Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.05.1967, Qupperneq 60
en bugðupunturinn (D. jlexuosá) hefur minnkað verulega, en krumma-
lyng (E. hermafroditum) og túnvingull (F. rubra) aukizt að sama skapi.
Eski (Equisetum liiemale) er allmikið. Tegunda- og lífmyndahlutföll
sýna hækkun á A% og H%.
Vafasamt er, hvort rétt sé að greina sundur hverfin 82 og 84, en það
sem ég lét ráða úrslitum í því efni var, að krummalyng og bláberja-
lyng, sem eru ríkjandi tegundir í 84 vantar með öllu í 82.
Þar sem athuganirnar eru svo fáar úr þessu hálendis birkikjarri verð-
urskyldleiki þess við erlend gróðurfélög naumast rakinn. í fljótu bragði
virðist mér það standa næst Betuletum-Empetro-hylocomietum (Nord-
hagen 1943 p. 169), en birkiskógar láglendisins teljist hins vegar til Be-
tuletum-Myrtillo-Hylocomiosum (L. c. p. 146).
7. BERSVÆÐISGRÓÐUR
A. Flag. (Clayey flats).
Gróðurlendi það, sem kallað hefur verið flag á íslenzku, er rakt
gróðurlendi með ósamfelldum gróðri og liggur venjulega á mótum vot-
lendis og þurrlendis. Flög eru sjaldséð í hálendi íslands. Ég hefi áður
(Steindórsson 1945 p. 453) tekið undir þau unnnæli Mölholm Hansens
að flagagróðurinn sé sérstaklega tengdur láglendinu, enda var það í
fullu samræmi við reynslu mína þá. Síðar hefi ég séð, að flag með sömu
gróðursamsetningTi og einkennum og á láglendi, hittist einnig í há-
lendinu, einkum á hinum lægri svæðum þess. Hins vegar hefi ég ekki
gert nægar athuganir til þess að kveða á um efri útbreiðslumörk þess,
en hygg þó, að það finnist naumlega fyrir ofan 450 nr hæð. En alltaf
er það sjaldséð í miðhálendinu, Jró hefi ég fundið Jrað á nær öllum
rannsóknarsvæðunr nrínum. Hér ræði ég ekki flagagróðurinn almennt
en vísa til eldri ritgerða (Mölholm Hansen 1930 p. 70 og Steindórsson
1936 p. 445 og 1943 p. 49).
a. Naflagrassveit (Koenigietum islandicae).
Naflagras (K. islandica) er lrvarvettna einkennistegund flagsins. Hins
vegar er það allmisnrunandi, hverjar tegundir aðrar eru þar drottnandi.
í Skrá (Steindórsson 1951) hefi ég tilgreint þrjú lrverfi naflagrasflags-
ins. Af Jreinr er eitt hverfið naflagras-skurfu-skriðlíngresis lrverfið. (K.
islandica-Spergula arvensis-Agrostis stolonifera soc.) eingöngu bundið
58 Flóra - tímarit um íslenzka gkasaeræði