Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.05.1967, Blaðsíða 30
arfell er mjög sennilegur fundarstaður, enda mjög ótrúlegt, að jafn
glöggur náttúrufræðingur sem J. Steenstrup var, liafi getað ruglað þess-
um tegundum saman við Stellaria media eða S. crassifolia.
Dr. Helgi Jónsson er sá grasafræðingur, sem mest hefur athugað
gróður í Dalasýslu. í sérflóru sinni yfir Snæfellsnes og Dalasýslu telur
hann sig, ásamt fyrirrennurum sínum, hafa fundið 233 háplöntuteg-
undir í Dalasýslu.1) En aðeins 2 af þeim fundum eru úr norðanverðum
Miðdölum, en það eru tegundirnar: Viola tricolor og Fragaria vesca. V.
tricolor er fundin í Kvennabrekku, og er sá fundarstaður gamall, jrví að
Eggert Ólafsson getur tegundarinnar þaðan í ferðabók sinni. (Bls. 298,
L bindi.)
Gróðurrannsóknir Ingólfs Davíðssonar eru eingöngu gerðar í sveit-
um norðan Hvammsfjarðar og á eyjunum. Fann hann 36 tegundir, er
Helgi getur ekki um í sínum ritum og þeirra á meðal 1 nýja fyrir land-
ið, Spergularia salina.
Auk þessara þriggja manna hafa nokkrir aðrir náttúrufræðingar og
áhugamenn safnað plöntum í Dalasýslu en aðeins í smáum stíl. Má
fyrst þar til nefna Eggert Ólafsson. Á ferðum sínum um landið 1752—57
athugaði hann víða gróður. í Dalasýslu tilnefnir hann eftirtaldar jurtir
sem algengar túnjurtir: Rumex acetosa, R. domestica, Leontodon
autumnalis, Caltha palustris, Capsella bursa pastoris, Ranunculus
acris, Taraxacum og Hieracium sp. og er þar vafalaust rétt með farið,
Jdví að tegundir þessar eru mjög algengar bæði í Dalasýslu og víðar.
Þar að auki tilgreinir hann Chamaenerion latifolium frá Sökkólfsá og
úr hólma í Laxá, Viola tricolor frá Kvennabrekku og Campanula ro-
tundifolia, frá Fellsendabökkum. Þessar þrjár síðast töldu tegundir
hefur hann fundið á mínu rannsóknarsvæði. Eina þeirra endurfann
ég ekki (C. rotundifolia), en þrátt fyrir það er ástæðulaust að rengja
þenna fund, því í fyrsta lagi er tegundin til í sýslunni og í öðru lagi
er planta þessi gjörn á að hafa stutt viðnám á vaxtarstöðum utan síns
eiginlega heimkynnis.
Þá safnaði danskur fiskifræðingur, Arthur Feddersen, plöntum hér
á landi á árunum 1884 og 1886. í safni hans eru til 2 tegundir, er hann
tók sunnan Hvammsfjarðarbotns, við Miðá. Það eru tegundirnar Carex
glareosa og Callitriche hamulata, og eru báðar algengar þar enn í dag.
Ennfremur hafa höfundur íslands Flóru, Stefán Stefánsson og Kjart-
an Helgason, prófastur, safnað plöntum að Hvamrni í Hvammssveit;
og í Saurbænum og víðar safnaði Markús Torfason, bóndi í Ólafsdal.
l) Floraen paa Snæfellsnes og Omegn. (Bot. Tidsk. 22. Bd. 2. H. 1890.)
28 Flóra - tímarit um íslenzka grasafræði