Sagnir - 01.10.1983, Blaðsíða 13
sem koma í framhaldsskóla, fari hrakandi.
Það eru ótrúlegustu atriði, sem fólk virðist
ekki kunna skil á. Vonandi hefur í staðinn
komið meiri reynsla við samningu ritgerða
um afmörkuð efni, vinna á söfnum o.s.frv.
Stefán Hjálmarsson:
Ég tel þetta óheillavænlega þróun. í
flestum ef ekki öllum löridum er sögu lands og
þjóðar gert hátt undir höfði í skólakerfinu.
Ég tel það því skjóta skökku við að íslend-
ingar með allan sinn áhuga á sögu og söguleg-
um fróðleik skuli ekki hafa sögu sína (og
mannkynssöguna) f meiri hávegum en raun
ber vitni. Hins vegar má segja að þjóðfélagið
sé nú á dögum orðið svo flókið að ekki veiti af
að kenna þjóðfélagsfræði á öllum skólastig-
um. Annað mál er að óþarfi ætti að vera að
klípa þann tíma sem til þess þarf af hinum
nauma tíma sem sagnfræðinni er skammtað-
ur.
Sveinbjörn Rafnsson:
f>ví miður hef ég ekki átt þess kost að
kynna mér námskipan grunnskóla í öllum
atriðum. En það er auðvitað ekki aðalatriði
hvort saga sé kennd sem sérstök námsgrein
eða með öðrum námsgreinum. Kannski
skiptir meira máli með hvaða námsgreinum
nákvæmlega saga er kennd.
Ingi Sigurðsson:
Ég álít núverandi fyrirkomulag hafa
ákveðna kosti, vegna þess að hinir einstöku
þættir í samfélagsfræðanáminu styðja hver
annan. Hins vegar þarf að gæta þess, að sögu-
þátturinn í samfélagsfræðanáminu verði ekki
of smár, því að skilningur á sögunni er öllum
mönnum nauðsynlegur.
Gunnar Karlsson:
Ég held að samþætting samfélagsfræði-
námsins í grunnskólunum sé alveg sjálfsögð.
Mér hefur stundum dottið í hug að þessi grein
hefði mátt heita saga, án þess að hún væri að
verulegu leyti öðruvísi en hún er kennd nú.
En það skiptir að sjálfsögðu ekki miklu máli
og kann vel að vera rangt hjá mér. Ég veit að
hópurinn sem lagði á ráð um samfélagsfræði-
námið í upphafi ætlaði sér síður en svo að
ganga á hlut sögunnar - og ég held raunar að
það verði að verulegu leyti undir sagnfræð-
ingum komið hver hann verður í framtíðinni.
Og hvað sem um það kann að vera er það
örugglega ekki neinum til gagns að einangra
söguna frá annars konar athugun á mann-
legum samfélögum. Ég held að það kæmi
miklu frekar til greina að rjúfa mörkin ntilli
sögu og svokallaðrar félagsfræði í framhalds-
skólunum - og sú grein sem út úr því kæmi
hlyti held ég að fá nafnið saga.
Erla Kristjánsdótdr:
Ef það er rétt, sem ég dreg í efa, tel ég að
það sé ekki eingöngu af hinu illa. Svo framar-
lega sem nemendur fá tækifæri til að glíma við
áleitnar spurningar um liðna tíð tel ég að ekki
skipti máli hvort „greinin" heitir saga, sam-
félagsfræði, bókmenntir eða eitthvað annað.
Ákjósanlegast er að nemendur fái tækifæri til
að skoða fortíðina með hliðsjón af sjónar-
hornum fleiri greina en sögu. Góð samþætt-
ing námsgreina getur auðveldað nemendum
að ná heildarsýn á ákveðnum fyrirbærum.
Ingvar Sigurgeirsson:
Saga er enn sérstök námsgrein á grunn-
skólastigi. Svo mun verða næstu ár, eða uns
út er komið nýtt námsefni í samfélagsfræði
fyrir allan grunnskólann. Enn er þess langt að
bíða (8-15 ár). Þegar þar að kemur verður að
11