Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 31

Árbók skálda - 01.12.1958, Blaðsíða 31
29 og láta kvenstúdentar ekki sitt eftir liggja, enda fylgir styrknum og lán- unum vandræðalaus gjaldeyrisyfirfærsla og breiðgötur og búðargluggar Parísar eru girnilegt rannsóknarefni. Aftur á móti eiga þeir sem fást við að skapa bókmenntir ekki innangengt í þessari stofnun, þótt aðeins sé um að ræða lán í því augnamiði að viðkomandi geti kynnt sér menningar- líf annarra þjóða. Fyrir nokkru var fjárveiting til Menningarsjóðs rúmlega tvöfölduð. Drjúgum hluta aukningarinnar ætlar menntamálaráð, sem stjórnar sjóðn- um, að verja til útgáfu á hinum og þessum gömlu bókum sem allar eru fyrir löngu hættir að lesa og eru flestar enn til rykfallnar á hanabjálka- loftum bóksalanna, að söfnunum ógleymdum. En þegar það spurðist að ráðið væri samt í vandræðum með að koma peningum í lóg, fóru rithöf- undasamtökin þess á leit að félagskapnum yrði veitt nokkur upphæð til að gera nokkrum meðlima sinna kleift að vinna að samningu ritverka nokkra mánuði ársins. Ráðið samþvkkti að veita 10 þús. kr., en með því skilyrði að ekki meira en þrjú þúsund kæmu í hlut styrkþega og ekki meira en þúsund kr. á nránuði. Þetta hljómar eins og fyndni — og er það. En af hverju ekki teygja systemið til enda. Það eru rúmlega 100 manns í rithöfundasamtökunum. Af hverju eklci bara ein axlabönd á mann? Þau mættu vera úr nyloni og skreytt útsaumi til að gera þau eigulegri: Fram- lag Menningarsjóðs Islands til rithöfunda árið 1958. I versta falli gætu menn hengt sig í þeim þegar þeir byrja að stikna í vítislogum þeirrar kjarnorkustyrjaldar sem skollið getur á hvenær sem er og braskarar hér heima hafa verið svo forsjálir að panta hlutdeild okkar og barna okk- ar í með herstöðinni í Keflavík. Hinu er samt ekki að leyna og er að koma á daginn, að núverandi menntamálaráð stendur fyrirrennurum sínum langtum framar um fram- takssemi og ýmsar nýungar, því að stundum slysast loppan á einn og einn ás og sjást hans þá fljótlega merki, þótt ekki ráði hann einn öllum gangi spilsins. Þeir hafa m. a. efnt til skáldsögusamkeppni í tilefni afmælis og verðlaun stórmyndarleg og leyna ekki faðerninu, en hrifningin rýrnar um nokkra hundraðshluta þegar litið er á tilhögunina sem orðið hefur ofan á í ráðinu. Ráðið fylgdi nefnilega ekki hinu fyrsta, óvenjulega og óeigin- gjarna fordæmi yngsta bókafélags á landinu, Almenna bókafélagsins, sem verðlaunar verk án tillits til hver útgefandinn er og áskilur sér aðeins rétt til kaupa á nokkrum hluta upplagsins handa félagsmönnum sínum, og það er árleg hvatning og áframhaldandi, og ekki bundin við afmæli. En Menningarsjóður gefur sjálfur út verðlaunahandritið og auk þess sem forlagið hefur sæg félagsmanna, ldýtur sú bók sem verðlaunuð er með 75 þús. kr. að seljast í stóru upplagi á almennum bókamarkaði, þannig að krónurnar skila sér sennilega allar með tölu aftur í kassann, en þessi tilhögun, þar sem í hlut á ríkisrekin menningarstofnun, er nýstárleg send- ing í garð samherja í erfiðri menningarviðleytni, þ. e. þeirra forleggjara sem gefa út bókmenntir en ekki reyfara, en þeir veðja á unga höfunda svipað og menn veðja á hesta á skeiðvelli, og er samlíkingin fengin að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Árbók skálda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.