Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Side 31

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Side 31
FRÆÐSLUMAL skólalóðinni." 2. verðlaun, og þar með hönnun Borgaskóla, hlutu arkitektarnir Arni Kjartans- son og Sigbjöm Kjartansson hjá KÍM sf. og arkitektarnir Jóhannes Þórðarson og Sig- urður Halldórsson hjá Glámu sf. Umsögn dómnefndar um þessa tillögu var m.a. eftirfar- andi: Tillaga höfunda fellur vel að forsögn dómnefndar sem lausn á heildstæðum, einsetn- um grunnskóla. Þeim tekst vel að samræma sveigjan- leika skólans og skólastarfs- ins. Form aðalbyggingarinn- ar og staðarval hennar skapar skjólgóð leiksvæði og skóla- lóðin er vel skipulögð og auðvelt að hafa yftrsýn yftr hana frá skólahúsinu. Um- ræðan um einsetinn gmnnskóla og aukna kennslu nem- enda hefur ekki síst snúist um stöðu verk- og listgreina í skólakerfinu. Flestir aðhyllast þá skoðun að í skóla fram- tíðarinnar beri að leggja meiri áherslu á þessa þætti. Hugmynd tillöguhöfunda um sjálfstætt verkgreinahús undirstrikar þessa hugsun um leið og slíkt staðarval auð- veldar aðgengi hennar utan hefðbundins skólatíma. 3. verðlaun, og þar með hönnun Víkurskóla, hlaut Sig- urður Gústafsson arkitekt. Umsögn dómnefndar um þessa tillögu var m.a. eftir- farandi: Meginhugmynd tillögunnar sem sjálfstætt „þorp“ á skólalóðinni, með þarfir bamanna í fyrirrúmi, er í senn frumleg og skemmtileg og hún verkar einnig hvetjandi fyrir starfsemi skólans. Tillagan er að mörgu leyti spenn- andi en líklega dýr í útfærslu. Hún vitnar til fornrar byggingarhefðar, en er þó með nútímalegu útliti. Tillag- an tekur tillit til þarfa mismunandi aldurshópa og „þorpshugmyndin'1 er líkleg til að takast í útfærslu, ef vel verður á haldið. Miðrýmið býður upp á mikinn sveigjanleika og ákveðna blöndun aldurshópa, sem stjómendur skóla geta þó stýrt eftir áherslum á hverjum tíma. Lokaorö Verðlaunatillögumar byggja allar á þeim gmndvallar- markmiðum, sem sett vom fram í forsögn að bygging- unni, en em mjög ólíkar að gerð og útliti. Þær sýna á mismunandi hátt sjálfstæðar hugmyndir hönnuða um leiðir að hinum faglegu markmiðum, sent gefa skóla- stjórnendum möguleika á að vera með breytilegar áherslur í skólastarfinu. Það var sett fram metnaðarfull forsögn um tveggja hliðstæðu grunnskóla og horft til framtíðar varðandi bygginguna. Það er mikilvægt að ytri rammi skólastarfs- ins, þ.e.a.s. byggingin, sé vel af hendi leystur og gefi kost á sveigjanleika hvað varðar innra fyrirkomulag og starfshætti. Ymis nýmæli koma þama fram eins og „tæknistofa" og aukin áhersla á list- og verkmennt. Við dæmdum nt.a. út frá skjólmyndun á lóð og dæmdum teikningar úr leik, sem mynduðu skúmaskot, til að hindra hættu á einelti á skólalóðinni. Þá vildum við að skólinn yrði miðstöð í hverfmu og hannaður þannig að íbúar ættu greiðan að- gang að húsinu utan hefðbundins skólatíma. Þá hefur fræðsluráð Reykjavíkur sett á laggimar nefnd til að útfæra 6-7 stunda vinnudag nemenda og verður til- raun gerð næsta haust í 2-3 skólum. Samkeppnin um grunnskóla í Borgarholtshverfunum hefur ekki aðeins fært okkur góð skólahús, heldur einnig sýnt og sannað að hönnunarsamkeppni með kostnaðar- stýringu er raunhæfur kostur. Það verður stór stund þegar við tökum byggingu Engjaskóla í notkun 1. september nk. Það er langt síðan skólabygging í Reykjavík hefur verið tekin í notkun full- búin, algengara hefur verið að byggja skólana í áföngum. Það var mjög mikil vinna að sitja í dómnefnd um svo margar tillögur en varla hægt að hugsa sér skemmtilegri vinnu. Ég vil nota tækifærið að þakka öllum þátttakend- um framlag þeirra svo og félögum mínum í dómnefnd- inni, ritara og ráðgjöfum nefndarinnar. 1 57

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.