Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Side 46

Sagnir - 01.10.1983, Side 46
íhuga rækilega hverjar afleiðingar jarð- eignir Noregs konungs á íslandi gætu haft fyrir goðaveldið. Björn Sigfússon bendirá í fyrrnefndri ritgerð að Grímseyjargjöf hefði leitt til þess að konungur eignaðist eiðsvar- inn lendan manna meðal goðanna. Á þess- ari öld hefur verið deilt um erlenda fjárfest- ingu og stóriðju á íslandi. Pau mál ættu að skýra þá alvöru, sem getur falist að baki sögnum um Una danska og Grímseyjarbón- ina. Hér skipta ræðutextar á alþingi um 1022 ekki aðalmáli, heldur sú staðreynd að goða- veldið átti „formleg samskipti" við erlend ríki og gat gert samninga fyrir hönd íslend- inga. Samkvæmt forskriftum voru þeir frumstætt fólk, barbarar á veraldarenda, en í reynd voru þeir lengra á veg komnir og byggðu stéttskipt og skipulegt stórbænda- samfélag, sem stóð í margþættum sam- skiptum við norska stórveldið. Hirðskáldin unnu á vegum erlendra fursta og björguðu oft íslendingum, sem höfðu komist í hann krappan, en um íslenska hagsmuni erlendis fjölluðu full- trúar einstakra ætta og héraðshöfðingjar eða sendinefndir, sem hafa líklega verið til- nefndar á alþingi. Landauraskatturinn forni er eflaust frá 10. öld og líklega valdboðinn af Noregs konungum, en gjaldið hefur orðið til þess að skerpa skilin milli íslend- inga og Norðmanna. Hinir fyrrnefndu stóðu í ströngu félagslega og pólitískt um árið 1000. Noregs konungur beitti þá hörðu við boðun nýs siðar, tók gísla og lagði far- bann á menn til íslands, og þá var dómsvald eflt í landinu, en „margir höfðingjar og ríkismenn sekir eða landflótta og víg eða barsmíðar", að sögn Ara fróða sem virðist telja um nýjungar að ræða og þannig hafi ekki verið búið að höfðingjum áður. Fyrstu áratugir 11. aldar voru einhverjir djörfustu nýsköpunartímar íslenskrar sögu; þá til- einkuðu íslendingar sér kristinn sið, fundu nýja heimsálfu, bættu dómskerfið og gerðu tímamótasamning við norska ríkið, og allt gerðist þetta stórátakalaust að því er við best vitum. Sendinefnd helstu höfðingja Sendinefndin, sem fór utan með Gissuri biskupi til að staðfesta sáttmálann við Ólaf digra, varundirforystu lærðs manns, en auk hans var hún skipuð tveimur goðum eða fulltrúum goðorðsmanna í hverjum fjórð- ungi. Þeir voru: Teitur Gissurarson í Skál- holti og Markús Skeggjason lögsögumaður 1084—1107 að sunnan, - Hreinn Hermund- arson frá Gilsbakka og Einar Arason frá Reykhólum að vestan, - Björn Þorfinnsson karlsefnis úr Skagafirði og Guðmundur Eyjólfsson frá Möðruvöllum að norðan, og Daði Starkaðarson ogHólmsteinn Órækju- son úr Fljótsdal að austan. - Nefndin hefur staðfest sáttmálann árið 1083.3(l) Þeir Teitur og Markús hafa verið skrift- lærðir og líklega fleiri eða flestir nefndar- menn. Gissur hefur þekkt deili áskjölumog einnig ísleifur biskup, sem á að hafa stað- fest sáttmálann áður ásamt völdu liði. Samt sjást þess engin merki að lærðir menn hafi um hann fjallað. Björn M. Ólsen gerir ráð fyrir að samningurinn hafi verið merktur, þ.e. ritaður, á rúnum og íslendingar hafi notað rúnaletur miklu meira en almennt er talið. Fornleifarannsóknir á Bryggjunni í Björgvin á 7. áratug aldarinnar leiddu í ljós almenna notkun rúna til skeytaskipta á 12. og 13. öld.31) Hvað sem rúnaskrifum líður er texti sáttmálans ekki lærður, heldur sver hann sig til eldri ættar. Helstu ákvœði sáttmálans um rétt íslend- inga í Noregi kveða á um: 1. höldsrétt þeirra (1. gr.), 2. rétt þeirra til erfða (2. 6. og 10. gr.), 3. skyldu þeirra að greiða landaura og undantekningar frá henni (3. 8. 11. og 12. gr.), 4. rétt þeirra „að njóta vatns og viðar“ í skógum konungs (4. gr.), 5. takmarkaða herskyldu þeirra (5. gr.), 6. rétt þeirra til frj álsrar siglingar frá Nor- egi til íslands og frá íslandi til annarra Ianda að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum (7. og 9. gr.). Lokaákvæði sáttmálans er eftirtektar- vert: 44

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.