Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Side 30
28
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 31
Efniviður og aðferðir: Sextíu sjúklingar með melt-
ingarsár, 41 karl og 19 konur á aldrinum 31-72 ára,
voru teknir til meðferðar. Prjátíu sjúklingar fengu
upphaflega DMA (DeNol® colloid bismuth subcitr-
ate, metrónídazól, ampicillín og 30 sjúklingar fengu
DMT (DeNol®- colloid bismuth subcitrate, met-
rónídazól, tetracýklín) til þess að uppræta H. pylori.
Við eftirlit einu ári síðar voru 53 sjúklingar (88%) H.
pylori neikvæðir. Þessum sjúklingum var síðan fylgt
eftir í langtímaeftirliti. Tekin voru viðtöl og gerðar
líkamsskoðanir á sjúklingunum og holsjárskoðanir á
efri hluta meltingarvegar, CLO-rannsókn (quick ur-
ease test) á vefjasýnum frá magahelli og magabol og
vefjarannsókn með litun fyrir H. pylori.
Niðurstaða: Enginn af þeim 53 sjúklingum, sem
reyndist H. pylori neikvæðir eftir fyrsta árið frá upp-
rætingu, fékk endursýkingu. Karlar voru 37 og kon-
ur 16 á aldrinum 32-73 ára, meðalaldur 53 ár. Eftir-
litstími var frá 12 mánuðum til 60 mánaða, meðaltal
36 mánuðir. Enginn sjúklinganna greindist með æti-
sár á eftirlitstímanum og flestir voru einkennalausir.
Tíu sjúklingar sem höfðu bakflæðilík einkennifengu
bót einkenna með einfaldri bakflæðismeðferð.
Ályktanir: 1. Enginn sjúklinganna fékk H. pylori
endursýkingu eftir fyrsta árið frá upprætingarmeð-
ferð. 2. Engin ætisár greindust hjá sjúklingunum á
eftirlitstímabilinu. 3. Bót á einkennum er í góðu
samræmi við upprætingu á H. pylori og græðslu
ætisára. 4. Lengra eftirlit er nauðsynlegt til ákvarða
frekar um varanlega lækningu á H. pylori og ætisár-
um hjá sjúklingum.
E-33. Helicobacter pylori,
samanburður á tveggja og fjögurra
vikna meðferð
Helgi Kr. Sigmundsson*, Kjartan Örvar*, Ásgeir
Theodórs* ,**
Frá Hyflœkningadeild, St. Jósefsspítala, Hafnarfirði,
**lyflœkningadeild Sjiikrahúss Reykjavíkw
Inngangur: Meðferð á Helicobacter pylori (H.
pylori) sýkingu með fjöllyfjameðferð í fjórar vikur er
vel þekkt. Niðurstöður margra rannsókna benda til
þess að stytta megi meðferðartímann og ná sambæri-
legum árangri. Tilgangur þessarar rannsóknar var
að bera saman meðferð við H. pylori sýkingum með
DMT (DeNol®-colloid bismuth subcitrate (CBS),
metrónídazól, tetracýklín) í tvær vikur annars vegar
og fjórar vikur hins vegar. Sjúklingarnir höfðu ekki
verið meðhöndlaðir áður gegn H. pylori sýkingu.
Aðferðir: Á tímabilinu septemer 1992 til júní 1994
var gerð framskyggn slembirannsókn á sjúklingum
með ætisár og magabólgur og H. pylori jákvæða
slímhúð í magahelli (antrum). Fjörtíu og átta sjúk-
lingar, 24 konur og 24 karlar, völdust í rannsóknina
eftir holsjárrannsókn (EGD) á efri hluta meltingar-
vegar. Slembiröðun réði hvort þeir fengu DMT í
tvær vikur (CBS í 14 daga, metrónídazól 10 daga,
tetracýklín 14 daga) eða fjórar vikur (CBS í 28 daga,
metrónídazól 10 daga, tetracýklín 14 daga). Hóparn-
ir voru sambærilegir. Aldursdreifing var 19 til 85 ár,
meðalaldur 52,7 ár. EGD var endurtekin fimm til
sex vikum og/eða 12-24 mánuðum eftir DMT með-
ferð. Við EGD skoðun var tekið vefjasýni í CLO®
rannsókn (quick urease test) og vefjasýni til sérlitun-
ar fyrir H. pylori.
Niðurstöður: Uppræting H. pylori varð hjá 22
(91,7%) sjúklingum í tveggja vikna hópnum og hjá
24 (100%) í fjögurra vikna hópnum. Allir sjúkling-
arnir í báðum hópum luku áætlaðri meðferð án
meiriháttar fylgikvilla. Upprætingarhlutfall sjúk-
linganna allra var 95,2%. Ekki var tölfræðilegur
munur á hópunum (óparað t-próf: p-gildi > 0,05)
varðandi upprætingu á H. pylori.
Ályktanir: 1. Tveggja vikna meðferð með DMT
virðist fullnægjandi til að uppræta H. pylori. 2. DMT
meðferð þolist jafn vel, hvort sem hún er gefin í tvær
eða fjórar vikur. 3. Enginn tölfræðilegur munur er á
árangri tveggja vikna og fjögurra vikna DMT með-
ferðar.
E-34. Helicobacter pylori,
samanburður á sjö og 14 daga
meðferð
Hjalti Már Björnsson*, Kjartan Örvar**, Ásgeir
Theodórs**, ***
Frá *Háskóla íslands, **lyflœkningadeild St. Jósefs-
spttala, Hafnarfirði, ***Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Inngangur: Helicobacter pylori (H. pylori) er
baktería sem býr um sig í magaslímhúð og er talin
eiga þátt í meinmyndun meltingarsára. Meðferð til
upprætingar á H. pylori hefur breyst mikið á undan-
förnum 10 árum. Sjö daga meðferð með vissum lyfja-
samsetningum er viðtekin venja. Á íslandi hefur
verið algengt að nota DMT (De-Nol® -colloid bis-
muth subcitrate í 28 daga, metrónídazól í 10 daga og
tetracýklín í 14 daga) sem hefur upprætt sýkingu í
yfir 95% tilvika. Svipuð reynsla er af notkun þessar-
ar lyfjasamsetningar í 10 til 14 daga. Meðferð í styttri
tíma með þessum lyfjum hefur ekki verið reynd hér á
landi. Markmið rannsóknarinnar var að bera saman
sjö daga og 14 daga DMT-meðferð til að uppræta H.
pylori.
Aðferðir: Framsýn slembirannsókn var fram-
kvæmd frá janúar 1994 til janúar 1996. Sextíu og
fjórir sjúklingar tóku þátt í rannsókninni. Meltingar-
sár höfðu 57 sjúklingar og sjö höfðu miklar maga-
bólgur. Allir sjúklingarnir voru með H. pylori já-
kvæða slímhúð í magahelli (antrum) og fengu með-
ferð með DMT í sjö daga (N=31) eða 14 daga
(N=33) eftir að sárin höfðu verið grædd með prót-
ónudælu-hemli (PPI). Sjúklingar notuðu engin sýru-
hamlandi lyf á meðan á DMT-meðferð stóð. Að
minnsta kosti fjórum vikum eftir lok DMT-meðferð-
ar gengust þátttakendur undir holsjárskoðun af efri