Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Síða 76

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Síða 76
68 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 31 hér er sama vel afmarkaða þýðið, það er öll íslenska þjóðin, rannsökuð bæði með tilliti til tíðni bráðaað- gerða, valaðgerða og dánartíðni. Aðferðir: Upplýsingar voru fengnar um alla þá sjúklinga á Islandi sem gengust undir bráðaaðgerðir vegna holsára á árunum 1962-1990 og blæðandi sára á árunum 1971-1990 í maga og skeifugörn. Einnig um allar valgerðir sem gerðar voru vegna sársjúk- dóms (1971-1990). Fjöldi látinna vegna holsára og blæðandi sára í maga og skeifugörn var skráður fyrir árin 1951-1989. Ahrif aldurs, fæðingarárs og aðgerð- ar-/dánarárs á tíðni/dánartíðni voru greind með Poisson aðhvarfsgreiningu. Niðurstöður: Módel sem innfelur aldur og fæðing- arár getur skýrt breytingar á tíðni/dánartíðni fyrir holsár og blæðandi sár, en tíðnin breytist ekki háð aðgerðar-/dánarári. Hæst verður bæði tíðni og dán- artíðni hjá kynslóðinni sem fædd var 1900-1909. Tíðni valaðgerða er tengd fæðingarári en einnig mjög háð aðgerðarári og fer þeim aðgerðum fækk- andi allt tímabilið. Ályktanir: Tíðni aðgerða og dánartíðni vegna holsára og blæðandi sára í maga og skeifugöm er háð fæðingarári, nær hámarki hjá fólki fæddu 1900-1909. Skýringar er því helst að finna í umhverfi einstak- linganna snemma á ævinni og verða vegna áhrifa sem fylgja þeim alla ævina. Valaðgerðum fór fækk- andi allt tímabilið en H2-blokkar komu fram á því miðju. V-38. Úthreinsun með polyethylene glycol og natríumfosfati fyrir ristilspeglun Samanburður á líðan sjúklinga Sigrún Sœmundsdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Vilborg Kristjónsdótdr, Ásgeir Theodórs, Kjartan Örvar Frá speglanadeild og lyflœkningadeild St. Jósefs- spítala, Hafnarfirði Iiakgrunnur: Ristilspeglun er kjörrannsókn á ristli. Gæði rannsóknar er í beinu sambandi við vel úthreinsaðan ristil. Undanfarin ár hefur nær ein- göngu verið notað polyethylene glycol upplausn til úthreinsunar, sjúklingur þarf þá að drekka allt að sex lítra af vökva. Magn úthreinsivökva með nat- ríumfosfati er um 90ml. Niðurstöður nýlegara rann- sókna benda til þess að úthreinsun með natríumfos- fati skili sambærilegum árangri og polyethylene glycol upplausnin. Tilgangur rannsóknar var að bera saman líðan sjúklinga meðan úthreinsun fór fram með polyethylene glycol eða natríumfosfati. Aðferð: Rannsóknin var framvirk einblind rann- sókn þar sem 60 sjúklingar (18-75) voru valdir í slembiúrtaki, 30 sjúklingar fengu polyethylene glycol og 30 fengu natríumfosfat. Enginn sjúkling- anna hafði áður farið í úthreinsun fyrir ristilspeglun. Hjúkrunarfræðingur undirbjó sjúkling og bað hann um að fylla út spurningalista þar sem eftirfarandi atriði komu fram, A: Hvernig sjúklingur þoldi út- hreinsunina, B: Spurningar um átta mismunandi einkenni, C: Hvernig hreinsivökvinn bragðaðist, D: Hvort sjúklingur missti hægðir, E: Hvort sjúklingur gæti hugsað sér sömu hreinsiaðferð aftur. Niður- stöðunum var síðan gefið vægi á skalanum 1-5 þar sem 1 var vel þolanlegt og 5 var ill þolanlegt. Niðurstöður: Hóparnir tveir voru sambærilegir með tilliti til kyns og aldurs. Heildarstig fyrir óþæg- indi hjá sjúklingum þar sem notað var polyethylene glycol var 21,8 og 15,9 hjá þeim sem fengu natríum- fosfat. Af kvörtunum var slappleiki mun algengari hjá þeim, sem notuðu polyethylene glycol (p<0,05). Mestur varð munurinn á hvort viðkomandi sjúkling- ur hefði lokið við hreinsivökvann, natríumfosfat 1,2 en 2,5 fyrir pólýetýlene glýkól. Ógleði, uppköst, kviðverkir, endaþarmsóþægindi og hægðamissir voru svipuð í báðum hópum. Allir (100%) sem fengu natríumfosfat voru reiðubúnir til þess að nota sömu hreinsiaðferð aftur en aðeins 20% af þeim sem not- uðu polyethylene glycol. Ályktun: Natríumfosfat virtist auðveldari út- hreinsun fyrir sjúklinga sem gangast undir ristil- speglun. Minna magn hreinsivökva fyrir sjúklinga hefur ótvíræðan kost, sérstaklega í tilvikum þar sem endurtekna ristilspeglana er þörf. V-39. Pseudoachalasia Prjú sjúkratilfelli Kjartan Örvar*, Nick Cariglia**, Ólafur Gunnlaugs- son***, Ásgeir Tlieodórs*. Frá *lyflœkningadeildum St. Jósefsspítala, Hafnar- firði*, **Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og ***Sjúkrahúss Reykjavíkur Bakgrunnur: Pseudoachalasia er mjög sjaldgæf ástæða fyrir kyngingarerfiðleikum en orsökin er yfir- leitt krabbameinsvöxtur umhverfis neðri hring- vöðva í vélinda (LES). Það er oft erfitt að greina pseudoachalasia frá achalasia en talið að hár aldur sjúklinga og stutt tímalengd einkenna bendi frekar til pseudoachalasia. Aðferð: Sjúkraskrár og rannsóknir voru skoðaðar hjá þremur sjúklingum sem greindust með pseu- doachalasia á lyflækningadeild St. Jósefsspítalans í Hafnarfirði. Niðurstaða: Á árinu 1995 greindust þrír sjúklingar (tvær konur og einn karl) með pseudoachalasia. Meðalaldur var 53 ár (29-73). Allir höfðu fundið fyrir kyngingarerfiðleikum sem fyrsta einkenni og hafði það staðið að meðaltali í sjö mánuði ( fimm til 10). Fyrsta magaspeglun greindi ekki sjúkdóminn rétt en endurtekin speglun með sýnatöku gaf rétta greiningu hjá tveimur en hjá einum fékkst ekki rétt greining fyrr en með aðgerð. Hjá öllum þremur var röntgenrannsókn talin benda til achalasia.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.