Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 58
STJÓRNSÝSLA
skóla, vinnuskóla, gæsluvalla, dag-
gæslu, félagsmiðstöðvar, íþrótta-
miðstöðvar, félagsheimilis og bóka-
safns.
Tœkni- og umhverfissvið, fram-
kvæmdamál, hitaveita, vatnsveita
og fráveita, skipulagsmál, bygging-
armál, umhverfismál og samgöngu-
mál.
Bæjarstjórn samþykkti eftirfar-
andi nefndir og verkaskiptingu milli
þeirra:
• Bœjarráð, sem skilgreint er sem
yfimefnd annarra nefnda í málum
sem tengjast fjármálum, starfs-
mannamálum, stjórnsýslu og
framkvæmdum. Þannig er gert
ráð fyrir að mál nefnda sem fjalla
um framangreind atriði komi til
umfjöllunar bæjarráðs áður en
þau fara fyrir bæjarstjóm. Bæjar-
ráð fjallar um erindi sem berast
bæjarfélaginu og vísar þeim til
umfjöllunar hjá nefndum og emb-
ættismönnum eftir því sem við á.
Bæjarráð fer með verkefni starfs-
kjaranefndar og jafnréttisnefndar.
Bæjarráð fer með verkefni bæjar-
stjómar í sumarleyfum hennar.
Nefndir á félagsmálasviði:
• Félagsmálanefiid, fjallar um mál-
efni tengd félagslegri ráðgjöf,
fjárhagsaðstoð, félagslegu leigu-
húsnæði, öldruðum, fötluðum og
vinnumiðlun. Nefndin fer með
verkefni bamavemdamefndar og
áfengisvamanefndar.
• Húsnœðisnefnd, lætur gera könn-
un á þörfum fyrir félagslegt hús-
næði og gerir tillögur um bygg-
ingu þess. Nefndin hefur yfirlit
yfir félagslegar íbúðir í sveitarfé-
laginu og úthlutar þeim.
Nefndir á fjármála- og stjórn-
sýslusviði:
• Atvinnu- og ferðamálanefnd,
fylgist með atvinnuástandi og
gerir tillögur um eflingu og ný-
sköpun í atvinnumálum, eftirlit
með aðstöðu fyrir ferðamenn,
þróun ferðaþjónustu og hefur um-
sjón með almennri kynningu á
bæjarfélaginu.
• Kjörstjórn, fyrir sveitarstjórnar-
og alþingiskosningar.
Nefndir á fræðslu- og menning-
arsviði:
• Frœðslunefnd, fer með verkefni
skólanefndar og leikskólanefndar
samkvæmt lögum, málefni tón-
listarskóla, vinnuskóla og fram-
haldsskóla. Nefndin hefur eftirlit
með daggæslu og rekstri heils-
dagsskóla og gæsluvallar.
• Iþrótta- og tómstundanefnd, fer
með íþrótta- og tómstundamál,
gerir tillögur um styrki til félaga
og fylgist með starfsemi þeirra.
Nefndin hefur eftirlit með rekstri
íþróttamannvirkja og félagsmið-
stöðvar og gerir tillögur um gjald-
skrá, leigu og afnot af íþrótta-
mannvirkjunum utan skólatíma.
Nefndin vinnur að eflingu íþrótta-
og tómstundastarfs í bæjarfélag-
inu í samstarfi við félög og aðila
sem starfa á því sviði.
• Menningarmálanefnd, fer með
málefni almenningsbókasafna, fé-
lagsheimila, hefur umsjón með
vinabæjasamskiptum, listaverka-
eign, húsafriðun og fornminjum,
gerir tillögur um styrki til félaga
og fylgist með starfsemi þeirra.
Nefndin hefur umsjón með Lista-
og menningarsjóði og gerir tillög-
ur um úthlutun úr honum. Nefnd-
in vinnur að eflingu lista- og
menningarstarfsemi í bæjarfélag-
inu í samstarfi við félög og aðila
sem starfa á því sviði.
Nefndir á tækni- og umhverfis-
sviði:
• Byggingarnefnd, fer með verkefni
samkvæmt skipulags- og bygg-
ingarlögum. Nefndin fer einnig
með verkefni ferlinefndar.
• Framkvcemdanefnd, hefur eftirlit
með hönnun, útboðum og verk-
samningum, nýbyggingum, við-
haldi og endurnýjun húseigna,
eignaskrá, gatnahreinsun, snjó-
mokstri og sorphirðu. Hefur eftir-
lit með rekstri tæknideildar,
áhaldahúss, trésmíðaverkstæðis,
vélamiðstöðvar og garðyrkju-
deildar. Nefndinni er ætlað að
taka yfir hlutverk sem leyst hefur
verið með byggingamefndum um
einstök verkefni, svo sem bygg-
ingu íþróttahúsa og skóla.
• Skipulagsnefnd, verkefni sam-
kvæmt skipulagslögum og reglu-
gerð og fylgist með framkvæmd
þeirra, umferðarmál og almenn-
ingssamgöngur.
• Veitu- og umhverfisnefnd, umsjón
og eftirlit með vatnsveitu, hita-
veitu og fráveitu og gerð áætlana
í því sambandi, opnum svæðum,
lóðum og löndum, landbúnaðar-
málum og búfjáreftirliti, náttúru-
vemd, skógrækt og landgræðslu.
Gert er ráð fyrir að nefndimar geti
ef þurfa þykir myndað tímabundna
vinnuhópa um einstök verkefni.
Einnig er gert ráð fyrir að þess sé
gætt að kalla inn aðila á fundi
nefndanna ef ákvæði eru í lögum
eða samstarfssamningum um setu-
rétt þeirra á fundum þegar um mál
þeim tengd er fjallað. Bæjarstjórn
tilnefnir síðan fulltrúa í samstarfsráð
og nefndir og stjómir og fulltrúaráð
sem Mosfellsbær er aðili að í sam-
starfi við aðra aðila. Sjá meðfylgj-
andi skipurit.
Hlutverk nefnda
og embættismanna
Bæjarstjórn skilgreindi hlutverk
nefnda og embættismanna eftirfar-
andi.
Hlutverk nefnda samkvæmt sam-
þykktum þeirra er:
• Að gera tillögu til bæjarstjórnar
um stefnu í viðkomandi mála-
flokkum og hafa eftirlit með að
stefna bæjaryfirvalda á hverjum
tíma sé haldin.
• Að hafa eftirlit með stofnunum
sem vinna að viðkomandi mála-
flokkum og fylgjast með því að
þær vinni að settum markmiðum í
samræmi við lög og veiti góða
þjónustu.
• Að leggja mat á hvemig staðið er
að viðkomandi málaflokkum með
tölulegum upplýsingum og könn-
1 84