Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Page 34

Sagnir - 01.10.1983, Page 34
fræðinnar.“35 Ingi Sigurðsson á við það sama þegar hann segir að engin vísinda- grein fái þrifist án sögulegrarþekkingar36og að allar aðrar vísindagreinar tengist sagn- fræðinni, séu reyndar viðfangsefni hennar og því hljóti „sögulegar skýringar að hafa gildi í öllum vísindum“.37 Ingi tekur sem dæmi að við rannsóknir í öðrum greinum sé byggt á þekkingu sem þegar hafi verið aflað þar. Til að sú þekking hafi hagnýtt gildi verði menn að vita hvernig hennar var aflað. Því sé gjarnan sögulegt yfirlit yfir fyrri rannsóknir í ritgerðum og rannsókna- niðurstöðum úr náttúru- og raunvísindum. Arthur Marwick lítur á sagnfræði sem þátt af hinni almennu þekkingarleit mannsins. Eða eins og hann segir þá er sagnfræði [—] alongside the humanities, the social sci- ences, and the natural sciences, a part of man’s broad attack upon what is not yet known, a participant in man’s struggle to understand his environment, physical, tem- poral and social.38 D. Sérstaða sagnfræðinnar. Eitt gildi sagnfræðinnar er það að engin önnur grein getur komið í stað hennar eins og Ingi Sigurðsson bendir á: Skipta má sögulegum viðfangsefnum í undir- flokka á ýmsa vegu, og skal hér getið um þrenns konar skiptingu. I fyrsta lagi: skipting í tíma - eftir tímabilum. Að þessu leyti getur engin vísindagrein hlaupið í skarðið fyrir sagnfræðina. í öðru lagi: í rúmi - eftir svæðum. Hér koma tengsl sagnfræði og landafræði vitaskuld til álita. En við sjáum að söguleg landafræði, eins og hún er iðkuð í raun, fæst ekki við almenna sögu einstakra svæða - sagnfræðin situr í raun einnig ein að því verkefnasviði. En þá kemur þriðja skipt- ingin: eftir sviðum mannlegs atferlis - það er þessi skipting, sem oftast er átt við, þegar talað er um undirgreinar sögunnar. Hér gegnir öðru máli en um fyrri skiptingarnar tvær: hér skarast verkefnasvið sagnfræðinnar við verkefnasvið hverrar einustu fræðigreinar annarrar.w Af þessu dregur Ingi þá ályktun að [—] þótt aðrar greinar fjalli um einstaka þætti liðinnar tíðar - hagfræði um hagsögu, stærð- fræði um stærðfræðisögu, heimspeki um heimspekisögu o.s.frv. - þá eigi sagnfræði ótvíræðan rétt á sér sem sjálfstæð fræðigrein, vegna þess að hún tengir saman hina ólíku þræði og myndar vef, skapar heildarmynd á þann hátt, sem engin önnur vísindagrein fær Ef við erum mjög efagjörn þá getum við samt sem áður spurt hvaða rök við höfum fyrir því að viðhalda sagnfræðinni - og rannsóknum þar með - þrátt fyrir sérstöðu hennar. Þá er hægt að benda á sjálfgildið eða að segja eins og Gunnar Karlsson að rökin [...] fyrir því að hafa sagnfræði gætu þá verið þau að það sé til þjóðfélagslegur veruleiki of flókinn og margbrotinn til þess að unnt sé að ná til hans með vísindalegum aðferðum, en samt [—] þess virði að við reynum að gera okkur einhverja hugmynd um hann.41 Auk þess virðist mér að liðir B og C geri kröfu til þess að rannsóknir séu stundaðar. Samantekt. Ör tækniþróun og miklar framfarir í raunvísindum á þessari öld hafa ýtt mjög undir það sjónarmið að leggja strangan hagnýtingarmælikvarða á hugvísindagrein- ar, þar á meðal sagnfræði. Hefur þetta, ásamt því að þær hafa ekki þótt nógu „vís- indalegar", átt mikinn þátt í því að setja hugvísindi í varnarstöðu. Því er ekki aðeins forvitnilegt að athuga lítillega hvernig sagn- fræðingar réttlæta grein sína nú, heldur nauðsynlegt að menn hætti að líta á ein- kenni greinar sinnar sem feimnismál (m.a. af því að hún sé ekki nógu „vísindaleg") og snúi vörn í sókn. Helgi Skúli Kjartansson segir að sögu- þekking hafi sjálfstætt menningarlegt gildi, hann hafi áhuga á fortíðinni, trúi á sannleik- ann sem siðferðilegt mæti og aðhyllist rann- 32

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.