Sagnir - 01.06.1992, Side 57

Sagnir - 01.06.1992, Side 57
í skáldverkum sínum, vafið það æv- intýraljóma en látið sér Island raun- veruleikans í léttu rúmi liggja.2 Þess- ar bókmenntir báru ábyrgð á því sem margur Þjóðverjinn vissi um fsland sem var, í samræmi við þessa ímynd, oft nefnt nöfnum eins og „Thule“, „ævintýralandið" („Marchenland") eða „sögueyjan“ („Sagainsel"). Það er ekki ætlunin að fjölyrða um nasista í þessari grein en þó er freist- andi að geta þess hér að Adolf Hitler hafði á sínum tíma viðlíka hugmynd- ir um landið. í byrjun aldarinar bjó hann sem ungur maður í fátækt og iðjuleysi í Vínarborg en stundaði óperuhúsin af kappi. Einn daginn fékk hann þá hugdettu að semja sjálf- ur óperu og lét sér í léttu rúmi liggja þótt hann væri vita ólæs á nótur. Óperan skyldi nefnast „Völundur smiður", byggð á efni sem Hitler taldi sig sérfróðan í: Fornaldarsögum Norðurlanda. Richard Wagner, eftir- læti hins unga ofurhuga, hafði á sín- um tíma sjálfur ætlað að nota söguna sem efnivið en ekkert orðið úr. Inn- gangskaflinn í óperu Adolfs átti að gerast á fslandi: Völundur og bræður hans sitja og dorga við „Úlfavatn." í bakgrunni sjást logandi eldfjöll, jökl- ar og grjót. Allt í einu svífa út úr skýjunum þrjár valkyrjur með skín- andi hjálma, í hvítum skikkjum yfir brynjunum. Adolf átti sér á þessum tíma einn vin og sambýlismann en sá hét August Kubizek og svo vel vildi til að hann var í tónlistarnámi og með píanó í íbúðinni. Unnu þeir að óper- unni í þrjár eða fjórar vikur en smám saman missti Hitler áhugann, eins og á flestu er hann tók sér fyrir hendur á þessum árum.3 Þetta er ekki merki- legt brot úr lífi mesta glæpamanns allra tíma en inngangssena óperunnar gefur góða mynd af þeim ljóma æv- intýra og dulúðar sem rómantíkin hafði sveipað fsland. Skömniu fyrir heimsstyrjöldina fyrri byrjaði íslenskur Jesúítamunkur að setja saman á þýsku kristilegar æv- intýrafrásagnir af bernsku sinni. Jón Sveinsson, öðru nafni Nonni, skrif- aði hverja bókina á fætur annarri og varð fljótt metsöluhöfundur á þýsku málsvæði. Þegar Abenteuer auf den In- seln kom út í Freiburg árið 1927 skrif- Adolf Hitler á unglingsárum: agalaus og viðkvæmur sveimhugi með áhuga á óperu. Forleikurinn að hans eigin óperu átti að gerast á íslandi. aði íslandsvinurinn Heinrich Erkes í bókardómi að Jón Sveinsson væri löngu hættur að þurfa nokkra kynn- ingu, „þessar frásagnir [hafi] allt það besta að geyma sem hrifið getur óspillta barnssálina.“ Erkes spáði því að margir fullorðnir og hundruð þús- unda ungmenna ættu eftir að lesa hina nýútkomnu bók.4 Nonni lét sér ekki nægja skriftirnar heldur ferðaðist um og hélt fyrirlestra um ísland við gífurlega aðsókn. Sem dæmi má taka að veturinn 1929-30 hélt hann yfir 100 fyrirlestra í Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Lúxembúrg, Elsass og Lothringen. Fyrirlestrarnir fengu mikla aðsókn og frá því var sagt að í Freiburg hefði stærsti salur háskólans ekki rúmað alla áheyrendur.5 Frásagnir Nonna hafa að líkindum ýtt undir öllu raunsærri mynd af ís- „Kulturpessimismus“ varð algengt hugtak í Þýskalandi þriðja áratugarins. Á ,Jlótta undan siðmenningunni" fundu tnenn á íslandi fámenni og óspjallaða náttúru. Þannig sá listamað- urinn George Grosz fyrir sér borgarlífið, fullt afljótleika, grimmd og ótta. SAGNIR 55

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.