Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 33

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 33
UMHVERFISMÁL viö sorphirðu. Ef þessi byggðarlög taka ekki upp samstarf við stærri aðila, er allt útlit fyrir, að þessir smærri aðilar verði að fara fram á styrki til þess að uppfylla lág- marksákvæði heilbrigðis- og mengunarreglugeröa. Eftir að undirbúningsvinna hefur verið unnin af sérfróöum aðilum og allt skipulag liggur fyrir, bæöi í heild og fyrir hvert byggðarlag, er einnig hugsanlegt að bjóða út hönnunarvinnu mannvirkjanna, ef þaö teldist hagstætt eða eðlilegt, t.d. vegna tillits til þeirra tækni- manna, sem óska eftir að vinna að þessum málum. Þegar undirbúningsvinnu er lok- ið og Ijóst er, hvaða leið er hent- ugust og hagkvæmust fyrir hvert byggðarlag, er unnt að átta sig á því, hver stofnkostnaður er og rekstrarkostnaður á hvern íbúa á ári. Þá liggur fyrir, hvort viðkom- andi byggðarlag getur staðið undir kostnaðinum. Ef einhver vand- kvæði væru með kostnaðinn, þá mundu niðurstöður undirbúnings- vinnunnar leiöa I Ijós, hvaða ráð- stafanir væru nærtækastar til að bregöast viö slíkum vanda. Af ofansögðu má telja, að eðli- legast sem næsta skref í þessum málum væri, aö þau sveitarfélög, sem vilja vinna saman að þessu, skipi með sér þriggja til fimm manna stjórn, sem hafi umboð til að vera sameiginlegur fulltrúi þeir- ra í þessum málum og hrinda þeim í framkvæmd. Einnig er hugsanlegt að skipa stjórn á þann hátt, að samtök sveitarfélaga í landshlut- unum tilnefndu einn mann hver og umhverfisráðuneytið einn mann til að aðstoða við samræmingu að- gerða. Ekki er ólíklegt, að vinna þurfi samhliða að því að setja fram ýmsar reglur, t.d. um mengunar- varnir vegna sorphirðu, fyrir hvert byggðarlag, samhliða því sem undirbúnings- og rannsóknarvinna fer fram. Verkfræðistofa Sigurðar Sig- urðssonar (VSS) og brezka ráö- gjafarfyrirtækið LG Mouchel & Partners Ltd. hafa ákveöið að bjóða sveitarfélögum háþróaða ráðgjafarþjónustu til vinnslu undir- búningsvinnu vegna sorphirðu og endurvinnslu. LG Mouchel & Partners Ltd. hafa í þjónustu sinni um eitt þúsund verkfræðinga og sérfræðinga, og hefur fyrirtækið unnið fjölda verk- efna á sviði sorphiröu og endur- vinnslu í Bretlandi og á erlendum vettvangi. Greinarhöfundur, eig- andi VSS, sem hefur starfað sjálf- stætt að hönnunar- og ráðgjafar- störfum frá árinu 1979, hefur aðaliega sérhæft sig í áætlanagerð og heildarumsjón með verklegum framkvæmdum. Á kynningarfundi sem haldinn var I Súlnasal Hótel Sögu 21. nóv- ember sl., voru hugmyndir LG Mouchel & Partners Ltd. um sorp- hirðu og endurvinnslu á íslandi kynntar. Það er von þeirra, sem stóðu að fundinum, aö hann hafi orðið málefni þessu til framdráttar. Vandað merki Vönduð vinnubrögð Með nýju ljósritunarvélunum og telefaxtækjunum mætum við kröfum nútímans og opnum þér leið að markaði framtíðar. -jKf- Konica þjónusta Viðrekum fullkomna tækni- og þjónustudeild. Tæknimenn okkar fylgjast vel með öllum nýjungum og tækniþróun og eru því ávallt með á nótunum. Hjá okkur fáið þið allar Konica U-BK rekstrar- vörur og varahluti. Verið velkomin í söludeild okkar að Siðumúla 23 og kynnið ykkur kosti Konica. Siðumúla 23 108 Reykjavik Simi: 91-679494 Fax: 91-679492 279

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.