Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Page 49
tir^
?Ííwxíl?:®SÍ:
tónlist
TÓNLISTARLlF heíir verið með miklum blóma það sem
af er þessu óri. Sinfóníuhljómleikar tékkneska hljóm-
sveitarstjórans Smetachek voru mikill viðburður og sama er að
segja um tónleika pícmistanna tveggja, Abrams frá U. S. A. og Katz
frá Rúmeníu. Tónlistarfélagið hyggst nú að færa út kvíarnar og
hrinda af stað nýjum flokki tónleika, sem aðallega verða helg-
aðir nýrri tónlist. Þá hefir Æskulýðsráð Reykjavíkurbæjar minnst
40 ára hljómleikaafmæli Dr. Páls ísólfssonar, með konsertum í
kirkjum bæjarins. Er þeim ekki lokið enn og verður nánar sagt
frá þeim síðar. Þorsteinn Hannesson söng með aðstoð Áma Krist-
jánssonar fyrir meðlimi Tónlistarfélagsins, verk eftir Schumann,
Sibelius, Schubert, Emil Thoroddsen og Jón Þórarinsson. Þorsteinn
er mikill söngvari og gáfaður listamaður. Hann hefir háþroskaðan
smekk og söngurinn er þróttmikill og innilegur. Smekkur hans og
listræn tjáning nær ekki aðeins til lagsins heldur einnig Ijóðsins,
og samvinnan við undirleikarann er borin uppi af þeim listræna
anda, sem er einkenni hárrar listar. Þessir frábæru listamenn
ættu að koma oftar fram saman.
Nýr kammermúsikklúbbur hefir verið stofnaður hér og standa
þrír áhugamenn um tónlist, þeir Ingólfur Ásmundsson, Guð-
mundur Vilhjálmsson og Magnús Magnússon, fyrir honum. Klúbb-
urinn hefir aðsetur í Melaskólanum í vetur og hefir þegar haldið
tvenna tónleika, sem nánar mun sagt frá síðar.
Tvær
óperur
MEISTARAR liðinna alda hafa arfleitt heiminn að skráðum
heimildum, sem geyma lykilinn að mikilli auðlegð í máli
og tónum. En það er hættulegur og rótgróinn misskilning-
ur, að þar geti hver og einn gengið að listamanninum öllum. Hið
dýpsta og mannlegasta í frumlegri listsköpun er að sönnu ótrú-
lega lífseigt og lifir sennilega einungis af, vegna þess að það
túlkar eilífðargildi þeirrar skynjunar, sem er hversdagslega bund-
in sjónhverfingum aldarháttar og tímaiízku. Samt sem áður er erf-
itt að koma auga á þann hlut í tilverunni, er réttlæti þá skoðun,