Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 52
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
20. aðalfundur SSH
haldinn í Hlégarði í Mosfellsbæ
Frá aöalfundinum í Hlégaröi. Viö borðiö sitja, vinstra megin, Valgerður Siguröardóttir, bæjarfull-
trúi í Hafnarfirði, Kristján Pálsson, alþingismaöur í Reykjaneskjördæmi, Kolbrún Jónsdóttir,
hreppsnefndarfulltrúi í Kjalarneshreppi, Jón Pétur Líndal, varafulltrúi i hreppsnefnd Kjalarnes-
hrepps og fv. sveitarstjóri þar, og Jónas Vigfússon, núv. sveitarstjóri. Handan þeirra sitja Helga
Bára Karlsdóttir, hreppsnefndarfulltrúi í Kjalarneshreppi, Árni Mathiesen alþingismaöur í Reykja-
neskjördæmi, og Jóhann G. Bergþórsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfiröi.
Jónas Egilsson, framkvœmdastjóri SSH
Samgöngumál voru aðalumræðuefni 20.
aðalfundar SSH, sem haldinn var í Hlégarði
19. okt. 1996. Einnig var lögð fram skýrsla
nefndar sem vann að endurskoðun á starfsemi
samtakanna.
Samgöngumál
Halldór Blöndal samgönguráðherra var
fyrstur fjögurra framsögumanna um sam-
göngumál á höfuðborgarsvæðinu. Hann ræddi
fjárveitingar til vega- og flugvallamála. Hann sagði að
um þriðjungur fjárveitinga til nýframkvæmda í vega-
málum myndi framvegis renna til höfuðborgarsvæðis-
ins. Hann lagði mikla áherslu á að sem fyrst yrði hafist
handa um uppbyggingu Reykjavíkurflugvallar, þar sem
völlurinn væri mjög illa á sig kominn.
Arni Hjörleifsson, formaður SSH, lýsti áhyggjunt
sveitarstjómarmanna vegna stöðu vegamála á
höfuðborgarsvæðinu og slysahættu í umferð-
inni. Hann lýsti þeim fjárhagslega ávinningi
sem er af því að bæta umferðarmannvirki og
draga um leið úr slysahættu. Hann vék að
skiptingu fjármagns milli sv-hornsins og
landsbyggðarinnar. Fagnaði því að hlutfall til
umferðarmannvirkja sv-homsins hefði farið
hækkandi en taldi að betur mætti gera.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
taldi ástæðu til að leggja aukna áherslu á almennings-
samgöngur og umferð gangandi og hjólandi. Huga þyrfti
að þessum þáttum í auknum mæli en ekki einblína á
notkun einkabifreiðarinnar. Hún lýsti framkvæmdum við
gerð göngubrúa í borginni. Borgarstjóri vék því næst að
því að á hverfisfundum í borginni hefðu hvarvetna kom-
ið fram áhyggjur borgarbúa vegna umferðarmála. Hún
1 78