Sagnir - 01.06.1992, Page 40
Einar Hreinsson
Renndi Kólumbus
blint
/
sj omn
Nú eru liðin rétt fimmhundruð ár
síðan Kristófer Kólumbus hélt í hina
örlagaríku ferð á vit austursins í vestri
og fann óvart heila heimsálfu. Byggðist ferð
Kólumbusar á fífldjörfum getgátum eða rök-
studdri vitneskju um lönd handan Atlantsála?
Vitneskju sem hann fékk á Islandi árið 1477.
Enginn véfengir frásagnir
Kólumbusar af Ameríku-
ferðinni en minnisgrein hans
um ferðina til Islands hefur
ekki fengið jafnmikinn
hljómgrunn.
Úr minnisbókarbroti
í febrúar 1477 sigldi ég sjálfur
hundrað spænskar mflur út fyrir
eyna Thule. Norðurhluti hennar er
73° frá jafndægralínu, en ekki 63°
eins og sumir ætla. Hún er ekki
heldur á þeirri línu þar sem vestur
byrjar að tali Ptolemaiosar, heldur
miklu vestar. Við eyju þessa sem
er eins stór og England eiga Eng-
lendingar viðskipti, einkum
Bristolbúar. Pegar ég var þar var
sjór auður, en svo mikill var mun-
ur flóðs og fjöru að á sumum stöð-
um munaði 26 föðmum ... Hið
sanna er að Thule það sem Ptole-
maios ræðir um, er þar sem hann
segir það vera og kalla menn það
nú Frísland.1
Á þennan hátt hljóðar minnisgrein
Kristófers Kólumbusar um ferð hans
til íslands í Historie di Cristoforo
Colombo eftir son hans Ferdinard
Skip ckki ósvipað þv! er Kólumbus sigldi á til íslands. Á skipinu sjást nokkrar nýjungar
sem bárust frá Miðjarðarhafmu til Englands í upphafi 15. aldar, svo sem fleiri möstur, lat-
ínsegl ogfokka á framsiglu.
38 SAGNIR