Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Blaðsíða 23

Sagnir - 01.10.1983, Blaðsíða 23
Hvernig á góð sögukennslubók að vera? Við þessa spurningu hafa margir glímt og ófáir hafa ritað kennslubækur í greininni. Bækur sem þessar úreldast; þ.e. áhersluat- riði, efnisval og sjónarmið höfundar sam- svara ekki lengur almennum viðhorfum og sögulegar „staðreyndir" ganga úr sér með nýjum uppgötvunum. En hvað skyldu nemendur sjálfir hafa um þetta að segja? Við leituðum svara hjá 3. og 4. árs nemum í Menntaskólanum að Laug- arvatni. Þar er saga kennd á þremur árum og eru þrír kennarar sem skipta með sér kennslunni. í íslandssögu eru lesnar bæk- urnar Frá landnámi til lútherstrúar, Frá siðaskiptum til sjálfstœðisbaráttu og Frá ein- veldi til lýðveldis.' Og í almennri mann- kynssögu eru lesnar bækurnar Mannkyns- saga BSE, Miðaldasaga MS, Pœttir úr sögu nýaldar og Mannkynssaga 1914-56? Nemendur voru beðnir um að setja niður helstu kosti og galla þeirra bóka sem þeir höfðu haft undir próf á þar til gerð eyðublöð sem var dreift með prófblöðum í janúar- prófum á þessu ári. Um framkvæmd þessa sá Kristján Eiríksson kennari við skólann. Hér er ekki ætlunin að vega og meta hver þessara bóka fékk besta og hver versta útreið hjá nemendum. Slíkur samanburður væri marklítill. Hins vegar eru það nokkur atriði úr könnuninni, bæði hvað snertir efn- isval og uppsetningu, sem veita má athygli. Nú ráðast hugmyndir manna um gerð sögukennslubóka mikið af skoðunum þeirra á sögukennslu. Auk þess að gefa álit sitt á bókunum voru nemendur því beðnir um að setja niður nokkur orð um markmið sögukennslu. Komu þar fram ýmsar hug- myndir og varla hægt að segja að ein hafi verið annarri algengari: „kenna okkur hvernig við höfum öðlast þá þekkingu sem við búum við“, „skilja samsetningu þjóðfél- agsins í dag“, „vekja tilfinningu fyrir orsök og afleiðingu". „Mætti fylgja boðorðinu: Þekktu uppruna þinn“. Ennfremur viku sumir í svari sínu við þessari spurningu að almennri gerð sögu- kennslubóka og sagði einn nemandi: „Bækur eiga að vera hnitmiðaðar.... það er svo hlutverk kennara að bæta við og gæða söguna lífi“. Og í gagnrýni á bækurnar kom þetta víða frám að bækur skyldu vera hnit- miðaðar, auðlæsilegar og helst stuttar. Það síðasttalda virtist þó ekki afgerandi þar sem Mannkynssaga BSE, sem er líklega hvað mestur doðrantur í þessum hópi, hlaut almennt góða dóma. Stikkorð á spássíum töldu nemendur almennt stóran kost og var beinlínis tekið til þess sem galla ef þau voru ekki. Sérstaklega var talin þörf á þessu þar sem tímaröðun var ekki með hefðbundnu móti heldur saga ein- stakra fyrirbæra rakin einangruð. Myndlausar bækur fengu harða gagnrýni fyrir þær sakir og lögðu nemendur áherslu 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.