Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1996, Side 44
40
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 31
E-60. Dánartíðni og tengsl við
kransæðasjúkdóm meðal íslenskra
karla og kvenna með insúlínóháða
sykursýki
Hóprannsókn Hjartaverndar
Sigurjón Vilbergsson*,**, Gunnar Sigurðs-
son**,***, Helgi Sigvaldason****, Nikulás Sigfús-
son**
Frá *lœknadeild HÍ, **Rannsóknarstöð Hjarta-
verndar, ***lyflœkningadeild Borgarspítalans,
****Verkfrœðiskrifstofu Helga Sigvaldasonar
Dánartíðni og tengsl við kransæðasjúkdóm þeirra
sem greinst hafa með insúlínóháða sykursýki
(NIDDM) hefur verið athuguð. Þessi rannsókn er í
raun framhald af rannsókn á algengi og nýgengi á
insúlínóháðri sykursýki meðal íslenskra karla og
kvenna á aldrinum 33 til 81 árs.
Rannsóknarþýði voru þeir sem mættu að minnsta
kosti einu sinni í hóprannsókn Hjartaverndar í fyrsta
til fimmta áfanga, 9139 karlar og 9773 konur. Upp-
lýsingar fengnar við fyrstu rannsókn hvers einstak-
lings voru notaðar. Karlar voru fæddir 1907-1934 og
skoðaðir 1967-1987 og voru því á aldrinum 33 til 79
ára við skoðun. Konur voru fæddar 1908-1935 og
skoðaðar 1968-1991 og voru þvf á aldrinum 34-81 árs
við skoðun. Dánarorsakir og dánardægur fram til
ársloka 1992 voru fengnar frá Hagstofu Islands.
Meðaláhættutími var 16,0 ár (hámark 25,4 ár)
fyrir karla og 15,1 ár (hámark 24,4 ár) fyrir konur.
Heildarfjöldi látinna af öllum orsökum á áhættu-
tímabili voru 2343 karlar og 1289 konur. Af þeim
sem ekki höfðu sykursýki létust úr kransæðastíflu
842 (38,1%) karlar og 254 (25,8%) konur en 58
(43,6%) karlar og 23 (44,2%) með insúlínóháða
sykursýki.
Áhættuhlutfall einstaklinga með insúlínóháða
sykursýki á kransæðadauða reyndist 2,1 (95% CI
1,6-2,8) hjá körlum en 2,3 (95% CI 1,5-3,7) hjá
konum, þegar var leiðrétt fyrir aldri, reykingum,
kólesteróli, þríglýseríðum og systólískum blóðþrýst-
ingi. Ekki er hér um tölfræðilegan marktækan mis-
mun að ræða milli karla og kvenna. Ef reiknað var
með að einstaklingur greindist með sykursýki um
fimmtugt og litið á lífshorfur þessa einstaklings 20
árum síðar voru þær 58,3% fyrir karla og 77,5% fyrir
konur miðað við 75,9% og 84,9% fyrir einstaklinga
sem ekki hafa sykursýki.
Sykursjúkir einstaklingar með insúlínóháða syk-
ursýki hafa rúmlega tvöfalda áhættu á kransæða-
dauða sem tengd verður sjálfri sykursýkinni. Lífs-
horfur sykursjúkra eru verulegar skertar þar sem
meðalævi styttist um nálega 5,5 ár ef viðkomandi
greinist um fimmtugt með insúlínóháða sykursýki.
E-61. Notkun tíðahvarfahormóna
meðal íslenskra kvenna
Harpa M. Leifsdóttir*, Birna Guðmundsdóttir**,
Laufey Tryggvadóttir**, Ástráður B. Hreiðarsson**
Frá *lyfjafrœði lyfsala HÍ, **Leitarstöð Krabba-
meinsfélags íslands
Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöld-
um byggðum á sölutölum og skilgreindum dags-
skömmtum hefur notkun tíðahvarfahormóna fimm-
faldast hér á landi á árunum 1985-1995 og er ísland
nú þriðja í röðinni af Norðurlöndunum næst á eftir
Svíþjóð og Finnlandi hvað snertir notkun þessara
hormóna.
Tilgangur rannsóknar þessarar var að kanna út-
breiðslu og notkunarmynstur tíðahvarfahormóna
hjá fslenskum konum.
Rúmlega 30 þúsund konur heimsóttu Leitarstöð
K.í. árið 1995 og fjórðungur þeirra var spurður um
notkun tíðahvarfahormóna. Af konum eldri en 40
ára (n=4751) höfðu 46% notað hormónana. Af
þeim notuðu 67% hormón við komu á leitarstöðina
en 33% voru hættar notkun. Ef tekið er tillit til hvort
konur eldri en 40 ára voru komnar í tíðahvörf þá
höfðu 57% notað tíðahvarfahormóna.
Af konum eldri en 40 ára höfðu 15% gengist undir
legnám. Af þeim höfðu 72% notað hormóna saman-
borið við 41% þeirra sem voru með leg (p=s0,001).
Algengast var að konur með leg notuðu kaflaskipta
meðferð (55%), því næst samfellda meðferð með
östrógeni og prógestógeni (24%) en 14% tóku östró-
gen eingöngu. Af konum sem höfðu gengist undir
legnám voru 73% á östreógenmeðferð eingöngu en
17% á kaflaskiptri og 8% á samfelldri östrógen-
prógestógenmeðferð. Stærra hlutfall kvenna án legs
(55%) hafði notað tíðahvarfahormóna í meira en
fimm ár samanborið við konur með leg (35%)
(ps=0,001). Kaflaskipt meðferð var algengust hjá
yngri konum en samfelld östrógen- prógestógen-
meðferð hjá þeim eldri.
Þegar gáð var að konum sem höfðu hætt notkun
tíðahvarfahormóna kom í ljós að um þriðjungur
hafði hætt meðferð innan árs. Því eldri sem konurn-
ar voru við upphaf meðferðar, þeim mun skemur
virtust þær tolla á meðferð.
E-62. Skert kortisólviðbragð hjá
sjúklingum með iktsýki
Björn Guðbjörnsson*,**, Britt Skogseid**, Kjell
Öberg**, Leif Wide***, Roger Hállgren**
Frá *lyflœkningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri, **lyflœkninga- og ***rannsóknardeild Aka-
demiska sjúkrahússins, Uppsölum, Svíþjóð
Markmið: Rannsaka heiladinguls-nýrnahettu ás-
inn hjá sjúklingum með virka iktsýki.
Aðferð: Rannsakaðir voru 18 sjúklingar með
ómeðhöndlaða iktsýki og aldurs- og kynparaðir 16