Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Side 40

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Side 40
HITAVEITUR Hitaveita Blönduóss: Frá skömmtun til mælingar Guðbjartur Á. Ólafsson, bæjartæknifræóingur Blönduóss Hitaveita Blönduóss hóf starf- semi árið 1977 og nýtti þá sjálfrennandi vatn frá tveimur bor- holum á lághitasvæðinu að Reykj- um í Torfalækjarhreppi um ca. 14 km aðveituæö, en Reykir eru u.þ.b. 100 m hærra yfir sjó en Blönduós. Á árin'u 1979 var sjálfrennsli hætt að anna vatnsþörf veitunnar, og var þá boruð ný hola, nefnd hola 6, og sett í hana dæla árið 1980 svo og afkastamestu holuna, holu 5. Árið 1983 var sett dæla í þriðju nýtanlegu holuna, holu 4, sem þjónaði meira sem varaafl í bilun- artilfellum en aö meira vatns væri þörf. Niðurdráttur á svæðinu hafði aukizt jafnt og þétt og illa gengið að stjórna dælingunni með tilliti til þrýstings I dreifikerfi og aðveitu- æð. Var því á árinu 1983 settur upp hraðastýribúnaður á dælu í holu 5, en dæla í holu 6 látin ganga stöð- ugt. Árið 1986 var dæla I holu 5, sem er 876 m djúp, komin í 120 m og vatnsborð við fulla dælingu í 115 m. Dæla í holu 6, sem er 1676 m djúp, var komin í 80 m og vatns- borð við venjulega dælingu í 73 metra dýpt. Dæla í holu 4, sem er 1186 m djúp, var í 100 m og vatnsborð 190 m án dælingar, og ekki var hægt að dæla nema stutta stund á fullum afköstum, áður en dæla dró loft. Ljóst var, að í óefni stefndi, og var nú leitað leiða til að snúa dæminu við, og var einna helzt horft til þriggja möguleika: 1. Að byggja kyndistöð (topp- stöð), sem kæmi inn á álags- tímum. 2. Að virkja á nýjum stað. 3. Að minnka vatnsnotkun, t.d. með breyttu sölufyrirkomulagi. Hemlarnir - skömmtunar- fyrirkomulagið Árið 1987 var hemlakerfið orðið 10 ára og hafði á þessum tíma dregið fram alla ókosti sína: 1. Bilanatíðni var orðin mjög há. 2. „Þekking" notenda á hemlun- um var orðin mjög útbreidd. 3. Neyzluvatn var misnotað, t.d. í heita potta. 4. Víxlverkanir gjaldskrár og skammtakaupa höfðu náð það langt, að veitan var sögð ein sú dýrasta á landinu, án þess þó að allir fengju fullnægjandi hita. Gjaldskráin hafði á sínum tíma gert ráð fyrir, að notandi nýtti 60% af þeim skammti, sem hemillinn var stilltur á, en eftir tilraunamælingar á nokkrum völdum stöðum, lá það fyrir, að notkunin var eitthvað yfir 100%, sem einnig kom fram í því, að þrátt fyrir 35 l/sek. dælingu voru aðeins skráðir kaupendur að 28 l/sek. Þaö reyndi nokkuð á starfsmenn veitunnar að sannfæra aðra um, aö breytt sölufyrirkomulag væri likleg- asta leiðin að markmiðinu, en studdir af víösýnni veitunefnd og brautryðjendastarfi Hitaveitu Akur- eyrar í sama vanda, var tekin ákvörðun um að breyta sölufyrir- komulaginu 1989, þ.e.a.s. að setja upp rennslismæla í stað hemlanna og að selja heitt vatn samkvæmt mældri notkun. Tonn 100000 80000 60000 40000 20000 0 1. mynd. Grái flöturinn sýnir vatnssparnaö milli áranna 1988 og 1990 á árinu í heild og i einstökum mánuöum. Eftirtekt vekur, aö sparnaður næst á öllum mánuöum ársins. 286

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.