Sagnir - 01.10.1983, Qupperneq 39
Björn Þorsteinsson:
Af íslenskum
diplomötum og
leyniþj ónustumönnum
Um íslensk utanríkismál fyrir 1100
Ég hef verið beðinn að skrifa hér eitthvað
um íslensk utanríkismál. Þau eru varla
nógu gömul í hettunni fyrir mig, ef farið er
eftir prótókollum þjónustunnar, því að ég
hef einkum fjallað um miðaldir, en ísland
varð ekki ríki fyrr en 1. des. 1918. Fyrir
þann dag voru íslensk utanríkismál ekki til
sem slík; landið hafði verið hluti af danska,
áður dansk-norska og þar áður norska rík-
inu. Fram til 1918 höfðu samskipti íslend-
inga við önnur ríki, - landvarnir þeirra,
utanlandsverslun, erlendir hagsmunir, fisk-
veiðiréttindi og fáni - verið í höndum
danskra og norskra stjórnvalda allt frá árinu
1262-64.
Goðaveldi - hagsmunasamtök
um löggæslu á Islandi
Fyrir 1262 er vafasamt að ræða um
íslensk utanríkismál, því að íslenska goða-
veldið, sem ég nefni svo og varð til um 900
og hjarði til 1262-64, var ekki ríki í venju-
legri merkingu orðsins og skorti sameigin-
legt ríkisvald.x) Goðaveldið var til orðið úr
x) Páll Sigurðsson segir í Brot úr réttarsögu,
bls. 125: „Um réttarstöðu íslands á þessu
tímabili (fyrir 1262) er þess helst að geta, að
ekki orkar tvímælis, að eftir stofnun alþingis
var það sjálfstætt og fullvalda ríki og þannig
fullgildur þjóðréttaraðili."
hagsmunasamtökum farmanna og sæfara af
ákveðnum ættum, sem höfðu gengist fyrir
landnámi á íslandi. Þeir bundust samtök-
um, gengu í eins konar ættsveitabandalag
um ákveðnar réttarreglur, lög, sem tryggðu
eignarrétt manna og forréttindi svonefndra
goða til forystu á þingum og valdstjórnar í
héruðum. Hver sveit, hvert hérað, varð að
eiga sér signor, landsdrottin eða goða.
Sjálfir kenndu íslensku höfðingjarnir sam-
tök sín við réttarreglurnar, lögin. í lagasafni
þeirra, Grágás, segir m.a.:
„Ef maður á konur tvær hér á landi eða í
vorum lögum, það varðar fjörbaugsgarð".1*
- Hin konan mátti vera í öðrum lögum eða
utan lands.
Á 20. öld hefur það komist í tísku að
nefna tímabilið frá landnámi til 1262 þjóð-
veldi í íslenskri sögu. Þetta heiti er nýgerv-
ingur frá þjóðfrelsistímanum á 19. öld og er
villuhugtak, þjóðin var ekkert veldi að
fornu, heldur voru það goðar, sem stjórn-
uðu gangi mála; þjóðveldi hefur jöfnum
höndum verið notað sem þýðing á republik,
lýðveldi: - Bandaríkin eru nefnd Þjóð-
veldið mikla í Skírni 1836 (bls. 37),-ogum
veldi goðanna fornu. í Fjallkonunni 1887,
bls. 87 er þess getið, að íslenska þjóðveldið
hafi dottið úr sögunni 1264.
Alþingi á Þingvelli að fornu var ekki
þjóðarþing, heldur allsherjarþing goðanna,
37