Árbók skálda - 01.12.1958, Page 38

Árbók skálda - 01.12.1958, Page 38
Jón frá Pálmholti: Skáldið og þjóðfélagið (Fáeinir leikmannsþankar.) Ég er ekki bókmenntafræðingur, en úr því mér hefir boðizt rúm í Árbók, þar sem gert er ráð fyrir umræðum um skáldskap okkar tíma, sem er mjög þarft umræðuefni og vel til fundið, þá langar mig að nota tæki- færið og gera tilraun til þess að svara nokkrum spurningum, sem ég hef borið upp við sjálfan mig og sem hafa stundum leitað á mig, ef einhver hefði ánægju af. Þetta verður ekki nema lauslegt rabb frá minni hendi um örfá atriði, en ég skal reyna að vera eins hreinskilinn og mér er mögulegt. Þá er fyrst að athuga: Hvað er Ijóð? Gömul austurlenzk þjóðsaga greinir frá á þessa leið: Einu sinni var ríðandi maður á ferð, og þar sem hann reið eftir þjóð- veginum kom hann auga á lítinn fugl, sem flýði undan stórum ránfugli. Smáfuglinn leitaði skjóls undir k\iði hestsins, en þar var litla vernd að fá, því hesturinn steig ofaná fuglinn og klessti hann til bana. Þegar maður- inn sá þetta fylltist brjóst hans heitri samúð, og hann gaf frá sér lága stunu. Þessi samúðarstuna mannsins varð upphaf fyrsta ljóðsins. Þannig er ljóðið samúðarstuna skáldsins, sem flytur dýpstu tilfinn- ingar þess og mestu reynslu. Skáldið stynur undan þunga samtíðar sinnar, undan harðýðgi og grimmd lífsbaráttunnar og óréttlæti þjóðfélagsins. Ljóðið getur átt uppruna sinn í umróti þjóðfélagsmála, yljað heitri rétt- lætiskennd og sterkri samúð með þeim, sem á einhvern hátt þjást eða eru lítils máttar. Einnig getur ljóð átt uppruna sinn í persónulegu lífi skáldsins, vakið af innri reynslu þess, vonbrigðum og fögnuði. Oft leggja svo bæði þessi atriði saman við myndun ljóðs. Það er ekki mikill atburður á heimsvísu þótt lítill fugl deyi drottni sínum, en það er einmitt eitt af sérkennum hins sanna skáldskapar að láta jafnvel minnstu viðburði endur- spegla hið stóra drama lífsins. Hversvegna yrkja menn Ijóð? Ég held að öll skáld yrki Ijóð af nauðsyn. Tjáningarþörf þeirra sé svo rík að þau geti ekki þagað. Hjá mér er þetta venjulega þannig að ýmis atvik, oft harla lítil í sjálfu sér, orka á mig með þeim liætti að mér finnst ég verða allur einhvernvegin gljúpur, finnst jafnvel stundum að ég muni gliðna í sundur þá og þegar. Taugarnar verða þandar og skynjun öll næmari en venjulega. Ég finn til þyngsla fyrir brjóstinu, eins og ég

x

Árbók skálda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.