Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 22
UMHVERFISMAL
Skógræktarfélag Árnesinga hóf áriö 1941 ræktun á birkiplöntum í lítilli gróörarstöö á
Selfossi og nefndi hana Tryggvagarð eftir Tryggva Gunnarssyni bankastjóra. Síöar af-
henti félagiö sveitarfélaginu gróörarstööina og var hún þá gerö aö skruögaröi. Hæstu
trén í garöinum eru nú 12-13 metra há.
í dag. Á vegum skógræktarfélag-
anna eru gróðursettar eitthvað á
aðra milljón plantna árlega.
Umhirða hefur verið eitt af vax-
andi viðfangsefnum félaganna og
eðli málsins samkvæmt mun um-
hirða aukast þegar skógarnir vaxa
og stækka. Umhirðan felst fyrst og
fremst í áburðargjöf og annarri að-
hlynningu fyrstu árin en grisjun og
stígagerð þegar frá líður. Undanfar-
in ár hefur Skógræktarfélag Islands
boðið aðildarfélögum sínum upp á
grisjunarþjónustu en farandflokkur
á þess vegum hefur þá farið um
landið og grisjað fyrir félögin.
LandgrœSsluskógar
Verkefnið Landgræðsluskógar
hófst árið 1990 undir forystu Skóg-
ræktarfélags Islands og aðildarfé-
laganna en auk þess voru þrír aðrir
samstarfsaðilar, Skógrækt ríkisins,
Landgræðsla ríkisins og landbúnað-
arráðuneytið. Með átakinu var stigið
nýtt skref í skógrækt á Islandi. Sam-
einaðar voru í eitt aðferðir land-
græðslu og skógræktar og ræktaður
skógur á ógrónum og lítt grónum
svæðum. Farið var á svæði sem ekki
hafði verið reynt að rækta skóg á
áður þannig að með þessu skrefi var
farið inn á að mörgu leyti ókannaðar
slóðir. Með Landgræðsluskóguni
hefur verið teygt á mörkurn rækt-
aðra skóga eins og árangur sjö ára
ræktunar ber glöggt vitni. Gengið
hefur verið frá um 100 samningum.
Landspildur þessar eru allt að 60% í
eigu sveitarfélaga víðs vegar um
land og hafa tengsl sveitarfélaga og
skógræktarfélaga aukist í kjölfar
þessa verkefnis. Til þessa hafa hátt í
8 millj. plantna verið gróðursettar á
veguni Landgræðsluskóga.
Frœðslumál
Eitt aðalverkefni Skógræktarfé-
lags íslands er að veita fræðslu um
skóg- og trjárækt og auk þess hafa
mörg aðildarfélögin sinnt þessurn
þætti af mikilli prýði. Þetta starf
hefur vaxið verulega síðustu ár enda
er áhugi á skóg- og trjárækt veruleg-
ur í þjóðfélaginu og kallar á upplýs-
ingar af ýmsum toga er varða skóg-
rækt. Gefið er út Skógræktarritið
sem er fagrit og auk þess fá félags-
menn og stuðningsaðilar fréttablað-
ið Laufblaðið 2-3 sinnum á ári auk
annarrar útgáfu þegar henta þykir.
Aðildarfélögin hafa einnig gefið út
bæði bækur og fréttablöð og er þessi
útgáfa sums staðar í miklum blóma.
Þá hafa þau einnig haldið námskeið
af ýmsum toga.
Yrkjiisjóðiirinn
Yrkjusjóðurinn var stofnaður í til-
efni af 60 ára afniæli Vigdísar Finn-
bogadóttur, þáverandi forseta Is-
lands. Sjóðurinn varð til fyrir tilstilli
velunnara forsetans sem gáfu út
bókina Yrkju, sem seld var um allt
land. Söluhagnaður myndaði Yrkju-
sjóðinn og óskaði Vigdís þess að
hlutverk hans yrði það fyrst og
fremst að kosta og stuðla að skóg-
rækt rneðal æskufólks. Skógræktar-
félagi Islands var falið að varðveita
sjóðinn en sérstök stjórn fer með
ákvörðunarvald. Stjóm sjóðsins hef-
ur úthlutað árlega úr honum frá ár-
inu 1992. Úthlutað hefur verið hátt í
200 þúsund trjáplöntum og allt að
30 þúsund nemendur hafa tekið þátt
í gróðursetningu. Skógræktarfélögin
hafa tekið á móti ungmennum, leið-
beint þeim við gróðursetningu og
útvegað lönd ásamt verkfærum.
Skógar fyrír alla
Á síðustu árurn hefur árangur af
ræktun áratuga gamalla skógarreita
verið að koma í ljós. Svæði þessi
hafa reynst mikið aðdráttarafl úti-
vistarunnenda. Til að örva og hvetja
hinn almenna borgara til að nýta sér
þessi svæði enn frekar hafa skóg-
ræktarfélögin efnt til skógardaga og
kynningar á starfsemi sinni. Iðulega
hefur þetta verið gert í samstarfi við
sveitarfélög og aðra stuðningsaðila
félaganna.
Sjálfboðastarf - landnemaspildur
Þrátt fyrir mikið framboð á ýmiss
konar afþreyingu í nútíma samfélagi
hefur það ekki komið í veg fyrir öfl-
ugt sjálfboðastarf félaganna. Mesta
starfið liggur vissulega í félagslegri
uppbyggingu skógræktarfélaga-
hreyfingarinnar. Víða hafa skóg-
ræktarfélögin úthlutað svokölluðum
landnemaspildum á umráðasvæðum
sínuni. Upphaf landnemaspildna má
rekja allt aftur til upphafsáranna í
1 48