Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.03.1965, Blaðsíða 103
Athugun þessi er gerð á Fljótsheiði suðaustur frá Víðikeri í Bárðar-
dal í um 380—390 m hæð. Þar eru víðáttumikil svæði runnaheiðar með
fjalldrapa (Betula naná), krummalyngi (Empetrum hermafroditum),
loðvíði (Salix lanata), grávíði (S. glauca), sauðamerg (Loiseleuria pro-
cumbens) og fleiri smárunnum. Ekki er ýkjasnjóþungt á heiðasvæði
þessu. Víða í heiðinni eru dældir, misjafnlega djúpar, þar sem snjór
liggur og leysingavatn leikur um lengur fram eftir vori en í heiðinni
sjálfri. Sumt af þessu eru kringlóttir bollar, en annað rásir og lágar,
sent vatnið rennur um allan leysingatímann. Hvárvetna í slíkum dæld-
um verður breyting á gróðri, og því meiri sem dældin er dýpri. Fyrst
í stað verður breytingin vissulega meiri í svip en samsetningu tegunda
í félaginu. Annars er breytingin fólgin í því, að runnarnir hverfa en
grös og grasleitar plöntur koma í þeirra stað. Fyrst hverfur fjalldrap-
inn (Betula nana), og ef um nokkra verulega dæld er að ræða er hann
alveg úr sögunni. Víðitegundirnar (Salix) og bláberjalyng (Vaccinium
uliginosum) hverfa að mestu en þurrkast ekki algerlega út, en krumrna-.
lyngið (E. hermafroditum) heldur nokkuð velli um allar dældirnar, en
minnkar mjög í vexti í hinum dýpstu þeirra og á þar sýnilega örðugt
uppdráttar, sauðamergur (L. procumbens) heldur sér nokkuð niður
eftir dældunum. Þær tegundir, sem ríkjandi verða þegar runnarnir
hverfa eru stinnastör (C. Bigelowii) og grös (Graminéae), líkt og taflan
sýnir. Þar eru stinnastör (C. Bigelowii) og týtulíngresi (A. canina) ríkj-
andi bæði í svip og fleti. Fjallasmári (Sibbaldia procumbens) er og all-
áberandi, þó að hann
standi einkennistegund- ___ ^
unum að baki í tíðni.
Krummalyng (E. herma-
froditum) sýnir enn mikla
tíðni en er svo smávaxið,
að það sést lítt þegar litið
er yfir landið. Dældin,
sem athugunin er gerð í,
er sýnilega farvegur leys-
ingarvatns, hún er um 2
m breið í botninn, með
nokkrum hliðafláa og víð-
ast hvar allt að 2 m á dýpt. Rissið, 10. md., sýnir hvernig gróðurfélög-
um er háttað í dældinni. Belti 1 er sú kinnin, sem veit mót suðri, þar
er krummalyng (E. hermafroditum) ríkjandi. Mikið ber þar á ilmreyr
(A. odoratum), túnvingli (Festuca rubra), týtulíngresi (A. canina) og
10. mynd. Dccld <i Fljótsheiði.
7*
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓm 99