Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 49
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST
íþróttasalir í Öxarfirði
Ingunn St. Svavarsdóttir sveitarstjóri
Með níu mánaða millibili hafa
verið teknir í notkun tveir íþróttasal-
ir í Öxarfirði, annars vegar við
Lundarskóla og hins vegar við
grunnskólann á Kópaskeri.
Þvílíkur munur að geta nú boðið
nemendum okkar, sem búa á mjög
dreifðu svæði, þ.e. frá Melrakka-
sléttu að Tjömesi, eða með um 80
km millibili, upp á slíka aðstöðu til
íþrótta og leikja og okkur sjálfum að
hafa nú loks möguleika á að halda
stórsamkomur eins og Góugleðina í
okkar eigin hreppi, en það hefur
okkur ekki verið fært eftir samein-
ingu hreppanna - fólkið hefur
hvergi komist fyrir.
Eflaust þykir einhverjum undar-
legt að byggðir skyldu tveir „ófull-
komnir" salir en ekki „löglegt" og
myndarlegt íþróttahús. Samanlagður
kostnaður þessara tveggja sala er þó
ekki meiri en við eitt hús, þ.e. á bil-
inu 43^44 milljónir króna.
Ákvörðun okkar byggist fyrst og
fremst á því að við vorum að byggja
aðstöðu fyrir íþróttakennslu við
skólana okkar en ekki keppnishæft
hús. Reyndar er blakvöllurinn í
„Aðalbimi", íþróttasalnum í Lundi,
löglegur hvað stærð og lofthæð
varðar, en engin áhorfendaaðstaða
er fyrir hendi, svo stæði meðfram
veggjum verða að duga okkur.
Kelduneshreppur stendur ásamt
Öxarfjarðarhreppi að Lundarskóla
og eru eignarhlutföllin 70% fyrir
Öxarfjarðarhrepp og 30% fyrir
Kelduneshrepp.
íþróttasalurinn í Lundi
Vígsla íþróttasalarins í Lundi fór
fram hinn 17. júní sl. ár og tókst vel
í alla staði. Dagskráin, sem undirbú-
in var af menningarmálanefnd í
samráði við greinarhöfund, var
svohljóðandi:
Hátíðina setti Róbert Boulter með
stuttu ávarpi og stjómaði síðan dag-
skránni sem á eftir fór.
Björn Guðmundsson, oddviti
Kelduneshrepps, rakti nokkuð ítar-
lega byggingarsögu Lundarskóla.
Benedikt Kristjánsson flutti síðan
ávarp fyrir hönd byggingamefndar
og afhenti lykla að húsinu.
Séra Eðvarð Ingólfsson flutti há-
tíðarræðu. Auður Aðalbjamardóttir
flutti ávarp fjallkonunnar.
Erla Óskarsdóttir hreppstjóri af-
hjúpaði skjöld með nafni hússins, en
það er nefnt eftir Aðalbimi Gunn-
laugssyni, sem lengi var skólastjóri
og kennari við skólann og ung-
menna- og æskulýðsleiðtogi Norð-
ur-Þingeyinga um áratugaskeið.
Brynjar Halldórsson, formaður
menningarmálanefndar, minntist
Aðalbjamar með nokkrum orðum.
Séra Eðvarð Ingólfsson blessaði
húsið.
Þorbjörg Bragadóttir, kennari við
Lundarskóla, stjómaði hljóðfæraleik
nokkurra nemenda tónlistarskólans.
Hulda Gunnlaugsdóttir færði
skólanum gjöf fyrir hönd aðstand-
enda Aðalbjöms Gunnlaugssonar.
Þá fór fram blakkeppni milli
heimamanna og Dalvíkinga og
lyktaði með sigri heimamanna, sem
var vel við hæfi. Kvenfélag Öxfirð-
inga sá svo um myndarlegt veislu-
1 75