Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Page 13

Sagnir - 01.10.1983, Page 13
sem koma í framhaldsskóla, fari hrakandi. Það eru ótrúlegustu atriði, sem fólk virðist ekki kunna skil á. Vonandi hefur í staðinn komið meiri reynsla við samningu ritgerða um afmörkuð efni, vinna á söfnum o.s.frv. Stefán Hjálmarsson: Ég tel þetta óheillavænlega þróun. í flestum ef ekki öllum löridum er sögu lands og þjóðar gert hátt undir höfði í skólakerfinu. Ég tel það því skjóta skökku við að íslend- ingar með allan sinn áhuga á sögu og söguleg- um fróðleik skuli ekki hafa sögu sína (og mannkynssöguna) f meiri hávegum en raun ber vitni. Hins vegar má segja að þjóðfélagið sé nú á dögum orðið svo flókið að ekki veiti af að kenna þjóðfélagsfræði á öllum skólastig- um. Annað mál er að óþarfi ætti að vera að klípa þann tíma sem til þess þarf af hinum nauma tíma sem sagnfræðinni er skammtað- ur. Sveinbjörn Rafnsson: f>ví miður hef ég ekki átt þess kost að kynna mér námskipan grunnskóla í öllum atriðum. En það er auðvitað ekki aðalatriði hvort saga sé kennd sem sérstök námsgrein eða með öðrum námsgreinum. Kannski skiptir meira máli með hvaða námsgreinum nákvæmlega saga er kennd. Ingi Sigurðsson: Ég álít núverandi fyrirkomulag hafa ákveðna kosti, vegna þess að hinir einstöku þættir í samfélagsfræðanáminu styðja hver annan. Hins vegar þarf að gæta þess, að sögu- þátturinn í samfélagsfræðanáminu verði ekki of smár, því að skilningur á sögunni er öllum mönnum nauðsynlegur. Gunnar Karlsson: Ég held að samþætting samfélagsfræði- námsins í grunnskólunum sé alveg sjálfsögð. Mér hefur stundum dottið í hug að þessi grein hefði mátt heita saga, án þess að hún væri að verulegu leyti öðruvísi en hún er kennd nú. En það skiptir að sjálfsögðu ekki miklu máli og kann vel að vera rangt hjá mér. Ég veit að hópurinn sem lagði á ráð um samfélagsfræði- námið í upphafi ætlaði sér síður en svo að ganga á hlut sögunnar - og ég held raunar að það verði að verulegu leyti undir sagnfræð- ingum komið hver hann verður í framtíðinni. Og hvað sem um það kann að vera er það örugglega ekki neinum til gagns að einangra söguna frá annars konar athugun á mann- legum samfélögum. Ég held að það kæmi miklu frekar til greina að rjúfa mörkin ntilli sögu og svokallaðrar félagsfræði í framhalds- skólunum - og sú grein sem út úr því kæmi hlyti held ég að fá nafnið saga. Erla Kristjánsdótdr: Ef það er rétt, sem ég dreg í efa, tel ég að það sé ekki eingöngu af hinu illa. Svo framar- lega sem nemendur fá tækifæri til að glíma við áleitnar spurningar um liðna tíð tel ég að ekki skipti máli hvort „greinin" heitir saga, sam- félagsfræði, bókmenntir eða eitthvað annað. Ákjósanlegast er að nemendur fái tækifæri til að skoða fortíðina með hliðsjón af sjónar- hornum fleiri greina en sögu. Góð samþætt- ing námsgreina getur auðveldað nemendum að ná heildarsýn á ákveðnum fyrirbærum. Ingvar Sigurgeirsson: Saga er enn sérstök námsgrein á grunn- skólastigi. Svo mun verða næstu ár, eða uns út er komið nýtt námsefni í samfélagsfræði fyrir allan grunnskólann. Enn er þess langt að bíða (8-15 ár). Þegar þar að kemur verður að 11

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.