Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Side 12
SAMEINING SVEITARFELAGA
ríkisvaldinu. Verkefni, sem henta fyrir 2-3 sveitarfélög,
t.d. samstarf um grunnskóla, yrðu að leysast meö
byggðasamlagi.
Það er mat nefndarinnar, að sé horft til framtíðar, þá
skili þessi leið minnstum árangri af leiðunum þremur.
SVEITARFÉLÖG Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU - TILLÖGUR
Niðurstaða nefndarinnar er sú, að við skiptingu
þéttbýlissvæða eins og höfuðborgarsvæðisins upp í
einingar eru heppileg rekstrar- og þjónustusvæði ým-
issa félagslegra málaflokka mun minni en heppileg
samstarfssvæði um tæknilega þjónustu, umferðarmál,
skipulagsmál o.fl.
Hugmynd nefndarinnar er sú, að á höfuðborgar-
svæðinu verði stofnað svæðisráð, sem sveitarstjórn-
irnar kjósi til. Verkefni þess verði m.a. skipulagsmál,
umferðarmál, almannavarnir, almenningsvagnasam-
göngur, sorpeyðing, brunavarnir, veitukerfi og e.t.v
önnur tæknileg þjónusta. Jafnframt er það tillaga
nefndarinnar, að ríkið myndi fela svæðisráðinu nokkur
svæðisbundin verkefni til úrlausnar, svo sem lögreglu
og sjúkraflutninga. Þá er líka bent á þann möguleika,
að við þessa breytingu gæti rlkið hugsanlega falið
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu fleiri verkefni,
svo sem rekstur heilsugæzlu, framhaldsskóla og e.t.v.
sjúkrahúsa.
TILLÖGUR UM AÐGERÐIR
[ skýrslu nefndarinnar koma fram tillögur um að-
gerðir. Nefndin hefur ekki valið á milli 1. og 2. leiðar,
en telur, að 3. leið skili ekki tilætluðum árangri. Tillögur
um aðgerðir velta á því, hvor leiðin verður valin, en eru
þó í stuttu máli eftirfarandi fyrir sveitarfélögin utan höf-
uðborgarsvæðisins:
1. Lágmarksíbúatala sveitarfélaga myndi hækka frá
því sem nú er og veröa 200 íbúar, ef 1. leið er valin,
en ekki verður beitt lágmarksibúatölu, ef 2. leið
verður valin. Hugsanlega er til millileið með því að
hækka lágmarksíbúatölu upp í t.d. 400 íbúa.
2. Breytingar eru lagðar til á fyrirkomulagi kosningar
um sameiningu sveitarfélaga, þ.e. að atkvæði veröi
talin sameiginlega í öllum sveitarfélögum á því
svæði, sem tiliaga er um að sameina, nema eitt
þeirra hafi fleiri en % íbúanna.
3. Reglum um fjárhagslegan stuðning Jöfnunarsjóös
sveitarfélaga vegna sameiningar sveitarfélaga
verði breytt.
4. Samræmi verði á milli umdæmamarka sveitarfélaga
og stjórnsýslu- og þjónustuumdæma ríkisins.
3. mynd. 2. leið. Dæmi um hugsanlega skiptingu landsins i 25 sveitarfélög utan höfuöborgarsvæðisins.
258