Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 56
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
sviði. Að þessu sinni ákvað stjóm SSH að Kópavogsbær
skyldi hljóta viðurkenninguna. Hún er veitt fyrir Voga-
tungureit, sem er sérhannað íbúðahverfi fyrir aldraða.
Þetta er í 13. sinn sem viðurkenningin er afhent og
hefur henni verið úthlutað til 18 einstaklinga, stofnana
og sveitarfélaga. Ohætt er að segja að mikill árangur
hafi náðst í umhverfismálum sveitarfélaganna á undan-
fömurn árum og hefur umhverfi sveitarfélaganna tekið
stakkaskiptum. I samræmi við breytta tíma og aðstæður
hefur verið lagt til að reglur um úthlutun þessarar viður-
kenningar verði endurskoðaðar fyrir næsta aðalfund.
Stjórn SSH
Jónas Sigurðsson, forseti bæjarstjómar Mosfellsbæjar,
var kosinn fomraður SSH næsta starfsár. Aðrir í stjóm
eru Guðmundur G. Gunnarsson, varaoddviti Bessastaða-
hrepps, bæjarfulltrúamir Ámi Hjörleifsson og Valgerður
Sigurðardóttir í Hafnarfirði, Laufey Jóhannsdóttir, forseti
bæjarstjómar Garðabæjar, Kolbrún Jónsdóttir, hrepps-
nefndarfulltrúi í Kjalameshreppi, Guðbrandur G. Hann-
esson, oddviti Kjósarhrepps, Ámór L. Pálsson bæjarfull-
trúi og Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, borgar-
fulltrúamir Hilmar Guðlaugsson og Steinunn V. Óskars-
dóttir og Ema Nielsen, bæjarfulltrúi á Seltjamamesi.
AFMÆLI
SSH 20 ára
Jónas Egilsson, fi'amkvœmdastjóri SSH
Haldið var upp á 20 ára afmæli Samtaka sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu (SSH) á skírdag 1996. Af því til-
efni var sveitarstjómarmönnum og ýmsum fleirum boð-
ið til mótttöku í Gerðarsafni í Kópavogi. Þar var kynnt
sérstakt afmælisrit sem hafði verið gefið út í tilefni af-
mælisins. I ritinu er að finna helstu upplýsingar um
verkefni samtakanna á starfstíma þeirra. Því hefur síðan
verið dreift til allra sveitarstjórna og sveitarstjórnar-
manna á höfuðborgarsvæðinu. Jónas Egilsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna síðan 1988, og Þorsteinn Þor-
steinsson, verkfræðingur og fyrrverandi starfsmaður
Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins, sáu um útgáfuna.
Samtökin voru stofnuð sunnudaginn 4. apríl 1976 í
Hlégarði í Mosfellsbæ. Stofnaðilar voru Reykjavíkur-
borg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garða-
bær, Seltjarnarnes, Mosfellshreppur (nú Mosfellsbær)
og Kjalarneshreppur. Kjósarhreppur gerðist aðili að
samtökunum árið 1985. Áður en SSH voru stofnuð vom
starfandi Samtök sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi
(SASÍR), en þau náðu einnig til sveitarfélaga á Suður-
nesjum, en voru án Reykjavíkur.
Stjóm samtakanna á 20 ára afmælinu skipuðu bæjar-
fulltrúarnir Árni Hjörleifsson, sent var formaður, og
Valgerður Sigurðardóttir, Hafnarfirði, Sigurður Geirdal
bæjarstjóri og Arnór L. Pálsson, bæjarfulltrúi í Kópa-
vogi, Erna Nielsen, þáverandi forseti bæjarstjórnar á
Seltjamamesi, Sigtryggur Jónsson, oddviti Bessastaða-
hrepps, Kristján Finnsson, hreppsnefndarmaður í Kjós-
arhreppi, borgarfulltrúamir Steinunn Valdís Óskarsdóttir
og Hilmar Guðlaugsson í Reykjavík, Kolbrún Jónsdótt-
Hver hefur hlutur hreppanna veriö í félagsskap meö stóru baej-
unum? Taliö fró vinstri, Jón Pétur Lfndal, varafulltrúi í hrepps-
nefnd Kjalarneshrepps, Guömundur G. Gunnarsson, hrepps-
nefndarmaöur í Bessastaöahreppi, Guöbrandur G. Hannesson f
Hækingsdal, oddviti Kjósarhrepps, og Vilhjálmur P. Vilhjálms-
son, lengst til hægri. Krissý og Unnar Stefánsson tóku mynd-
irnar frá aöalfundi SSH.
ir, hreppsnefndarfulltrúi í Kjalarneshreppi, Laufey Jó-
hannsdóttir, forseti bæjarstjómar í Garðabæ, og Jónas
Sigurðsson. forseti bæjarstjómar í Mosfellsbæ.
Formenn SSH hafa frá upphafi verið þessir:
1. Stefán Jónsson, Hafnarfirði 1976-1978
2. Garðar Sigurgeirsson, Garðabæ 1978-1979
3. Markús Öm Antonsson, Reykjavík 1979-1982
4. Richard Björgvinsson, Kópavogi 1982-1983
5. Júlíus Sólnes, Seltjamamesi 1983-1986
6. Magnús Sigsteinsson, Mosfellsbæ 1986-1988
7. Lilja Hallgrímsdóttir, Garðabæ 1988-1990
8. Sveinn Andri Sveinsson, Reykjavík 1990-1994
9. Sigurður Geirdal, Kópavogi 1994-1995
10. Ámi Hjörleifsson, Hafnarfirði 1995-1996
11. Jónas Sigurðsson, Mosfellsbæ 1996
1 82