Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Qupperneq 47
BYGGÐAMÁL
heimamönnum á hinum svokölluðu
RITTS-svæðum til aðstoðar við
skipulagningu og framkvæmd verk-
efnanna. íslenski ICE-REGIONS
hópurinn grennslaðist fyrir um 12
evrópsk ráðgjafarfyrirtæki og heint-
sótti nokkur þeirra sl. suntar. Nú
þegar hefur verið undirrituð sam-
starfsyfirlýsing við MERIT í
Hollandi, sem er ráðgjafarfyrirtæki
rekið í tengslum við háskólann í
Maastricht, og írsku ráðgjafarskrif-
stofuna CIRCA-group í Dublin.
Einnig eru líkur á að samið verði
við ítalska fyrirtækið Nomisma í
Bologna, en til gamans má geta að
stjórnarformaður þess er Rontano
Prodi, núverandi forsætisráðherra
Ítalíu. Öll hafa þessi fyrirtæki mikla
reynslu af verkefnunt af þessu tagi
og hafa náð árangri í því að tengja
saman atvinnulíf og mennta- og
tæknistofnanir, auk þess sent net-
samstarf á milli fyrirtækja hefur
gefið góða raun undir handleiðslu
þeirra.
Eins og fram kom í inngangi
þessarar greinar er Island aðeins eitt
af u.þ.b. 80 öðrum svokölluðum
RITTS-svæðum í Evrópu. Meðan á
verkefninu stendur leggur ESB
mikla áherslu á að tengsl myndist
milli þessara svæða, sem geti orðið
grunnur að samstarfi á sviði ný-
sköpunar, atvinnuþróunar eða við-
skipta. Þeir aðilar sem að verkefn-
unum koma munu þannig geta sótt
um styrki til þess að ferðast til ann-
arra svæða og kynnt sér aðstæður
og framgang verkefna þar. Einnig
mun ESB leggja til sérstaka fjárveit-
ingu til þess að halda gangandi fag-
hópum milli landa, t.d. á sviði
ferðaþjónustu, matvælaiðnaðar, stál-
iðnaðar, landbúnaðar o.s.frv. Sem
dæmi af öðrum svæðum sem fengið
hafa styrki frá ESB til RITTS-verk-
efna eru Vestur-Noregur, Norður-
og Suður-Svíþjóð, Skoska hálendið
og eyjamar Krít, Kanaríeyjar, dreif-
býlið kringum Madrid, Limburg í
Belgíu, Yorkshire og Humberside í
Englandi, Sikiley og Þessalóníka í
Grikklandi.
Væntingar
Með því verk-
efni sem hér hef-
ur verið lýst fæst
m.a. stöðumat á
stuðningsum-
hverfi atvinnu-
lífsins á íslandi,
auk þess sem
auðvelt verður að
kortleggja styrk-
leika og veik-
leika þeirra
svæða sem hin
nýstárlega úttekt
nær til. Þrátt fyrir
að verkefninu sé
fyrst og fremst
ætlað að ljúka
með ráðgefandi
niðurstöðum hef-
ur íslenski hóp-
urinn fullan hug
á að sjá raun-
veruleg sam-
starfsverkefni í
framkvæntd áður
en ICE-REG-
IONS verkefninu
lýkur. Hér er átt
við möguleika á
auknu samstarfi
fyrirtækja (fyrir-
tækjanet) í hér-
aði, samstarfi
fyrirtækja milli landshluta og sam-
starfi við önnur fyrirtæki í Evrópu.
Hér gæti einnig verið um að ræða
öflugt samstarf á sviði markaðssetn-
ingar og fjölgun nýsköpunarverk-
efna, ný fyrirtæki, starfsmannaskipti
og þjálfun og síðast en ekki síst
betra stuðningsumhverfi atvinnulífs-
ins.
Það er nauðsynlegt fyrir stjórn-
völd, sveitarstjómir. hagsmunaaðila,
atvinnuþróunarfélög, stjórnendur
fyrirtækja og stofnana og aðra þá
sem koma að eflingu atvinnulífs á
Islandi að átta sig á því að ICE-
REGIONS verkefnið getur verið
einstakt tækifæri til þess að opna
þeim dyr sem hyggjast nýta sér
samstarfsmöguleika og sjóði Evr-
ópusambandsins á sviði nýsköpun-
Fyrirtækiö Máki hf. á Sauöárkróki varö fyrsta fyrirtækið á Islandi
til þess aö stjórna stóru rannsóknarverkefni sem styrkt er af
ESB. Á myndinni er Guömundur Örn Ingólfsson verkefnisstjóri
aö mæla súrefnl í barra-eldlskerl. Ljósmyndastofa Péturs á
Sauöárkrókl tók myndina.
ar, rannsókna og þróunar. Á undan-
förnum tveimur árum hafa íslensk
fyrirtæki og stofnanir fengið um
800 milljónir króna til samstarfs-
verkefna úr áðurnefndum sjóðum
ESB. þannig að til mikils er að
vinna.
Sóknarfærin em til staðar og von-
andi verður ICE-REGIONS verk-
efnið aðeins fyrsta skrefið í Evrópu-
væðingu landsbyggðarinnar - þróun
sem skilar sér m.a. í fjölbreyttara at-
vinnulífi, aukinni fjárfestingu og
hagvexti og auðugra mannlífi.
Sigurður Tómas Björgvinsson er
deildarstjóri Kynningarmiðstöðvar
Evrópurannsókna og situr í stjórn
ICE-REGIONS verkefnisins.
1 73