Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Síða 13

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Síða 13
LIFEYRISMAL Staða sveitarfélaga vegna breytinga á líf- eyrissjóðsmálum og tillögur um aðgerðir Karl Björnsson, bœjarstjóri á Selfossi I. Inngangur I nóvember 1995 skipaði fjár- málaráðherra nefnd til að yfirfara lífeyrismál opinberra starfsmanna og þá sérstaklega lög um Lífeyris- sjóð starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóð hjúkrunarkvenna. Auk nokkurra fulltrúa fjármálaráðuneytis voru tilnefndir í nefndina fulltrúar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), Bandalags háskóla- rnanna (BHM), Kennarafélags Is- lands (KI) og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH). Astæða þess að þessi mál voru tekin til umfjöllunar er öllunt Ijós. Gildandi reglur og framkvæmd laga um iífeyrisréttindi opinberra starfs- manna hafa leitt af sér gífurlega uppsöfnun lífeyrisskuldbindinga af hálfu opinberra launagreiðenda sem leggjast munu á þá og komandi kynslóðir með sívaxandi þunga með hverju ári sem líður ef ekki verður brugðist við á viðeigandi hátt. Eina raunhæfa leiðin til þess er að fulln- usta jafnóðum með samtímagreiðsl- um þau réttindi sem lífeyrissjóðir bjóða. Þetta verður nánar skýrt hér á eftir. í ljósi þessa setti nefndin sér ákveðin markmið um breytingar á gildandi reglum og setti þær fram í frumvarpi við lok nóvember 1996. Frumvarpið var samþykkt lítið breytt í desember sem lög nr. 141/1996. Helstu atriði nýju laganna, sem fyrst og fremst fjalla um Lífeyris- sjóð starfsmanna ríkisins, eru eftir- talin: • Stofnuð er ný A-deild við LSR. • Eldra kerfi er breytt í B-deild og henni lokað fyrir nýjum starfsmönn- um. • Núverandi sjóðfélagar halda áfram aðild að B-deild ef þeir kjósa svo. • Öllum núverandi sjóðfélögum er boðið að færa sig úr B-deild yfir í A-deild. • I A-deildinni verða iðgjöldin fullnustuð með samtímagreiðslum. Iðgjöldin verða mun hærri en nú er og stofnast því ekki til lífeyrisskuld- bindinga síðar. • í A-deildinni verða iðgjöldin samtals 15,5% af öllum launum, þ.e. hlutur launagreiðanda 11,5% og launþega 4%, en í B-deild 10% af grunnlaunum, þ.e. 6% hlutur launa- greiðanda og 4% hlutur launþega. Athygli vakti að sveitarfélögum var hvorki við upphaf málsins né á vinnslutíma þess boðið að tilnefna fulltrúa til að taka þátt í störfum nefndarinnar þrátt fyrir að hlutverk hennar hefði verið skilgreint þannig að hún ætti að yfirfara lífeyrismál opinberra starfsmanna en ekki ein- ungis að fjalla um lífeyrissjóðsmál ríkisstarfsmanna. Það var svo ekki fyrr en 14. nóv- ember 1996 að mögulegt var að halda á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga kynningarfund um fyr- irhugaðar breytingar á LSR vegna þess að upplýsingar um málið voru einfaldlega ekki tiltækar fyrr. Fundurinn samþykkti að beina því til stjórnar sambandsins að þriggja manna starfshópur myndi kanna áhrif þessara breytinga fyrir sveitarfélögin og legði fram tillögur um hvemig þau gætu brugðist við í tilefni þeirra. I framhaldi af því skipaði stjóm sambandsins í þriggja manna starfs- hóp þá Karl Bjömsson, bæjarstjóra á Selfossi, Gunnar Rafn Sigur- bjömsson, starfsmannastjóra í Hafn- arfirði, og Jón G. Kristjánsson, starfsmannastjóra Reykjavíkurborg- ar, en starfshópurinn naut síðar að- stoðar Vigfúsar Asgeirssonar, sér- fræðings hjá Talnakönnun hf., og Garðars Jónssonar, deildarstjóra hjá sambandinu. Starfshópurinn skilaði niðurstöð- um sínum í greinargerð til stjórnar sambandsins, dags. 16. des. 1996, sem samþykkti að senda greinar- gerðina til kynningar hjá sveitarfé- lögum landsins. í henni er leitast við að greina stöðu málsins í aðalatriðum, fjallað er um helstu valkosti sveitarfélaga í stöðunni og settar fram tillögur um framhald málsins sem felast í aðal- atriðum í því að lagt er til að stofn- aður verði sameiginlegur lífeyris- sjóður sveitarfélaga með grunnrétt- indum og séreignarfyrirkomulagi. Þegar þessar upplýsingar Iágu 1 39

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.