Sveitarstjórnarmál - 01.08.2000, Qupperneq 28
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Séð yfir þingsalinn í íþróttahúsinu á Tálknafirði.
atvinnugreina fjórðungsins en þær greinar eru undirstað-
an sem önnur starfsemi byggist á. Samhliða þarf að efla
nýsköpun innan starfandi fyrirtækja og stuðla að upp-
byggingu nýrra atvinnugreina, sem nýta þá kosti sem
Vestfirðir hafa til að bera. Þetta eru langtímaverkefni
sem þarfnast stuðnings jafnt opinberra sem einkaaðila.
Þingið lýsir yfir ánægju sinni með það starf sem At-
vinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur unnið í þessum efn-
um og hvetur stjómvöld, sveitarfélög, fyrirtæki og ein-
staklinga að standa með féfaginu í þessu viðamikla starfi
sínu. Jafnframt hvetur þingið félagið til að kynna starf-
semi sína enn betur, en slíkt er mikilvægt til að samstaða
og samstarf náist um þessi verkefni.
Eignarhaldsfélag
Þingið samþykkir að stjóm sambandsins vinni með
Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða að stofnun eignar-
haldsfélags á Vestfjörðunr. Mörkuð verði fjárfestingar-
stefna með ásættanlegum arðsemissjónarmiðum. Sam-
hliða verði leitað leiða í fjármögnun sem geri sveitarfé-
lögunum kleift að taka þátt í uppbyggingu félagsins.
Þingið skorar á hlutaðeigandi aðila að hraða þessu máli
eftir því sem kostur er.
Fasteignagjöld
Þingið fagnar framkomnum hugmyndum um lækkun
fasteignagjalda á landsbyggðinni ef tryggt er að sveitar-
félögum verði bætt sú tekjuskerðing sem þau verða fyrir
við breytinguna.
Eyðing minks
Þingið skorar á landbúnaðarráðherra og ríkisvaldið að
hefjast nú þegar handa við að eyða mink úr íslensku líf-
ríki með árangursríkum, markvissum og óyggjandi að-
ferðum. Stóraukin verði framlög til
veiða. Sérstaklega verði leitað nýrra
leiða á sviði líftækni og erfðafræði til
að útrýma minki.
Jafnframt er stjórn FV falið að
beita sér fyrir því að sveitarfélögin á
Vestfjörðum vinni saman og sam-
ræmi vinnu sína við eyðingu minks.
Svofelld greinargerð fylgdi tillög-
unni:
í þessu máli er ábyrgð ríkisins mik-
il. Minkur var fluttur inn með sér-
stöku innflutningsleyfi gegn skilyrð-
um um einangrun. Síðan hefúr hann
dreift sér um allt land og gengur laus i
líffíkinu. Árlega veldur hann miklum
búsiQum hjá bændum og skaðar af-
komu þeirra ásamt því að hann veldur
ómældu tjóni í lífríki landsins. Nauð-
synlegt er að stórauka veiðar og
stuðla að veiði allt árið.
Mikilvægt er að leita allra leiða í þessari baráttu. Þar
koma mjög til álita leiðir í líftækni og erfðavísindum. Is-
lenskt hugvit og íslenskir vísindamenn eru að skipa sér í
ffemstu röð erfðavísinda. Leitað verði leiða með færustu
vísindamönnum til að finna einfalda og örugga leið til að
eyða minknum úr líffíkinu á þennan hátt. Slíkar aðferðir
hafa rutt sér til rúms erlendis við eyðingu vargs sem
veldur búsifjum við ræktun nytjajurta.
Með samræmdu átaki og fyrirkomulagi sveitarfélag-
anna á svæðinu er hægt að nýta fjármuni betur, stuðla að
markvissara starfi og ná betri árangri.
VSK af refa- og minkaveiðum verði endurgreiddur
Þingið beinir því til Alþingis að gerðar verði nauðsyn-
legar breytingar á lögum og reglugerðum sem þarf til að
sveitarfélögum verði endurgreiddur virðisaukaskattur af
kostnaði þeirra við refa- og minkaveiðar.
Svofelld greinargerð fylgdi tillögunni:
Á undanfömum árum hefur Alþingi ákveðið að draga
úr greiðslum til sveitarfélaga við refa- og minkaveiðar en
á sama tíma hefúr það færst í vöxt að þeir aðilar sem
sinna veiðunum vinni sem verktakar og þar af leiðandi
leggst 24,5% virðisaukaskattur á kostnaðinn. Sveitarfé-
lög sem áfram sinna þessum málaflokki með svipuðu
sniði og áður hafa því orðið fyrir verulegum útgjalda-
auka og er ekki nema sanngjamt að ætlast til þess að rík-
isvaldið láti af þessari skattheimtu á sveitarfélögin sem
þarna eru að sinna lagaskyldum og vemda viðkvæmt
fúgla- og dýralíf.
Kvöldflug á Isafjarðarflugvöll, flugsamgöngur
Þingið beinir því til samgönguráðherra að hraðað verði
undirbúningsvinnu á vegum flugráðs og Flugmálastjóm-
ar er miðar að því að gera kvöldflug um ísafjarðarflug-
1 54