Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Qupperneq 54

Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Qupperneq 54
48 HELGAFELL II w. H. Auden: Kafli úr ritgerð, sem birtist í ritgerðasafni úr The New York Times Book Review: Highlights of Modern Litera- ture, Mentor Books, 1954. Höfundinn er óþarft að kynna umfram það, sem gert er í grein framar í ritinu. Bækur hafa einkum legið undir tvenns konar ásökun. í fyrsta lagi ákæru sálfræðingsins. Allur skáldskapur, segir hann, ljóð sem sögur, ala upp í mönnum dagdrauma og torvelda þeim að hlíta lögmálum veruleikans. Það er ofurlítill sannleiks- vottur í þessari skoðun, en smár er hann. Ef við gleypum nú samt við henni í heilu lagi, kemur í ljós, að forsendur hennar eru falskar: samkvæmt henni ætti mannlegur breyskleiki ekki að vera annað en tilteknir hentugleikar á því að láta und- an honum. Sjálfsafneitunarpostulum þeim, sem bera hér veruleikann svo mjög fyrir brjósti, fer eins og öllum siðavöndurum: þeir ætla, að ílöng- unin hverfi, ef tækifærin verði afnumin. Hæpin ályktun! Oft ligg ég í reyfurum, þegar ég ætti að vera að svara bréfum, en bágt á ég með að trúa því, að ég gæti ekki fundið einhver önnur undan- brögð frá skyldunum, þó að reyfarar væru bann- aðir að lögum. Hin ákæran er miklu ískyggilegri. Hún er sú, að málfar, skynbragð og hyggjuvit lesandi manna sé í ýmsum greinum rýrara en ólæsra. Er eitt- hvað til í þessu? Vitaskuld er fjarstæða að gera greinarmun á „aðfengnu" bókviti og „beinni“ reynslu: maðurinn fæðist ekki alskapaður eins og skorkvikindin, heldur verður hann að læra flest af öðrum. Við myndum búa í trjám og lifa á hrárri jurtafæðu, ef við þyrftum að treysta á beina reynslu okkar sjálfra, þ. e. a. s. skilningar- vitin, í einu og öllu. En virðist manni bóklesinn maður standa að baki hinum, sem ekkert les, er ástæðan sú, að bækurnar, sem hann les, hafa veitt honum ómerkilegri fræðslu en bóndasynin- um áskotnast fyrir að tala við föður sinn og ná- granna. Ráðið er ekki að halda honum frá lestri, heldur koma honum upp á að lesa betri bækur. Trúin á bókleysingjann villist á sjúkdómsor- sök og sjúkddómsauðkennum. Menning okkar er þungt haldin, og sjúkleikinn stafar í raun og veru af því að stórframleiðsla á ódýrum varningi sam- rímist ekki stærð og háttum andlega og stjórn- málalega heilbrigðs þjóðfélags og skapar æ víð- tækari og óeðlilegri samfélagsheildir. Aristoteles hélt því fram, að lífvænlegt þjóðfélag mætti ekki vera stærra en svo, að menn þekktust í sjón, og Plato áætlaði 5040 manns í æskilegu þjóðfélagi. Allt til þessa hefir sagan verið að staðfesta það mat á andlegu og pólitísku eðli mannsins, sem þeir reistu niðurstöður sínar á. Fáir myndu treystast til að láta sem þeir vissu, hvemig sam- ríma má þessar ósamstæður: ódýra framleiðslu og menningarþjóðfélag. Eitt veit ég: það tjóir ekki að afnema bækur. Hins vegar er alltaf skemmtileg dægradvöl að spyrja, hvernig færi, ef . . . ? Setjum svo, að þjóðfélag okkar væri alveg eins og það er, að öðru leyti en því, að prentvélina vantaði og rit- vélina og fjölritarann sömuleiðis. Tvennt myndi vitaskuld taka sér stórlega fram: minnisgáfa manns og rithönd. Frá barnæsku myndi okkur vera kennt að leggja óhemju fróðleik á minnið, og sá myndi eiga erfitt uppdráttar, sem skrifaði ólæsilega rithönd. Verkleg kunnátta ýmis konar yrði æ sérhæfðari og gengi sennilega í ættir. Sér- fræðingum myndi sniðinn miklu þrengri stakkur, af því þeir yrðu að leggja á minnið alla þekk- ingu, sem að atvinnu þeirra lyti, eða eiga að öðr- um kosti aðgang að fágætum og dýrum handrit- um, og samband kennara og nemanda yrði svo náið og langvinnt, að nálgaðist fjölskyldutengsl. Kvik- myndir útvarp og sjónvarp myndu ekki breytast mikið fyrsta kastið, en þegar frá liði myndu sams konar einkenni koma í ljós: hjá þeim myndi al- ast upp stétt sagnamanna með afar strangt og íhaldssamt sagnasnið. Og hverju nafni, sem stjórnarfyrirkomulag okkar nefndist, myndi land- stjómin í reynd vera á höndum fámennrar, í- haldssamrar klíku. Alla tilvonandi einræðisherra hlýtur auk heldur að dreyma um heim, þar sem kvikmyndir og hátalarar eru einu uppfræðslu- og skemmtitækin. Það þarf margvísleg áhöld til að gera kvikmynd og sýna hana, útvarpsstöðvar andstæðinga er auðvelt að trufla, strætishorna- prédikari getur ekki komizt upp með neitt, án þess lögreglan viti af, en bækur og ritlinga er tiltölulega ódýrt að prenta, og það er auðvelt að leyna þeim. í prentvélalausu iðnþjóðfélagi væri enginn minnihluti.

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.