Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Side 44

Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Side 44
38 HELGAFELL munu vor yngstu skáld engan veginn hrökkva í hnapp við þann hljóm. Nýjar uppsprettur reyna menn nú að klappa fram úr berginu, af því að þeir finna ekki svölun, þar sem fyrir skemmstu þótti gnægð lifandi vatns. Og er þá vel, þegar þessi leit ber árangur. Þetta haggar ekki því, að Davíð mun ekki þoka úr þeim sessi íslenzkra bókmennta, sem hann hefur þegar lengi skipað. Og það haggar ekki heldur því, að sessinn skipar hann enn með sóma. Hann hefur hlotið þá guðagjöf að eldast vel og máttinn til að endumýja sjálfan sig innan þeirrar umgerðar, sem hann er sjálfur. Ljóð frá liðnu sumri er gleðilegur vottur þess. Maður lokar bókinni með þeirri hugsun, að enn sé sumar, ögn farin að lengjast nótt, yndislegt síðsumar, og lítur út fyrir gott haust. Kristján Eldjárn Aímælisgjöí íslenzkra íræöimanna Nordæla, Helgafell 1 956. 1 þessu riti eru fjórtán greinar um íslenzk fræði, og gefur ritið skemmtilega hugmynd um viðfangsefni íslenzkra fræðimanna um þessar mundir. Þrjár ritgerðir fjalla um Is- lendinga sögur, aðrar þrjár um miðaldabók- menntir, fjórar um bókmenntir síðari alda, tvær um sögu, og loks eru tvær, sem em menningarsögulegs eðlis. Bjami Einarsson skrifar um hinztu viður- eign þeirra Gunnlaugs og Hrafns. Bendir hann á, að höfundur Gunnlaugs sögu hafi notað Sörla þátt (af Hjaðningavígum) að fyrirmynd, þegar hann skrifaði þessa frá- sögn. Jón Helgason ritar ýtarlega grein um handrit Egils sögu, og má ráða af henni vinnubrögð við handritarannsóknir ekki síð- ur en skyldleika Eglu-handrita. Jón Jóhannes- son sýnir fram á, að Grænlendinga saga sé frá lokum 12. aldar, og er hún því miklu eldri en haldið hefur verið fram. Einar Ól. Sveinsson á skemmtilega grein um íslenzk áhrif á færeyskar og norskar miðaldabókmenntir og norsk áhrif á íslenzk- ar bókmenntir. Jakob Benediktsson ritar um Islandslýsingu þá, sem lengstum hefur ver- ið eignuð Sigurði Stefánssyni skólameist- ara. Kemst Jakob að þeirri niðurstöðu, að Oddur Einarsson biskup sé höfundur lýs- ingarinnar og hafi sennilega samið hana veturinn 1588-9. í sambandi við þetta er rétt að minna á önnur fræðistörf Jakobs, en þau hafa legið mjög í þagnargildi á Islandi. Jakob hefur unnið ósleitilega að útgáfum og rannsóknum á latneskum miðaldabókmennt- um Islendinga, og færi vel á því, að hann skrifaði meira um það á íslenzku en orðið hefur fram að þessu. Björn Sigfússon skrifar um „fomklassískt siðerni og tilvitnanir meist- ara Jóns." Bendir Björn á mörg dæmi þess, hve Jóni Vídalín vom tiltækar tilvitnanir úr klassískum ritum og hversu hann beitir þeim til að ná áhrifum á hlustendur sína. Pétur Sigurðsson á grein um „Island bezt- um blóma", háðkvæði gegn sálmabók Magnúsar Stephensen. Kvæði þetta hefur verið eignað Sigurði Péturssyni og Finni Magnússyni, en Pétur gerir grein fyrir því, að það sé eftir Sæmund Hólm. Hins vegar var það prentað í handprentsmiðju Sigurðar Péturssonar, en um hana fjallar greinin að nokkru leyti. Stefán Einarsson birtir „Bænarskrá bænda í Þokuhlíð", sem hann telur vera eftir Magnús Stephensen. Steingrímur J. Þorsteinsson birtir fyrstu kvæði Einars Benediktssonar, en það em eftirmæli, sem ókunnugt hefur verið um. Steingrímur hefur samið um Einar Benediktsson beztu ævisögu, sem til er um íslenzkt skáld. En honum var þá ókunnugt um þessi elztu kvæði Einars, sem varpa vitanlega miklu ljósi á þroskaferil skáldsins, enda verða menn margs vísari af ritgerð Steingríms. Af grein Þorkels Jóhannessonar kynnumst við nokkuð vinnubrögðum Stephans G. Step- hanssonar skálds. Þorkell birtir upphaflega gerð kvæðis, sem hét Kveldblíðan, en Step- han breytti síðan og við þekkjum öll undir öðm heiti: Viðverkalok. Munurinn á þess- um tveim gerðum er í rauninni svo mikill, að síðari gerðin má heita nýtt kvæði. Þor-

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.