Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 36
FRÆÐSLUMÁL
Þverskuröur skólahússins. Vesturálman, „gatan" og austurálman tveggja hæöa.
Byggingin
Gatan
Innra skipulag skólans byggir á „götunni“ sem tengir
saman alla starfsemi innan stofnunarinnar, jafnframt því
að vera rammi um félagslífið í skólanum. „Gatan“ bæði
skilur að og tengir saman hina mismunandi starfsemi
innan veggja skólans. Nemendur skólans eiga jafngreið-
an aðgang að öllum rýmum byggingarinnar bæði til
kennslu og félagsstarfa. Stigar að hæðum austurálmunn-
ar eru líkt og aðkoma að „húsum“ við götu. Framan við
bókasafn gegnt sal er stigi hafður breiðari til þess að
undirstrika mikilvægi þessarar „stofnunar" sem bóka-
safnið er í þessu götulífi. Frambrúnir stiga af annarri
hæð skaga fram í götuna þannig að greina megi stað-
setningu þeirra úr fjarlægð. Lyftu er valinn staður mið-
svæðis í tengslum við salemiskjama sem tilheyra félags-
rými skólans, þ.e.a.s. götunni og salnum.
Anddyri skólans eru til enda götunnar. Norðurinn-
gangurinn fyrir yngstu bömin, vesturinngangurinn fyrir
millistigið og suðurinngangurinn fyrir þau elstu. Staðar-
val innganganna skapar hæfilega fjarlægð milli yngri og
eldri nemenda. Anddyri eru nýtt sem skápa- og skó-
geymslur. Auk þess er sérstakur inngangur að búnings-
herbergjum og íþróttasal vegna kvöld- og helgamotkun-
ar þegar skólinn sjálfur er lokaður.
Austurálma
Heimastofur (almennar kennslustofur) ásamt bóka-
safni, stjórnunarálmu og íþróttasal eru allar í lengri
byggingunni austan götunnar, austurálmunni, sem er
tveggja hæða.
Þetta staðarva! hefur í för
með sér að sólarálag inni í
kennslustofum verður í lág-
marki sem og umhverfisónæði
frá skólalóð og aðkomu.
Heimastofurnar tengjast göt-
unni um ganga, tröppur og
svalir framan við hverja stofu
sem nýta má til hópvinnu.
Rýmin framan við kennslu-
stofurnar þjóna því hlutverki
að vera áhaldageymslur,
hópherbergi, myndbandaver,
ræsting, lyfta o.þ.h. A úthlið-
um þeirra verða litlir gluggar
sem gera þessi rými að eins
konar „húsum“ við „götuna".
Skólagangarnir virka þá eins
og „hliðargötur“ og samkomu-
salurinn sem „aðaltorg“ þessa
litla samfélags sem skólinn
verður.
Bókasafni er valinn staður
miðsvæðis í húsinu, gegnt sal og myndar með honum
eins konar þvergötu á aðalgötuna um aðaltröppu skólans.
Þannig er lögð áhersla á þessi rými sem hjarta skólans.
Veitingasölu er valinn staður við götuna í tengslum við
salinn líkt og sölubúð.
Stjómunarrými skólans er einnig valinn staður í bein-
um tengslum við aðalinngang og aðkomu að skólanum.
Þaðan eru bein tengsl við aðkomuleiðir að heimastofum.
Innangengt er í tölvuver og bókasafn frá stjómunarrými.
Kennarastofan nýtur næðis frá ærslum nemenda á skóla-
lóðinni, er þjakaðir kennaramir leita þar skjóls í frímín-
útum eftir erilsama kennslutöm. Ur kennarastofu má sjá
inn í leikfimisal. Þar em jafnframt svalir og líkt og frá
bókasafni mikilfenglegt útsýni til austurs. Húsverði er
valinn staður framan við afgreiðslu og hefur góða yfir-
sýn yftr aðkomu og inngang.
Vesturálma
Sérkennslustofum er valinn staður handan götunnar í
styttri byggingunni, vesturálmunni, sem er einnar hæðar.
Þar af leiðandi næst umbeðinn aðskilnaður þessara
kennslugreina, þ.e.a.s. sérkennslu og almennrar kennslu,
auk þess sem rýmishæð þessarar álmu verður meiri.
Smíðastofa er fjærst vegna hugsanlegra hljóðtruflana,
með sér aðkomu fyrir efni og áhöld. Hússtjómarstofa er í
beinum tengslum við matsal og félagsaðstöðu nemenda.
Tónlistarstofa er einnig í tengslum við sal sem gerir auð-
velda samnýtingu hljóðfæra og annarra tækja með hátíð-
arsal. Tónlistarstofan getur þar að auki nýst sem baksvið
í tengslum við sýningar í hátíðarsal. Ahersla er lögð á að
veggir stofunnar séu ekki samsíða til þess að auka hljóð-
og hljómgæði.
1 62