Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 19
LÍFEYRISMÁL
ekki rýra verðmæti þeirra lífeyris-
réttinda sem starfsmenn í opinber-
um stéttarfélögum sveitaifélaga búa
nú við.
• Að við aðgerðir sínar miði sveit-
arfélög við að starfsmönnum verði
tryggður grunnlífeyrisréttur í sam-
tryggingarsjóðum en það sem um-
fram er fari til séreignarsjóða eða til
séreignardeilda samtryggingarsjóða.
• Að sveitarfélög með sjálfstæða
lífeyrissjóði geti ekki til lengri tfma
litið einungis boðið starfsmönnum
sínum hefðbundin B-deildarréttindi
með tilheyrandi uppsöfnun lífeyris-
skuldbindinga.
• Að sveitarfélög sem nú eiga aðild
að LSR og þau sem starfrækja eigin
sjóði beri að nýta sér þær aðstæður
sem nú eru uppi og breyta fyrir-
komulagi lífeyrissjóðsmála sinna.
• Að allar breytingar á lífeyris-
sjóðsmálum stéttarfélaga opinberra
starfsmanna verði gerðar í góðu
samráði við viðkomandi stéttarfélög
og heildarsamtök þeirra.
• Þar sem óeðlilegt er talið að
sveitarfélög beri ábyrgð á lífeyris-
réttindum starfsmanna sinna með
breytilegu iðgjaldi er eðlilegt að
stefna að því við útfærslu tillagna
um breytt fyrirkomulag í lífeyris-
málum sveitarfélaga að fella út
ábyrgðina.
c) Framvinda málsins
Nefndin telur einsýnt að lífeyris-
sjóðsmál sveitarfélaga þróist með
eftirtöldum hætti í nánustu framtíð:
• Að sveitarfélög sem það kjósi
stofni sameiginlegan lífeyrissjóð
sveitarfélaga (LS). Reglur um líf-
eyrisréttindi sjóðfélaganna yrðu
sniðnar eftir grunnreglugerð SAL-
sjóðanna. Lífeyrisiðgjöld yrðu því
samtals 10% af heildarlaunum
starfsmanna, þ.e. 4% iðgjald laun-
þega og 6% iðgjald sveitarfélaga.
Til viðbótar greiði sveitarfélagið
5,5% í séreignardeild LS eða tryggi
með öðrum hætti séreignarfyrir-
komulag þess hluta lífeyrisspamað-
arins í samráði við starfsmenn.
• Að sveitarfélög sem það kjósi
taki upp viðræður við einhvern
SAL-sjóð á grundvelli gildandi
reglna um slíka sjóði. Lífeyrisið-
gjöld yrðu því samtals 10% af heild-
arlaunum starfsmanna, þ.e. 4% ið-
gjald launþega og 6% iðgjald sveit-
arfélaga. Til viðbótar greiði sveitar-
félagið 5,5% í séreignardeild eða
tryggi með öðrum hætti séreignar-
fyrirkomulag þess hluta lífeyris-
sparnaðarins í samráði við starfs-
menn og viðkomandi SAL-sjóð.
d) Tillögur um nœstu skref
Lagt er til að Samband íslenskra
sveitarfélaga feli lífeyrissjóðsnefnd-
inni umboð til að vinna áfram að
fullvinnslu málsins og veiti henni
jafnframt heimild til að ráða sér-
fræðing sér til aðstoðar. Hlutverk
hans verður annars vegar að leiða
saman þau sveitarfélög sem áhuga
hafa á stofnun lífeyrissjóðs sveitar-
félaga og hins vegar að aðstoða þau
Á fundi stjórnar sambandsins
hinn 18. apríl var kynnt samkomu-
lag sem formaður hafði gert við for-
mann Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja (BSRB) um lífeyrismálin.
Samkomulagið er þess efnis að
komið verði á fót sex manna nefnd
með þremur mönnum frá hvorum
aðila, sambandinu og BSRB, með
það hlutverk:
• að fjalla um framtíðarskipan líf-
eyrissjóðsmála sveitarfélaganna,
• að tryggja að lífeyrisréttindi
starfsmanna sveitarfélaganna rýrni
ekki frá því sem nú er og verði jafn-
gild þeim réttindum, sem breytingar
á LSR hafi haft í för með sér,
• að fjalla um kosti og galla mis-
munandi lífeyriskerfa og kynna nið-
urstöðu þeirrar umfjöllunar fyrir
sveitarfélög sem ákveða að fara aðr-
ar leiðir í lífeyrismálum svo sem að
semja við SAL-sjóði í viðkomandi
Iandshlutum.
Gert er ráð fyrir að hluti nefndar-
innar myndi framkvæmdanefnd sem
haldi reglulega samráðsfundi með
fulltrúum heildarsamtaka stéttarfé-
laga opinberra starfsmanna um mál-
ið.
Stefnt skal að því að endanlegar
niðurstöður liggi fyrir eigi síðar en
við lok septembemiánaðar 1997.
Ályktun fulltrúarádsins
Á fundi fulltrúaráðsins sem hald-
inn var 21. og 22. mars sl. var síðan
gerð ályktun um lífeyrismál sveitar-
félaga þar sem tekið er undir tillög-
ur starfshópsins og er ályktunin birt
annars staðar í þessu tölublaði með
öðrum ályktunum fundarins.
sveitarstjórnum og aðildarfélögum
BSRB. '
Nefndin skal ljúka störfum eigi
síðaren 1. október 1997.
Af hálfu sambandsins hefur stjóm
þess skipað í nefndina þá Jón G.
Kristjánsson, starfsmannastjóra
Reykjavíkurborgar, eftir tilnefningu
borgarinnar, Karl Bjömsson, bæjar-
stjóra á Selfossi, og Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson, starfsmannastjóra
Hafnarfjarðarbæjar.
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja hefur skipað í nefndina þau El-
ínu Björgu Jónsdóttur, formann
Samflots bæjarstarfsmanna, Sjöfn
Ingólfsdóttur, formann Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar, og
Ögmund Jónasson, formann BSRB.
Nefnd um framtíðarskipan
lífeyrismála sveitarfélaga
1 45