Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 12
F U LLTR ÚARÁÐS F U N D I R
• Húsaleigubætur verði skattfrjálsar eins og vaxtabætur
og annar opinber stuðningur við öflun húsnæðis.
• Húsaleigubætur nái til alls leiguhúsnæðis óháð eign-
arfonni þess, m.a. til leiguhúsnæðis ríkis og sveitar-
félaga.
• Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiði hlutdeild í húsa-
leigubótum sveitarfélaganna sem miðist við tilteknar
fjárhæðir með hámarki og lágmarki, sem kveðið
verði á um í reglugerð svo og ákveðnum tekju- og
eignaviðmiðunum. Einstakar sveitarstjórnir hafi
ákvarðanavald um fjárhæð húsaleigubóta umfram
endurgreiðslureglur jöfnunarsjóðs.
Fulltrúaráðið telur að nýtt húsaleigubótakerfi, sem
grundvallast á framangreindum meginatriðum, feli í sér
ýmsa veigamikla kosti:
• Húsaleigubætur munu nýtast vel sem fjárstuðningur
við alla tekjulága leigjendur án tillits til þess hver
eigandi húsnæðisins er.
• Leigjendum og húseigendum verði ekki lengur mis-
munað skattalega.
• Opinber stuðningur við leigjendur verður sýnilegur
en ekki dulinn með óeðlilega lágri húsaleigu.
Nýtt víðtækt húsaleigubótakerfi, sem nær til alls
leiguhúsnæðis, inun í framtíðinni draga úr þörf fyrir
byggingu félagslegra leiguíbúða og félagslegra eignar-
íbúða.
Nýr varamaóur í fulltrúaráóinu
A fundinum var Bergþóra Annasdóttir á Þingeyri,
varabæjarfulltrúi í ísafjarðarbæ, kosin til þess að vera
annar varafulltrúi fyrir Vestfirði í fulltrúaráðinu.
Hún kemur í fulltrúaráðið í staðinn fyrir Halldór K.
Hermannsson, fv. sveitarstjóra í Suðureyrarhreppi, sem
misst hafði kjörgengi vegna brottflutnings úr hreppnum
og sameiningar hreppsins við Isafjarðarkaupstað og fleiri
sveitarfélög.
Fundarslit
I ræðu sinni við slit fundarins taldi Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson félagslega íbúðakerfið mikilvægasta málið
sem fundurinn hefði haft til afgreiðslu. Önnur efni væru
líka markverð og kvaðst sannfærður um að það myndi
leiða til inikilla umbóta ef tillögur fundarins næðu al-
mennt fram að ganga.
í hádeginu fyrri fundardaginn bauð borgarstjórn
Reykjavíkur fundannönnum og gestum til hádegisverðar
í Höfða og um kvöldið hélt félagsmálaráðhena síðdegis-
boð í ráðstefnusölum ríkisins í Borgartúni 6. Að því
loknu var kvöldverður snæddur þar í boði sambandsins.
I
Z
I
íslersk framleiðsla
siðan 1972
SEMENTSBUNDIN
MÚRKLÆÐNING
Létt og sterk, sem fegrar, ver og einangrar
■■
Sl steinprýði
Stangarhyl 7, sími 567 2777, fax 567 2718
ELGO múrklaeðning varðveitir upprunalegt útlit hússins ólikt ál- og
stálklaeðningum. Góð einangrun, vörn gegn vatni og vindum og glæsilegt útlit
einkennir þessa islensku framleiðslu. Yfir 25 ára reynsla Elgo viðhalds-
frágangs- og viðgerðarefna er þín trygging.
Kynntu þér ELGO múrklaeðningu áður en þú ákveður annað.
LÍMMÚR
ELGO MÚRKLÆÐNINGIN hefur verið undir eftirliti RB síðastliðin 5 ár og
hefur farið í gegnum ýmsar prófanir svo sem, NORDEST NT Build 66 og
staðist þær allar. ELGO MÚRKLÆÐNINGIN var tekin út síðastliðið sumar af
Birni Marteinssyni verkfræðingi hjá RB, ÁN ATHUGASEMDA.
Flest ELGO efnin hafa verið prófuð hjá RB.
STEINING
TREFJAMUR
Efni og vinna:
Verð frá
kr. 4.950,- pr. m2
tilbúið m/málningu
1 38