Árbók skálda - 01.12.1958, Side 39

Árbók skálda - 01.12.1958, Side 39
37 þurfi að losna við eitthvað. Sé blað og ritfang við höndina, gríp ég livort tveggja og fer að krota eitthvað, oftast einhverja vitleysu, runu af manna- nöfnum, eða rissmyndir einhvers konar. Svo kviknar alltíeinu hjá mér afar mikilvæg hugsun, að mér finnst. Mér er þá næst að halda að ég hafi leist lífsgátuna til fulls. í sama bili hverfa brjóstþyngslin og mér fer að líða vel. Ég hreiðra um mig með pappírinn og blýantinn, eins vel og ég get, og fer að yrkja. Oftast fæðist hvert ljóðið eftir annað, stundum allt að tíu í lotu. Ég skrifa þau niður hvert á eftir öðru, legg þau svo frá mér og hreyfi þau ekki meir í nokkrar vikur eða mánuði. Stundum geta liðið ár þar til ég snerti þau aftur. Þá hefst hreinsunin. Flestum er kastað, en nokkur tekin fyrir, endurbætt og löguð til einsog ég framast get. Það getur líka komið fyrir að aðeins verði til eitt eða tvö 1 jóð í einu slíku kasti. Þá held ég stundum áfram með þau strax. Þessi köst geta staðið yfir misjafnlega lengi, frá ca. hálfri stund uppí tvær til þrjár stundir eða lengur. Þau koma einnig mjög óreglulega. Það geta liðið mánuðir án þess ég yrlci neitt, sem heitið getur, en stundum ryð ég þessu úr mér dag eftir dag. Það eru skemmtilegir dagar. Yfirleitt birti ég ekki efni opinberlega, nema bera það fyrst undir dómbæran mann. Form ljóðs? Ég álít að form Ijóðs eitt sér geti verið úrskurðaratriði um gildi Ijóðsins sem skáldskapar. Þessvegna finnst mér þær umræður, sem snúast aðallega eða eingöngu um form, næsta þarflitlar og stundum dálítið bros- legar. Auðvitað er hver sjálfráður að því hvaða form hann hefir á ljóð- um sínum, og í raun og veru hefir hvert Ijóð sitt form. Hver Ijóðhöfundur gefur verkum sínum eitthvað af eigin persónu, svo fremi að eitthvað sé í ljóð hans spunnið. Því bera ljóð hvers skálds oftast persónulegan svip, sem jafnan gætir í formum þeirra. Að yrkja ljóð með aðfengnu formi er einsog að kaupa notaða flík á fornsölu og segja hana nýja. Ég held það sé eðlilegast að Ijóðið sé sem frjálsast og sem minnst bundið. Það getur verið að sumir telji sér auðveldara að reyra Ijóð sín í viðjar ríms og stuðla, en mig grunar þó, að stundum sé þesskonar skáldskapur til orðinn frekar sem næturgaman lífsþreyttra piparsveina, eða sem afsprengi þeirrar íhald- semi sem kölluð er þjóðrækni, en að hann sé sprottinn af djúpri tjáningar- þörf og ríkri samúð með lífinu. Mér i'innst sú röksemd að menn eigi af- dráttarlaust að hafa rím og stuðla í ljóðum sínum vegna þess að for- feður okkar hafa gert svo í aldir, álíka viturleg þeirri skoðun, ef fram kæmi, að við ættum raunverulega að búa í óþiljuðum moldarhúsum, einungis af því forfeður okkar hafa búið í þannig híbýlum ámóta lengi og þeir hafa búið við endarímið. Ég yrki ekki án ríms og stuðla vegna hatnrs á slíkum hjálpar- gögnum, heldur vegna þess að mér finnst þetta ekki vera nein hjálpar- gögn, heldur þvinga mig og gera mér erfiðara fvrir. Mér finnst Hka eðlilegt að fylgja eftir þeirri þróun, sem orðið hefir á ljóðinu hér undan- farin ár. Það er eðli æskunnar að rísa gegn næstu kynslóð á undan og kveða sér hljóðs með ný sjónarmið og ný verkefni á nýjan hátt. Ef ungt

x

Árbók skálda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.