Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 15

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 15
SAMEINING SVEITARFÉLAGA Hörðudalshreppur og Miðdalahreppur verða Suðurdalahreppur Hörðudalshreppur og Miðdala- hreppur, tveir syðstu hreppar Dalasýslu, verða sameinaðir í einn hrepp frá 1. janúar 1992, og heitir nýi hreppurinn Suðurdalahreppur. Er þetta tilkynnt með auglýsingu félagsmálaráðuneytisins frá 14. nóvember. [ Hörðudalshreppi voru 45 ibúar hinn 1. desember 1990, og hafði ibúatalan þá verið lægri en 50 í þrjú ár samfleytt. í Miðdalahreppi voru 100 íbúar hinn 1. desember 1990. [ Hörðudalshreppi eru nú þrír hreppsnefndarmenn, en í Mið- dalahreppi fimm. Umboð þeirra fellur niður hinn 1. janúar 1992, er hreppsnefnd Suðurdalahrepps leysir þá af hólmi, en hún verður skipuð fimm fulltrú- um. Samkomulag varð milli fráfrandi hreppsnefnda um að bera fram einn lista við kosningu hrepps- nefndar Suðurdalahrepps, sem ráðuneytið ákvað, að fram skyldi fara 14. desember. Annar listi kom ekki fram, og hefur fyrsta hrepps- nefnd hins nýja hrepps því orðiö sjálfkjörin. Fyrstu hreppsnefnd Suðurdala- hrepps skipa: Guðmundur Gíslason, Geirshlíö Guðmundur Pálmason, Kvennabrekku Þorsteinn Jónsson, Dunkárbakka SET SNJÓBRÆÐSLURÖR • Fullnýtum orku heita vatnsins meö SET - snjóbræðslurörum undir stéttar og plön. • SET - snjóbræðslurör eru gerð úr fjölliða poly propelyne plastefni af viðurkenndri gerð. • Hita- og þrýstiþol I sérflokki. • SET - snjóbræðslurör og hitaþolin vatnsrör eru framleidd I eftirfarandi stærðum 20mm, 25mm, 32mm og 40mm. EYRAVEGI 43•800 SELFOSSI Box 83 • SÍMI 98-22700 • Fax 98-22099 261

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.