Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Side 42

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1976, Side 42
240 VALGARÐ THORODDSEN, rafmagnsveitustjóri: 250% AUKNING Á VIRKJUÐU VATNSAFLI Á VESTFJÖRÐUM Fimmtudaginn 22. júlí síðastliðinn var vígð ný vatnsaflsvirkjun Rafmagnsveitna ríkisins á Vestfjörðum. Virkjun þessi hefur verið nefnd Mjólká II, og er stöðvarhús hennar sambyggt fyrri virkjun, Mjólká I, fyrir botni Arnarfjarðar. Virkjunin nýtir fallorku vatna á hálendi Vest- fjarða í um 500 metra hæð yfir sjávarmál, en miðlunarmannvirki hafa verið byggð við 3 vötn Valgarð Thoroddsen, rafmagnsveitustjóri. þar, Langavatn, Hólmavatn og Tangavatn. Frá Langavatni liggur um 3800 metra löng þrýsti- vatnspípa úr stáli niður að stöðvarhúsi við sjáv- armál. Fallhæð þessarar nýju virkjunar er sú mesta, sem nýtt hefur verið hér á landi. Gamla stöðin er með 2400 kW vélaafli, en vatn til hennar er tekið úr um 200 m hæð yfir sjó. Þegar tekið er tillit til þeirra þriggja vatns- aflsvirkjana, sem fyrir eru á Vestfjörðum, Fossár við Bolungarvík, Engidals og Nónhorns við Isa- fjörð, sem eru samtals með um 1500 kW véla- afl —, þýðir hin nýja virkjun, Mjólká II, aukn- ingu virkjaðs vatnsafls á Vestfjörðum úr 3900 kW í 9600 kW eða um nær 250%. Á Vestfjörðum er erfiðara um rafvæðingu en í öðrum landshlutum, vegna veðurfars, línu- bygginga yfir há og brött fjöll og sæstrengja- lagna yfir djúpa firði. Af þeim sökum er óhjá- kvæmilegt að hafa varastöðvar, dísilstöðvar, á nasr öllum fjörðum. Slíkar dísilstöðvar eru nú á 9 stöðum á hinu samtengda svæði frá Flókalundi við Vatnsfjörð til Súðavíkur við ísafjarðardjúp. Vélaafl þessara varastöðva er nú um 5.400 kW, þar af um 2.200 kW sunnan Arnarfjarðar til ör- yggis fyrir Bíldudal, Sveinseyri, Patreksfjörð og Barðaströndina, vegna bilana, sem kynnu að verða á sæstreng yfir Arnarfjörð. Mesta álags- notkun á þessu suðursvæði er nú um 1900 kW, og er |m' byggðin þar betur búin varaafli en yfirleitt tíðkast. Raforkunotkun á Veslfjörðum var á árinu 1974 um 30 milljón kWst. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.