Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Síða 53
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
gerði grein fyrir áætlun borgarinnar til að draga úr um-
ferðarslysum. Ingibjörg Sólrún fagnaði auknum vega-
framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum en
taldi mjög brýn verkefni óunnin. Hún varpaði því fram
hvort sveitarfélögin ættu ekki að fá hluta af þeim fram-
lögum sem nú renna óskert í ríkissjóð frá bifreiðaeig-
endum. Að auki reifaði hún mikilvægi þess að ráðist
yrði í framkvæmdir við Sundabraut og að lokum lagði
hún áherslu á mikilvægi þess að ríkisvaldið tryggi
a.m.k. óbreytt framlag til vegaframkvæmda á höfuð-
borgarsvæðinu á næstu árum.
Stefán Hermannsson borgarverkfræðingur greindi frá
undirbúningi að endurskoðun vegaáætlunar fyrir höfuð-
borgarsvæðið. Hann sagði frá því hvemig hefði gengið
að framkvæma vegaáætlun fyrir árin 1995-1998. Stefán
greindi ennfremur frá áherslum einstakra sveitarfélaga
hvað varðar umferðarendurbætur og ræddi að lokum
mikilvægi þess að við endurskoðun vegaáætlunar yrði
hugað í auknum mæli að gerð mannvirkja fyrir gang-
andi vegfarendur og að hljóðmönum.
Guðrún Agústsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykja-
víkur, tók þátt í almennum umræðum og fagnaði því að
samgöngumál hefðu á fundinum verið rædd í víðara
samhengi en oft áður. Hún vék að málefnum Reykjavík-
urflugvallar og skýrði frá því að starfshópur fjallaði nú
um málefni flugvallarins. Kvað hún réttast að halda sér-
stakan fund um framtíð flugvallarins og beindi því til
stjómar SSH að hún beitti sér fyrir því að slíkur fundur
yrði haldinn.
Endurskoöun á starfsemi SSH
Hilmar Guðlaugsson gerði grein fyrir skýrslu nefndar
SSH um endurskoðun á starfsemi samtakanna. Fram
kom í máli Hilmars að nefndin teldi rekstur samtakanna
í samræmi við umfang þeirra. Nefndin leggur til að
formleg tengsl við Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæð-
isins verði rofin og bendir á möguleika fyrir sveitarfé-
lögin að taka upp beina aðild.
Þá var undirstrikuð áherslubreyting á starfsemi sam-
takanna með því að leggja niður atvinnumálanefnd sam-
takanna, en í stað þess taka upp formlegt samstarf for-
manna atvinnumálanefnda sveitarfélaganna. Með slíku
náist betri tengsl við sveitarfélögin og milli einstakra
formanna. Á undanfömum árum hefur verið að þróast
samstarf formanna einstakra verkefnanefnda hjá sveitar-
félögunum. Formenn skipulagsnefnda, heilbrigðis-
nefnda og unrhverfisnefnda hafa hist og farið yfir sín
mál, borið saman bækur sínar o.s.frv.
í stað varanlegra nefnda er einnig lagt til að skipaðar
verði eftir þörfum nefndir til þess að sinna einstökum
verkefnum og hafi þær lil þeirra tiltekinn tíma. Dæmi
um þetta fyrirkomulag er t.d. vinnuhópur um endur-
skoðun á verðskrá sundstaða og nefnd um endurskoðun
reglna um ferðaþjónustu fatlaðra. Tillögur þeirra eru
flestar þegar komnar til framkvæmda. Einnig var ákveð-
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ræöir viö Jóhann Sigur-
jónsson, bæjarstjóra Mosfellsbæjar. Stefán Hermannsson borg-
arverkfræöingur lengst til vinstri.
Róbert B. Agnarsson, bæjarfulltrúi i Mosfellsbæ, var fundar-
stjóri. Anna Guörún Björnsdóttir, forstööumaður fjármála- og
stjórnsýslusviös í Mosfellsbæ, var fundarritari eftir hádegi en
fyrir hádegiö haföi Ásgeir Eiriksson, forstöðumaöur fræöslu- og
menningarsviös í Mosfellsbæ, veriö fundarritari.
Bæjarfulltrúarnir Ómar Smári Ármannsson í Hafnarfiröi, Laufey
Jóhannsdóttir í Garöabæ og Valgeröur M. Guðmundsdóttir í
Hafnarfiröi ræöast viö á aöalfundinum.
1 79