Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Qupperneq 65
ERLEND SAMSKIPTI
Vinabæjalundur í Kópavogi
Kristján Guðmundsson, bœjarfulltrúi í Kópavogi
í greinarstúfi þessum vil ég í
stuttu máli skýra frá hugmynd sem
fæddist hjá stjóm Norræna félagsins
í Kópavogi fyrir nokkmm ámm.
Öllum í stjóminni þótti tilhlýði-
legt að marka fallegan stað á opnu
svæði í bæjarlandinu fyrir skógar-
lund, þar sem komið væri fyrir
greinargóðu skilti með nöfnum
vinabæja okkar og bæjarmerki
þeirra.
Tillaga þessi var kynnt og sam-
þykkt í vinabæjanefnd bæjarins, en í
henni sitja þrír fulltrúar kosnir af
bæjarstjóm, formaður Norræna fé-
lagsins og bæjarstjóri, en hann er
sérstakur tengiliður við vinabæi
okkar.
A vinabæjamóti í Kópavogi sum-
arið 1993 var fyrst plantað í þennan
fallega reit, sem er í vestanverðum
Digraneshlíðum, í næsta nágrenni
við Digraneskirkju.
Að loknu þessu vinabæjamóti
barst mér bréf frá bæjarstjóranum í
Odense, Verner Dalskov, þar sem
hann þakkar eftirminnilega stund
þegar við vorum öll saman komin
þarna í hlíðinni og gróðursettum
hvert og eitt eina birkiplöntu og eina
ösp.
Þessi athöfn hafði þau áhrif á
Verner að hann setti saman þessa
vísu sem hann sendi í umræddu
þakkarbréfi:
Et trœ er plantet í Islands jord
afvennerfra nordiske byer.
I skoven det vokser sig stœrk og stor
og venskabs-bándet fornyer.
Rödderne fœstnes í jordens nndd
og grene med bladene grönnes.
I sol og i blœst det tillidsfuldt
vil vise at venskaber lönnes.
Ætlunin er þegar gesti ber að
Skiltiö í vinabæjalundinum minnir bæjar-
búa á vinabæi Kópavogs. Greinarhöf-
undur tók myndina.
garði frá vinabæjum okkar að sum-
arlagi, þá verði plantað þama til efl-
ingar og viðhalds lundinum.
Það var m.a. gert á 50 ára lýð-
veldishátíðinni 1994, en þá bauð
bæjarstjórn Kópavogs einum full-
trúa frá hverri bæjarstjóm vinabæj-
anna.
Vinabæir Kópavogs eru Ang-
massalik, Klakksvik, Mariehamn,
Norrköping, Odense, Tampere og
Þrándheimur.
Samskipti þessara bæja em mikil
og verða sífellt umfangsmeiri á fjöl-
mörgum sviðum, nemendaskipti,
íþróttamót, margvísleg menningar-
samskipti, kórar, leikhópar og
hljómsveitir, kennaramót að
ógleymdum vinabæjamótunum
sjálfum.
í vinabæjalundinum. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Kristján Guömundsson greinar-
höfundur, Ragnheiöur Tryggvadóttir, Margrét Eiríksdóttir og Hermann Lundholm, öll í
stjórn Norræna félagsins í Kópavogi.
1 9 1