Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Síða 42

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Síða 42
UMHVERFISMAL 3. mynd. • Hreinsa náttúruminjasvæði fyrir haust 1999. • Losun gróðurhúsalofttegunda aukist ekki næstu 5 árin. 5. Framkvœmdaáætlun Þegar stefnumið sveitarfélags eru ljós þarf að gera framkvæmdaáætlun til að ná settu marki. Framkvæmda- áætlun þarf að vera skýr og raunhæf og leiða til þess að markvisst sé stefnt að árangri í umhverfismálum. Mikil- vægt er að kostnaður og ábati af fyrirhugaðri fram- kvæmdaáætlun sé metinn til að velja skilvirkasta og raunhæfasta kostinn fyrir sveitarfélagið. Umhverfisrýni á svæði sveitarfélaga auðveldar þeim að mynda sér skýra stefnu í umhverfismálum og er veigamikill þáttur í því ferli að samræma umhverfismál, skipulag og byggða- og atvinnuþróun. Einnig verða sveitarstjómir í mun betri aðstöðu til að taka skilvirkan þátt í mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og almenn- um skipulagsmálum sem tengjast sveitarfélaginu. Stefnumið sveitarfélags gera grein fyrir því hvernig stefnt er að því að samræma náttúruvemdarsjónarmið og nýtingu auðlinda, sem er grundvöllur fyrir stöðugri og aukinni velferð íbúa sveitarfélagsins. Ávinningur sveitarfélaga af umhverfis- málum? Hægt er að ímynda sér að sveitarfélag standi frammi fyrir því að markmið um uppbyggingu atvinnusvæðis og markmið um að auka ferðaþjónustu stangast á. í slíku til- felli getur ofangreint ferli aðstoðað við ákvörðun sveitar- stjómar og mótun langtímastefnu sveitarfélagsins í urn- hverfismálum með tilliti til uppbyggingar atvinnustarf- semi. Ef aðstæður eru þannig að uppbygging atvinnusvæðis getur valdið spjöllum á náttúruminjum, auðlindum og landslagi, sem eru mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu, er nauðsynlegt að marka framtíðarstefnu um landnotkun. Þar kæmi meðal annars fram val svæða sem eru við- kvæm, þýðingarmikil fyrir ferðaþjónustu, mikilvæg fyrir atvinnuþróun og best til þess fallin að standa að upp- byggingu ýmiss konar atvinnustarfsemi. Einnig þarf að tilgreina kostnað við uppbyggingu ferðaþjónustu og at- vinnusvæðis og hvernig sá kostnaður dreifist á íbúa sveitarfélags. Gera þarf grein fyrir því hver áhrif at- vinnustarfsemi hefði á náttúruna og samfélag og áhrifum ferðaþjónustu á fyrirhugaða atvinnustarfsemi og þá sem fyrir er. Þegar upplýsingar umhverfisrýni liggja fyrir og tekið hefur verið tillit til afstöðu íbúa getur sveitarstjóm sett fram forgangslista framkvæmda ásamt kostnaðaráætlun þeirra og á þeim grunni er mörkuð stefna í umhverfis- málum. Með henni er tekin ákvörðun um skipulag at- vinnusvæðis og uppbyggingu ferðaþjónustu, s.s. hvar færa á uppbyggingu iðnaðarsvæðis frá viðkvæmum svæðum og þeim sem hafa mikilvægt gildi fyrir ferða- þjónustu svæðisins. Með þessu fyrirkomulagi er reynt að samræma mark- mið í umhverfismálum og hagræn markmið þannig að bestur árangur náist til skemmri og lengri tíma. Grund- völlurinn er góð skipulagning og skilvirk stefnumótun. 1., 2. og 3. mynd sýna mismunandi áherslur í skipulagi ákveðins landsvæðis. Að undangenginni úttekt geta sveitarfélög sett frarn nokkra kosti við skipulag svæðis. Ibúar og sveitarstjómir þurfa síðan að vega og rneta kosti og galla þeirra og velja þann kost sem samrýmist best stefnumiðum sveitarfélagsins. Lokaorö Umhverfismál eru víðtækur málaflokkur sem krefst samvinnu sveitarfélaga, fyrirtækja og almennings. I um- hverfismálum axla sveitarstjómir mikla ábyrgð gagnvart umhverfi og íbúum sveitarfélags. Til þess að ná árangri er mikilvægt að sveitarfélög verði leiðandi afl í umhverf- ismálum og stuðli að farsælli þróun í heimabyggð sinni. 1 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.