Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Side 64
LAUNAMÁL
Gerð kjarasamninga vel á veg komin
Launanefnd sveitarfélaga hafði í
lok maímánaðar gert kjarasamninga
við 24 bæjarstarfsmannafélög, Fé-
lag tónlistarskólakennara og fjöl-
mörg verkalýðsfélög á síðustu
tveimur mánuðum án atbeina ríkis-
sáttasemjara. Einnig var gerður
skammtímasamningur við stéttarfé-
lög grunnskólakennara sem gildir til
31. júlí 1997 og verður tíminn nýtt-
ur til að sinna ítarlegri endurskoðun
þeirra kjarasamninga sem sveitarfé-
lögin tóku við frá ríkinu vegna
grunnskólakennara, eins og frá var
skýrt í síðasta tölublaði.
Þeir samningar sem launanefndin
hefur gert hafa verið samþykktir af
félögunum að undanskildum samn-
ingum við Starfsmannafélag Kópa-
vogs og Starfsmannafélag Vest-
mannaeyjabæjar, sem felldu þá
samninga sem gerðir voru við þau.
Samið var á ný við Starfsmannafé-
lag Vestmannaeyjabæjar og Starfs-
mannafélag Kópavogs í maí og voru
þeir samningar samhljóða þeim
samningum sem félögin felldu með
þeirri breytingu þó að niður voru
felld ákvæði um vinnutímastyttingu
við ákveðinn lífaldur gegn ein-
greiðslu til allra starfsmanna.
I öllum kjarasamningunum er gert
ráð fyrir svipuðum launabreytingum
og í þeim kjarasamningum sem að
undanförnu hafa verið gerðir á
vinnumarkaðnum. Fela þeir í sér um
4,7% upphafshækkun, 4% hækkun
1. janúar 1998 og 3,5-3,65% hækk-
un 1. janúar 1999, en nokkuð er
misjafnt hve langt fram á árið 2000
gildistími samninganna nær. Fer
upphafshækkun þess árs eftir lengd
samninga en er á bilinu 1.8-3,0%.
Launanefnd átti ósamið við átta
stéttarfélög um miðjan júní.
Sérstaklega bar mikið á milli í
samningaviðræðum við Félag ís-
lenskra leikskólakennara. Hinn 21.
maí sl. lagði launanefnd fram tilboð
til félagsins sem er sambærilegt
þeim kjarasamningum sem samið
hafði verið um við önnur stéttarfé-
lög en félagið hafnaði því tilboði af-
dráttarlaust.
Launanefnd hefur því vísað þeirri
deilu til ríkissáttasemjara, enda ljóst
að Félag leikskólakennara fór fram
á launahækkanir sem eru langt um-
fram það sem um hefur verið samið
við önnur félög á síðustu misserum.
Félagið hefur að viðhafðri alls-
herjaratkvæðagreiðslu boðað verk-
fall í leikskólum frá 22. september.
Frá undirritun kjarasamninga viö Samflot bæjarstarfsmannafélaganna á Hótel Örk í
Hverageröi 11. apríl. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Árni Guömundsson, formaöur
Starfsmannafélags Hafnarfjaröarbæjar, Elin Björg Jónsdóttir, formaður Samflots bæj-
arstarfsmannafélaganna, Karl Björnsson, formaöur Launanefndar sveitarfélaga, Gunn-
ar Rafn Sigurbjörnsson, starfsmannastjóri Hafnarfjaröarbæjar, Lúövík Hjalti Jónsson,
viöskiptafræöingur og starfsmaður Launanefndar sveitarfélaga, Karl Jörundsson,
starfsmannastjóri Akureyrarbæjar, og Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri Vatnsleysu-
strandarhrepps. Ljósm. Aldís Hafsteinsdóttir.
Samninganefnd tónlistarskólakennara kemur af samningafundi viö Hús sveitarfélag-
anna aö Háaleitisbraut 11-13. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Kristinn Svavarsson tón-
listarkennari, Seltjarnarnesi, Atli Guðlaugsson, fv. skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarö-
ar, nu Tónlistarskólans á Akureyri, Björn Th. Árnason, formaöur Félags íslenskra
hljómlistarmanna, Pórarinn Sigurbergsson, tónlistarkennari viö Tónlistarskóla Kefla-
víkur, og Sigriöur Sveinsdóttir, formaöur Félags íslenskra tónlistarskólakennara.
Ljósm. Unnar Stefánsson.
I 90