Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Side 60
STJÓRNSÝSLA
KYNNING
1. mynd. Hlutverk nefnda og embættismanna
í nýju stjórnkerfi Mosfellsbæjar
Nefndir Embættismenn
Stefnumörkun
Gera tillögur til bæjarstjórnar um Eru ráðgefandi við stefnumótun
stefnumörkun í viðkomandi mála- og vinna að framtíðarskipulagi.
flokkum.
Fjárhagsáætlun
Gera tillögur til bæjarstjórnar um Annast gerð fjárhagsáætlunar í
þá liði fjárhagsáætlunar sem falla samvinnu við nefndir. Bera ábyrgð
undir verksvið nefndarinnar í sam- á að fjárhagsáætlanir séu haldnar.
starfi við viðkomandi forstöðu-
menn. Hafa eftirlit með að
fjárhagsáætlun sé haldin.
Rekstur/þjónusta
Hafa eftirlit með að stofnanir vinni Stjórna og bera ábyrgð á að starf-
að settum markmiðum, í samræmi semi stofnana sé í samræmi við
við lög, og veiti góða þjónustu. markmið og samþykktir bæjar-
stjórnar, lög og reglur.
Meöferö mála
Eru ráðgefandi til bæjarstjórnar í Bera ábyrgð á að nefndir fái þau
málefnum viðkomandi málaflokka. gögn og þær upplýsingar sem
þær þurfa til að geta gegnt hlut-
verki sfnu. Eru nefndum til ráðu-
neytis.
Lokaorö
Hér hefur í fáum orðum verið lýst
þeirri stjómskipulagsbreytingu sem
unnið hefur verið að í Mosfellsbæ á
síðasta ári. Bæjarstjórn Mosfells-
bæjar hefur staðið einhuga að þess-
um breytingum, sem er lykillinn að
því að vel hefur til tekist ásamt því
að aðkoma utanaðkomandi ráðgjafa
hefur hjálpað til að gera vinnuna
farsæla. Með breytingunum hefur
tekist að fækka nefndum og vinnu-
hópum, sem er til verulegra bóta, og
hafa nefndimar nú allar skýra teng-
ingu við bæjarstjórn og embættis-
mannakerfið. Með þessum breyting-
um er vonast til að nefndimar eflist
og verði eins konar þreifarar fyrir
bæjarstjómina úti í bæjarfélaginu og
verði þannig öflugri ráðgjafar fyrir
bæjarstjómina við stefnumörkun og
afgreiðslu mála. Breytingarnar
munu þýða að nefndirnar einbeita
sér í auknum mæli að stefnumörkun
og stærri málum, en embættismönn-
um verði falin afgreiðsla minni
mála innan þess ramma sem bæjar-
stjóm hefur skilgreint á grundvelli
þjónustustigs og fjárveitinga.
Anna Guðrún Björns-
dóttir forstöðuinaður
fjármála- og stjórn-
sýslusviðs Mosfellsbæjar
Anna Guðrún
Björnsdóttir,
lögfræðingur í
félagsmálaráðu-
neytinu, var ráð-
in bæjarritari í
Mosfellsbæ frá
1. október 1996
og sem forstöðumaður fjámiála- og
stjómsýslusviðs er þær breytingar á
stjómkerfi Mosfellsbæjar, sem lýst
er hér á undan, öðluðust gildi í lok
seinasta árs.
Anna er fædd 15. september
1956. Foreldrar hennar eru Krist-
jana Bjarnadóttir, sem lést í mars
1990, og Bjöm Tryggvason, fv. að-
stoðarbankastjóri í Seðlabanka Is-
lands.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1976,
stundaði nám við Norræna lýðhá-
skólann á Biskops-Arnö 1979 og
lauk embættisprófi í lögfræði frá
lagadeild Háskóla íslands 1982.
Hún var í námsdvöl í lagadeild
danska dómsmálaráðuneytisins í sex
mánuði á árinu 1992.
Anna starfaði sem lögfræðingur í
sjúkra- og slysatryggingadeild
Tryggingastofnunar ríkisins frá
1982-1984, var fulltrúi á lögmanns-
stofu Sigurgeirs Sigurjónssonar hrl.
frá 1984 til 1985, fulltrúi í sifjalaga-
deild dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
isins frá 1986-1989, var skip-
aður deildarstjóri í ráðuneytinu
1989-1993 og var settur sýslumað-
ur á Hólmavík 1.-31. júlí 1993.
Anna var skipuð deildarstjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu í lok árs 1993.
Þar vann hún að lögfræðilegum
álitsgerðum, lagafruntvörpum og
reglugerðum, sem snerta flesta
málaflokka ráðuneytisins, en þó
einkum Atvinnuleysistryggingasjóð
og barnavernd. Þá var hún starfs-
maður verkefnisstjórnar um
1 86