Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.03.1965, Blaðsíða 113
5
12. mynd. Snjódœlcl lijcí Strandhöfn.
(\ 1. md.) sýnir afstöðu gróðurbeltanna í dældinni. 1 er stórgrýttur mel-
ur með mjög strjálum gróðri, 2 er þar sem athugunin er gerð, en 3 er
snjómosa flag án nokkurs háplöntugróðurs.
Blettir XVI. 7—8, Strandhöfn í Vopnafirði í 100 og 200 m hæð.
8 er gróðurhverfi, sem mjög er skylt grasvíði-grámullu hverfinu, en
stinnastörin var svo áberandi, að ég tók blettinn með hér. Bletturinn
er í karmynduðum bolla, og sýnir 12. md. afstöðu beltanna. Neðst í
dældarbotnunum er dý með Philonotis (dýjamosa) og strjálum ein-
staklingum af fjalladánurt (Epilobium anagallidifolium), hrafnafífu
(Eriophorum Scheuchzeri) og lækjafræhyrnu (Cerastium cerastioides)
belti 1. Belti 2 utan með dældarbotninum, þar sem hliðar bollans
byrja að rísa er örmjótt með rjúpustör (Carex Lachenalii), hrafnastör
(C. saxatilis) og hrafnafífu (E. Scheuchzeri). Athugunin er gerð neðst
í brekkunni í belti 3. Þar fyrir ofan er örmjótt belti 4, þar eru grös og
stinnastör (C. Bigelowii) ríkjandi og loks er belti 5 efst í dældinni en
þar er blómlendi, tafla XIII. 1.
Blettur XII. 8, Staður á Reykjanesi, hæð 300 m í neðanverðri snjó-
dæld, þar sem aðalbláberja hverfi er í efri hluta dældarinnar sbr. Tafla
XII. 1.
Blettur XII. 9, Rafnseyrardalur í Arnarfirði í 320 m hæð. Stinna-
stör er ríkjandi í gróðursvip. Gróðurhverfi þetta er útbreitt þar um
dalbotninn, sem er þurr og tiltölulega sléttur.
XVIII. 4, Fornihvammur hæð 440 m. Grasvíðir er ríkjandi. Há-
plöntugróðurinn er ekki samfelldur, og mosi mikill. Hverfið er út-
breitt í þessari hæð á þeim slóðum.
TÍMARir UM ÍSLENZKA r,RASAFRÆÐI - FlÓm 109