Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.03.1965, Blaðsíða 19
Súlnr, 10. júlí 1963 (9). Farið frá Akureyri og gengið upp að Gleránni, þaðan suður
Iiálsinn upp á Súlumýrar, og suður yfir þær. Gengið á fjallstindinn að norðaustan,
og þaðan á Syðri-Súlur, 1167 m h., og eftir fjallshryggnum þar fyrir sunnan, allt að
tindinum Krumma, en þaðan var farið austur af fjallinu og síðan niður, næstum
beina stefnu til Akureyrar. Veður var gott.
Byggðafjall, 12. júli 1963 (11). Gengið frá Þverá, suður Ijallshrygginn, og upp á fjall-
ið, norðantil. Veður var slæmt, þoka og snjókoma á fjallinu, og urðu athuganir því
af skornum skammti ofan við 800 m h. Ofan af fjallinu fórum við niður í Helgár-
selsskál, og þaðan skáhallt niður að Þveránni, á móti Þröm.
Kinnafjall, 15. júli 1963 (12). Gengið frá Oxnadalsheiði, þar sem hún er liæst, suður
í Kaldbaksdalinn, þaðan upp ljallsöxlina að norðaustan, og síðan dálítinn spöl suð-
ur eftir f jallinu. Fórum hæst í 1050 m h. Gengurn svo norðan af fjallinu, riiður. Veð-
ur var sæmilegt.
Torfufell, 18. júli 1963 (13). Gengið frá eyðibýlinu Úlfá, og upp með Hafránni, að
norðan, og síðan þvert upp á fjallið, og norður og vestur eftir því, allt á hæstu
bunguna, sem er 1240 m samkv. korti. Veður var vont á fjallinu, þoka og snjókoma,
en sæmilegt veður í dalnum. Niður var farið næstum þvert austur af fjallinu, og
komið að Hafránni.
Möðruvallafjall, 25. júli 1963 (7). Farið frá Reistará og gengið upp gegnum Reistar-
árskarðið, síðan suðvestur eftir fjallinu, allt að Þorvaldsdalsbrúnum, 993 m, en það-
an beygðum við austur og komum l'ram á Þrastarhólshnjúk og þaðan farið niður af
fjallinu gegnunr Hallgilsstaðaskarð. Veður var gott en nýsnjór töluverður á fjall-
inu, sem hindraði athuganir þar.
Kaldbakur, 29. júli 1963 (5). Gengið frá Svínárnesi upp Svínárnesdalinn, og næstum
beint upp á fjallið, að mælingavörðu, sent er nyrzt á fjallinu, 1167 m h. Þaðan fór-
um við suður af fjallinu, og beygðum svo vestur og niður í Svínárnes. Veður var gott.
llimar, 31. júli 1963 (6). Gengið frá Völlum í Svarfaðardal og skáhallt upp íjallið,
suður í Hofsskál, og þaðan upp á fjallshrygginn og suður eftir honum á Rimar, að
mælingavörðu, 1288 m. Þaðan suður eftir fjallinu og niður í Þverárdal og þaðan
niður í Þorvaldsdal og út eftir lionum, að Arskógi. Veður var sæmilegt.
Bóndi-Kerling, 8. ágúst 1963 (10). Gengið frá Hrafnagili í Eyjafirði, upp í Hrafna-
gilsfjall og upp á Bóndatind, 1361 m. Þaðan var farið vestur af fjallinu ofan í Lamb-
árdal, yfir Lambárdalsjökul, og upp á fjallsöxlina norðaustur af Kerlingu, síðan
<-----------
1. Lút (um 750 m).
2. Háiltambur (Sulur) (um 730 m).
3. Lálrakleyfar (925 m).
7. Sauðaneshnjúkur (992 m).
5. Kaldbakur (1167 m).
6. Rimar (1265 m).
7. Möðruvallafjall (Rcystarárskarð)
(990 m).
8. Hliðarfjall (1300 m).
9. Súlur (1167 m).
10. Bóndi og Kerling (1538 m).
11. Byggðafjall (1050 m).
12. Kinnafjall (1110 m).
13. Torftifell (1240 m).
14. Hólabyrða (1244 m).
15. Digrihnjúkur (950 m).
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓrCt 15