Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Blaðsíða 43

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Blaðsíða 43
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 31 39 during cold exposure or after exercise, when comp- ared with respective isotope values before treat- ment. Doppler echocardiography on seven of the 10 patients, showed an increase in Left ventricular end-diastolic diameter, fractional shortening, and left ventricular outflow tract veloci- ty, after long-term diltiazem treatment. There was, however, no change in heart rate or blood pressure. Conclusion: These data indicate that long-term diltiazem treatment does not increase myocardial perfusion at rest, post-exercise or during cold expos- ure. On the other hand long-term diltiazem treat- ment may augment left ventricular function by in- creasing diastolic filling and thus improve left vent- ricular performance. E-58. Nýgengi og algengi þykknunar á vinstri slegli og afdrif einstaklinga með slíka þykknun Hóprannsókn Hjartaverndar Inga S. Þráinsdóttir, Þórður Harðarson, Guðmund- ur Þorgeirsson, Helgi Sigvaldason, Nikulás Sigfús- son Frá lyflœkningadeild Landspítalans, Rannsóknar- stöð Hjartaverndar Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna algengi og nýgengi þykknunar á vinstri slegli og athuga af- drif fólks með slíka breytingu samkvæmt hjartaraf- riti. Einnig að meta áhættuþætti í þessum hópi og forspárþætti um tilurð þykknunarinnar. Rannsóknin náði til einstaklinga í fyrstu fimm áföngum Hóprannsóknar Hjartaverndar, samtals 9139 karla og 9773 kvenna. Algengi þykknunar á vinstri slegli, metið með hjartarafriti, var3,2% með- al karla og 0,5 % meðal kvenna en nýgengi var 25 á 1000 fbúa á ári meðal karla og 6 á 1000 íbúa á ári meðal kvenna. Nýgengi og algengi jukust með aukn- um aldri. (Líkindahlutfall (odds ratio) meðal karla var 1,05, öryggismörk 1,04-1,06, líkindahlutfall meðal kvenna 1,09, öryggismörk 1,06-1,12). Mark- tæk fylgni þykknunar á vinstri slegli var við ýmsa áhættuþætti meðal annarra aldur og blóðþrýsting. Forspárþættir um tilurð þykknunar á vinstri slegli voru aldur, slagbilsþrýstingur, taka blóðþrýstings- lækkandi lyfja, reykingar og ártal skoðunar meðal karla en aldur, slagbilsþrýstingur og reykingar með- al kvenna. Áhætta karla með þykknun á vinstri slegli á krans- æðadauða var ekki marktækt aukin eftir að leiðrétt hafði verið fyrir aldri, skoðunarári og ýmsum áhættuþáttum. Áhættuhlutfallið var 1,17 en áhættu- mörk 0,84-1,64. Áhættuhlutfall kvenna fyrir krans- æðadauða var hins vegar 3,07 og voru áhættumörkin 1,50-6,31 eftir að leiðrétt hafði verið fyrir áhættu- þáttum. Við ályktum að þykknun á vinstri slegli, metin með hjartarafriti, sé tengd háum blóðþrýstingi með- al beggja kynja og forspárþáttur um tilkomu þess sé hár blóðþrýstingur, einnig reyndist aukin tíðni kransæðadauða meðal kvenna með slíka breytingu. E-59. Algengi og nýgengi á insúlínóháðri sykursýki Óbreytt nýgengi meðal íslenskra karla og kvenna 1967-1991. Hóprannsókn Hjartaverndar Sigurjón Vilbergsson*,**, Gunnar Sigurðs- son**,***, Helgi Sigvaldason****, Ástráður B.Hreiðarsson*****, Nikulás Sigfússon** Frá *lœknadeild HÍ, **Rannsóknarstöð Hjarta- verndar, ***lyflœkningadeild Borgarspítalans, ****Verkfrœðiskrifstofu Helga Sigvaldasonar, *****göngudeild sykursjúkra Landspítalanum Aðaltilgangur þessarar rannsóknar var að meta algengi og nýgengi á insúlínóháðri sykursýki (NIDDM) á íslandi og athuga hvort breyting hafi orðið á þessum 20 árum sem rannsóknin nær yfir. Einnig voru helstu áhættuþættir fyrir tilurð insúlín- óháðrar sykursýki ákvarðaðir með fjölþáttagrein- ingu. Þýðið í þessari rannsókn voru 9128 karlar og 9759 konur fædd 1907-1935 og skoðuð í Hóprannsókn Hjartaverndar á árunum 1967-1991. Karlarnir voru því á aldrinum 33-79 ára og konurnar á aldrinum 34-81 árs. Spurningakver Hjartaverndar og sykur- þolspróf voru notuð til grundvallar á greiningu insú- línóháðri sykursýki. Aldursstaðlað algengi reyndist 2,7% (95% CI 2,3-3,2) fyrir karla og 2,0% (95% CI 1,7-2,3) fyrir konur í aldurshópnum 30-79 ára. Út frá þessum niðurstöðum gátum við reiknað út að um 2300 karlar og 1900 konur ættu að hafa insúlínóháða sykursýki á íslandi í dag. Aldurstaðlað nýgengi reyndist vera 345/100.000 á ári (95% CI 279-410) fyrir karla en 240/100.000 á ári (95% CI 193-287) fyrir konur í aldurshópnum 35-74 ára. Einnig gátum við reiknað út frá nýgengistölunum að um 230 karlar og 180 konur greinast með insúlínóháða sykursýki á ári hverju, eða rúmlega einn einstaklingur á dag. Mun- urinn á körlum og konum fyrir algengi og nýgengi var tölfræðilega marktækur (p<0,01). Hvorki ný- gengi né algengi reyndist fara vaxandi frá 1967-1991. Aldur, fjölskyldusaga um sykursýki, skert sykurþol, háþrýstingur, þyngdarstuðull (BMI) og þríglýseríð- ar reyndust allir vera sjálfstæðir áhættuþættir fyrir tilurð sykursýki. Okkar niðurstöður benda til að algengi insúlín- óháðrar sykursýki virðist eitthvað lægra eða svipað hér á landi og á Norðurlöndunum og öðrum vestrænum löndum. Nýgengi insúlínóháðrar sykursýki virðist vera stöðugt á rannsóknartímanum en það eru sterkar vís- bendingar um að það fari vaxandi í öðrum vestrænum löndum og ekki síst þróunarlöndunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.