknin gáfu neikvætt
svar, greindust 13 síðar með illkynja sjúkdóm í lung-
um; 10 við aðgerð, aðrir með opinni vefsýnitöku,
miðmætisspeglun (mediastinoscopy) og fínnálar-
ástungu.
Athyglisvert er að kirtilmyndandi æxli voru lang-
stærsti vefjaflokkur lungnaæxla hjá þessum sjúk-
lingahópi. Hugsanlegt er að einhverþeirra æxla sem
talin voru kirtilmyndandi lungnakrabbamein hafi í
raun verið meinvörp. Vefjarannsókn reyndist hér
mun næmari rannsóknaraðferð en frumurannsókn,
en aðferðirnar bættu hvor aðra upp. Sennilega má
bæta greiningarárangurinn með því að taka fleiri
gerðir af sýnum til frumurannsóknar í völdum tilfell-
um, svo sem berkjuskol eða stungusýni.
E-21. Samanburður á
öndunarmælingum og þolprófum
heilbrigðra og sjúklinga með
hryggikt
Björn Magnússon*, Kári Sigurbergsson*, Marta
Guðjónsdóttir*, KristínLeifsdóttir*, Kristján Steins-
son**, Arni J. Geirsson**
Frá *Reykjalundi, **Landspítalanum
Inngangur: Andrýmd (VC) sjúklinga með hrygg-
ikt (spondylitis ankylopoetica, SA) getur lækkað
vegna skerðingar á hreyfanleika brjóstkassa. Vís-
bendingar eru og um minnkaðan kraft innöndunar-
vöðva, vægan starfsvefjar- og smáloftvegasjúkdóm.
Óljóst er hvort og hvernig þessar breytingar hafa
áhrif á þol og ekki er vitað hvort þolþjálfun breytir
framrás sjúkdómsins. Markmið okkar er að meta
áhrif hryggiktar og þjálfunar á öndun og þol.
Efniviður og aðferðir: Til rannsóknar voru teknir
30 einstaklingar með hryggikt og viðmiðunarhópur á
sama aldri, af sama kyni og í sambærilegri þjálfun.
Öndunarmælingar voru framkvæmdar; blásturs-
próf, flæðilykkja, rúmmálsmælingar (TLC, RV og
FRC), mótstöðumælingar loftvega og loftdreifipróf.
Á stigvaxandi þolprófi var mæld öndun (VE), kol-
tvísýringsútskilnaður (VCÖ2) og súrefnisupptaka
(VO:) að hámarki (VO, hámark). Mældur var
hreyfanleiki hryggjar (Schober) og brjóstkassa.
Niðurstöður: Tuttugu einstaklingar eru til þessa í
viðmiðunarhópi. Meðal hryggiktarsjúklinga er VC
og TLC lækkað, VC (SA) 4,7±11 en VC (viðmið)
5,6±0,9 1 (P<0,01), TLC (SA) 6,5±11 en TLC (við-
mið) 7,4±1 1 (P<0,05). Þol var svipað en VE há-
mark lækkað í hryggiktarhópnum vegna skerts and-
ardráttar (tidal volume, VT). VO; hámark mældist
47±17 ml/kg meðal þjálfaðra en 34±8 ml/kg meðal
óþjálfaðra hryggiktarsjúklinga (P<0,05). Fylgni var
á milli VC og hreyfanleika brjóstkassa (r=0,749) og
milli VC og VO; hámark (r=0,697) en ekki milli
hreyfanleika brjóstkassa og V02 hámarks. Þá var
samband milli hreyfanleika brjóstkassa og VT-há-
marks.
Alit: Einstaklingar með hryggikt í rannsókn okkar
hafa væga herpu en eðlilegt þol. Þolþjálfun eykur
þol þeirra án þess að hafa áhrif á hreyfanleika brjóst-
kassa eða niðurstöður öndunarmælinga. Skertur
brjósthreyfanleiki hafði ekki áhrif á þol en skýrir
lækkun öndunar við hámarksálag.
E-22. Interferon-gamma is necessary
for granuloma formation in a model
of Hypersensitivity Pneumonitis
Gunnar Guðmundsson, Gary W Hunninghake
University oflowa College ofMedicine and Veterans
Administrations Medical Center, lowa City, Iowa,
USA
Farmers lung disease is a common form of Hyper-
sensitivity Pneumonitis(HP). Cell-mediated im-
munity is thought to be important in the pathogenes-
is of the disease, an result of which is granuloma
formation. The role of various cytokines in granu-
loma formation in this disease has not been well
studied. In our studies we used mice that have a
gene knockout for Interferon-gamma (GKO) to stu-
dy it’s role in the pathogenesis of HP. GKO mice
and wildtype (WT) littermates on a BALB/c back-
ground were exposed to 150 ug of the thermophilic
bacteria Micropolyspora faeni or saline alone, for
three consecutive days a week, for three weeks. The
installations were done intranasally under light an-
esthesia. Mice were sacrificed four days after the last
exposure. Groups of mice underwent bronchoal-
veolar lavage (BAL), or were analyzed for histology
or lung index as measure of permeability. GKO
mice exposed to the bacterial antigen had an increa-
se in total BAL cells, that was not different from the
wild type littermates that were also exposed to anti-
gen. On differential count of the BAL cells, the
GKO mice had a higher percentage of lymphocytes,
compared to the wild type mice. They also had a
higher lung index. Histology showed minimal in-
flammation with no granulomas in the GKO mice
while the WT mice had severe inflammation with
granuloma formation.
These results show that Interferon-gamma is
important in granuloma formation in this mouse
model of HP. Other factors seem to play a role in
cell recruitment and permeability.