Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Qupperneq 57
STJÓRNSÝSLA
Breytingar á stjórnkerfi
Mosfellsbæjar
Jóhann Sigurjónsson bœjarstjóri
Inngangur
Hér á eftir verður lýst þeim breyt-
ingum sem gerðar voru á stjómkerfi
Mosfellsbæjar á síðastliðnu ári.
Mun ég í grein þessari lýsa hinu
nýja stjómkerfi, aðdraganda og und-
irbúningi breytinganna, skipulagi
stjórnkerfisins og verkaskiptingu,
ásamt því að gera grein fyrir næstu
skrefum í áframhaldandi breyting-
um á innra skipulagi einstakra
sviða.
Umfangsmiklar skipulagsbreyt-
ingar á stjórnsýslu Mosfellsbæjar
voru samþykktar samhljóða í bæjar-
stjóm 26. júní 1996. Með breyting-
unum var nefndum og vinnuhópum
í stjómkerfi bæjarins fækkað veru-
lega, eða úr 27 í 10. Markmiðið
með breytingunum var að einfalda
stjórnkerfið, auðvelda aðgang að
stjómsýslunni, skýra verkaskiptingu
og með því að gera starfsemi á veg-
um bæjarins markvissari. I fram-
haldinu voru samþykktir fyrir
nefndir og starfslýsingar fyrir for-
stöðumenn sviða afgreiddar á bæj-
arstjórnarfundi 30. október og
13. nóvember 1996.
Aödragandi og undirbún-
ingur
Mosfellsbær verður 10 ára á
þessu ári. Ibúafjöldi bæjarins hefur
á undanförnum árum vaxið mjög
hratt og hefur hlutfallsleg fjölgun
íbúa verið með því mesta sem gerist
á landinu. Þessi mikla aukning í
fólksfjölda á skömmum tíma og
auknar kröfur frá íbúum og ríkis-
valdi hafa valdið því að umsvif á
vegum bæjarins hafa farið vaxandi.
Einnig kemur til breytt verkaskipt-
ing milli ríkis og sveitarfélaga. Því
var það að þegar fyrir lá að starf-
semi grunnskólans færðist alfarið
yfir til sveitarfélaganna þótti rétt að
nota tækifærið og endurskipuleggja
stjómkerfi Mosfellsbæjar til að und-
irbúa bæjarfélagið að taka við verk-
efninu. Var Sigfús Jónsson, ráðgjafi
hjá Nýsi hf., fenginn til að vinna út-
tekt á stjómkerfi bæjarins og tillög-
ur að breytingum í samvinnu við
sérstaka stjómsýslunefnd, sem skip-
uð var oddvitum flokkanna í bæjar-
stjóm ásamt bæjarstjóra og bæjarrit-
ara. Skilaði Sigfús skýrslu til stjóm-
sýslunefndarinnar og fékk stjórn-
kerfi Mosfellsbæjar ágætis útkomu í
henni, en þó komu fram nokkrar at-
hugasemdir og em þær helstu tíund-
aðar hér á eftir.
Athugasemdir vegna nefndakerjis
- Misjöfn staða nefnda. 1 sumum
nefndum sátu bæjarfulltrúar og þar
af leiðandi höfðu málefni þeirra
nefnda meira vægi í bæjarstjóminni
en málefni nefnda sem voru án bæj-
arfulltrúa. Einnig nutu sumar nefnd-
ir aðstoðar embættismanna við und-
irbúning funda og mála, á meðan
aðrar höfðu engin bein tengsl við
embættismannakerfið.
- Tengsl milli nefnda er störfuðu
á nátengdum verksviðum vom tak-
mörkuð og tilviljanakennd.
- Hlutverk nefnda var óljóst.
Oljóst þótti hvort nefndirnar bæru
ábyrgð á málaflokkum eða sinntu
faglegum verkefnum.
Athugasemdir vegna embœttis-
mannakerfis
- Óljós staða nefnda gagnvart
starfsmönnum bæjarfélagsins skap-
aði vandamál í starfsmannastjómun.
- Of mikil aðgreining verkefna
milli sviða. T.d. innheimta á mörg-
um stöðum.
- Mismunandi staða stofnana
gagnvart yfirstjóm. Sumar stofnanir
heyrðu beint undir bæjarstjóra en
aðrar höfðu millistjómendur sem yf-
irmenn. Fór það ekki eftir umfangi.
Niðurstaða stjómsýslunefndar var
að leggja til við bæjarstjórn að
stjómkerfinu yrði skipt upp í fjögur
svið og að fastanefndir á vegum
bæjarins yrðu 10 auk bæjarráðs og
kjömefndar. Sjá skipurit á bls. 185.
í framhaldi af samþykkt þess í bæj-
arstjóm var gengið frá samþykktum
fyrir nefndir og starfslýsingum for-
stöðumanna sviða. Helstu markmið
með breytingunum vom annars veg-
ar að ná fram samsvörun milli verk-
efna embættismanna og nefnda,
þannig að verkefni nefnda sköruð-
ust ekki milli sviða, og hins vegar
að skilgreina hlutverk nefnda og
ábyrgð embættismanna.
Skipulag stjórnkerfisins
Bæjarstjórn samþykkti eftirfar-
andi stjómsýslusvið og verkaskipt-
ingu milli þeirra:
Félagsmálasvið, fjölskyldumál og
ráðgjöf, málefni aldraðra og fatl-
aðra, málefni vinnumiðlunar, áfeng-
ismál og félagsleg húsnæðismál.
Fjármála- og stjórnsýslusvið, al-
menn stjómsýsla, fjárreiður, starfs-
mannaþjónusta, bókhald og tölvu-
máL
Frœðslu- og menningarsvið, mál-
efni leikskóla, gmnnskóla, tónlistar-
1 83